Beint í efni

Arnarnes-dsk-breyting, Mávanes og Blikanes byggingarreitir

Málsnúmer 2012070

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að falla frá breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreita lóða ofan við götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan var kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og komu fram almenn mótmæli íbúa gagnvart tillögunni. (Mál nr. 2012070)

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreita lóða ofan við götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan var kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og komu fram almenn mótmæli íbúa gagnvart tillögunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til húsa við Mávanes og Bliknes að ofanverðu að lokinni forkynningu 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Lögð fram ábendingar frá eigendum húsa við báðar götur þar sem að tillögunni er mótmælt.
Með vísan í framlagðar ábendingar mælir skipulagsnefnd með því að tillagan verði dregin til baka.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. (Mál nr. 2012070)

Bæjarráð Garðabæjar

05

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu í Blikanesi og Mávanesi. Tillagan er unnin af Hornsteinum ehf að beiðni Garðabæjar. Gert er ráð fyrir 70 m2 (7x10 m) byggingarreit. Markmiðið er að skapa möguleika á nýtingu framlóða um leið og tillit er tekið til meginhluta húsanna og götumyndar og að áhrif viðbyggingar á aðliggjandi lóðir séu sem minnst. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.