4. fundur
4. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
11.03.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2103060
01
Tillaga um rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A.
Sigurður Guðmundsson gerði grein fyrir tillögu sinni sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn samþykkir að hafin verði skipulagsvinna á rammahluta aðalskipulags fyrir þróunarsvæði A, Lyngás, Miðbær og Hafnarfjarðarvegur, sem skilgreint er í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Þá verði samhliða hafin vinna við deiliskipulag fyrir Álftanesveginn frá Engidal að Reykjanesbraut."
Greinargerð:
Árið 2016 var haldin hugmyndasamkeppni um rammaskipulag svæðisins við Hafnarfjarðarveg. Höfundar vinningstillögunnar voru Batteríið, Landslag og Mannvit sem unnu tillöguna áfram og var að lokum samþykkt sem rammaskipulag árið 2017.
Í gildandi Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er svæðið skilgreint sem þróunarsvæði A. Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040, er svæðið skilgreint sem bæjarkjarni þar sem gert er ráð fyrir einni biðstöð borgarlínu.
-Bæjarkjarni í svæðisskipulagi er skilgreindur sem svæði með fjölbreyttri starfsemi; þjónustufyrirtæki, verslanir, skrifstofur og afþreying sem þjónar heilu sveitarfélagi eða hverfishluta. Gera skal ráð fyrir a.m.k. einni stoppistöð hágæðakerfis almenningssamgangna, Borgarlínu, og góðu aðgengi að strætisvagnaleiðum. Þéttleiki er mikill. Íbúðarhúsnæði þarf að vera fjölbreytt að gerð og eignarhaldi, ávallt skal hluti íbúða vera á viðráðanlegu verði. Gott aðgengi að almenningsgörðum og góðum almenningsrýmum og/eða náttúruríkum svæðum. Göngu- og hjólavænt umhverfi sem er skjólgott, gleður augað og hvetur til útiveru.
-Borgarlínan er hágæða almenningssamgangnakerfi sem mun aka að mestu í sérrými og hafa forgang á gatnamótum. Þannig styttist ferðatími og tíðni ferða eykst. Borgarlínunni má líkja við slagæð sem flytur fólk á greiðan og öruggan máta eftir helstu samgöngu- og þróunarásum höfuðborgarsvæðisins. Borgarlínan og Strætó verða tvinnuð saman í heildstæðu, hágæða leiðaneti en auk þess verður áhersla lögð á að borgarlínustöðvar séu vel tengdar hjóla- og göngustígum.
Svæðið er vel staðsett, það er í nálægð við grunnþjónustu sveitarfélagsins s.s. grunnskóla, leikskóla og íþróttasvæði. Stutt er í opin svæði og leiksvæði ásamt því að vera í mikilli nálægð við stofnæðar og almenningssamgöngur. Mikilvægt er að áhersla verði á blandaða byggð, gæði borgarrýmis og mannlífs og borgarlínu í skipulagsvinnunni.
Lagt er til að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði að undirbúa skipulagsvinnu á rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A, Lyngás, Miðbær og Hafnarfjarðarvegur. Þar sem lögð verður fram tillaga að skipulagslýsingu fyrir rammahluta aðalskipulags á þróunarsvæði A þar sem m.a. verður áhersla á blandaða byggð, gæði borgarrýmis og mannlífs auk borgarlínu í tengslum við flutning Hafnarfjarðarvegar í stokk. Jafnframt verði lögð fram tillaga að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags fyrir Álftanesveginn frá Engidal að Reykjanesbraut.
Skipulagsvinnuna þarf að vinna í samvinnu við SSH, verkefnastofu Borgarlínu, Vegagerðina, Betri samgöngur ohf. og Hafnarfjarðabæ, auk þess sem íbúar Garðabæjar munu koma að skipulagsvinnslunni í samræmi við skipulagslög.
Skipulagsnefnd tekur undir bókun bæjarstjórnar og vísar málinu til undirbúnings hjá tækni-og umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson lagði fram eftirfarandi bókun:
"Undirritaður fagnar framkominni tillögu og mikilvægu skrefi í átt að þéttingar byggðar við Borgagarlínu. Furða mig hins vegar á ferli málsins sem ekkert hefur komið til umræðu í nefndinni sl. 2 ár, en birtist nú skyndilega sem tillaga í bæjarstjórn. Að öllu eðlilegu hefði Skipulagsnefnd átt að vera fyrsti viðkomustaður til kynningar og umræðu og þaðan vísað til bæjarstjórnar. Nema að það sé ásetningur meirihlutans líkt og kanski verið hefur að skipulagsnefnd bæjarins verði aðeins formlegur viðkomustaður tilagna og gæluverkefna merihlutans til samþykktar þegar hentar.
Þá er einnig sérstakt við framsetningu þessarar tillögu að samdægurs kynnir meirhlutinn með klukkustundar fyrirlestri í bæjarráði, sérstakt gæluverkefni þ.e. Garðahverfisskipulagið og að úthlutun hefjist á lóðum þar, í einhverju dreifbýlasta skipulagssvæði norðan Alpafjalla. 30 íbúðir á 80 hektra, dreift nær skipulagslaust um túnin þar. Skipulag sem aldrei mun nást að fylgja eftir sem því Disneylandi fortíðar sem þarna er stefnt að. Á þessum hluta Garðaholts mætti með hæfilega þéttri byggð, koma fyrir a.m.k. 1000-1500 íbúðum eða um 100-150.000 byggðum fermetrum (miðað við t.d. 100 m² pr. íbúðareiningu) . Ef við gefum okkur að byggingaréttur væri þarna seldur á segjum 50 þús. kr. /m² líkt og t.a.m. í Urriðaholti, er hér um 6-7 milljarða verðmæti að ræða ! Dyggði bæjaryfirvöldum nokkurn veginn fyrir knatthúsinu góða og eins og einum grunnskóla fyrir afganginn. Notabene bærinn fékk þetta land nær gefins frá ríkinu. Hér er ekki aðeins verið að fórna einstöku byggingarlandi fyrir okkur bæjarbúa með einstökum möguleikum til þéttingar byggðar þar sem risið gæti risið allt að 5-6000 mann sjálfbær byggðakjarni á Holtinu öllu. Heldur einnig skv. framansögðu er þar fórnað gríðarlegum verðmætum okkar Garðbæinga á altari fortíðarblætis og sérhagsmuna.
Fulltrúi G-lista Garðbæjarlistans í skipulagsnefnd."
Sigurður Guðmundsson lagði fram eftirfarandi bókun f.h. Meirihluta Sjálfstæðisflokks í skipulagsnefnd:
"Það er vægast sagt sérstakt að koma með bókun sem þessa. Mál koma ýmist fyrst fram í skipulagsnefnd eða eru send skipulagsnefnd frá bæjarstjórn. Þetta er svipað og að gera athugasemd eftir mark í íþróttaleik vegna þess að boltin hafi borist fyrir frá vinstri en ekki hægri. Skipulagsnefnd hefur lögformlegan tilgang samkvæmt skipulagslögum og þar eru öll skipulagsmál í sveitarfélaginu unnin, skipulagsmál eru ekki og verða aldrei gæluverkefni og er svona rakalausri þvælu vísað til föðurhúsana.
Þá er það með eindæmum ósmekklegt að gera athugasemdir við það að skipulagsáætlanir sem samþykktar hafi verið í sveitarfélaginu séu kynntar kjörnum fulltrúum, en líklega vill minnihluti Garðabæjarlistans lifa í myrkrinu óupplýstir um flest mál og fer það þvert gegn meintum ásetningi þeirra um opin og lýðræðisleg vinnubrögð. Það var af fyrirhyggju sem meirihluti sjálfstæðismanna stóð að kaupum á landi Garðaholts fyrir u.þ.b. 50 milljónir árið 1992. Garðaholtið er um 410 hektarar og þar af er Garðahverfið um 79 hektarar. Það má að sjálfsögðu verðmeta hvern fermetra lands í Garðabæ með tilliti til sölu byggingarréttar og verða ríkur. Verðmæti fyrir bæjarbúa snúast ekki síður um að búa í nálægð við opin svæði þannig að lífsgæða verði sem best notið, opin svæði auka lífsgæði og verðmæti þeirra eigna sem þó eru byggðar á hverjum tíma. Dýrustu byggingar í London og New York eru við Hyde Park og Central Park. Seltjarnarnes sem hefur takmarkað byggingarland hefur lagt áherslu á að halda í opnu svæðin á Gróttu, á Vestursvæðinu þar eru u.þ.b 50 hektarar undir opin svæði.
Þá skýtur það ákaflega skökku við að vísa til einhverra meintra sérhagsmuna í bókuninni, enda ekki gerð minnsta tilraun til að undirbyggja slíka makalausa staðhæfinu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafa í nefndarstörfum bæjarins, bæjarráði og bæjarstjórn haft hagsmuni bæjarins og allra bæjarbúa að leiðarljósi. Það mun verða gert hér eftir, sem hingað til."
Málsnúmer 2010333
02
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa á meðan á forkynningu stóð.
Þar koma fram óskir um að umrætt svæði við Brekkuás verði skilgreint sem grænt opið svæði.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd áréttar mikilvægi þess að starfsemi búsetukjarna fyrir fatlað fólk verði valinn góður staður og óbyggða svæðið ofan Brekkuás uppfyllir þau skilyrði með ágætum. Sú tillaga að breyta svæði fyrir leikskóla í einnar hæðar fjölbýlishús og leiksvæði sé ekki íþyngjandi fyrir nágrennið né líklegt að það dragi úr verði aðliggjandi fasteigna.
Skiplagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 31.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr.3.mgr.30.greinar sömu laga.
Málsnúmer 2005435
03
Búsetukjarni Brekkuás 2, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts vestra
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagðar fram þær ábendingar sem borist hafa á meðan á forkynningu stóð.
Þar koma fram óskir um að leikskólalóð við Brekkuás verði skilgreind sem grænt opið svæði.
Tillagan gerir ráð fyrir því að landnotkunareitur 2.06 S Brekkuás breytist í 2.06 Íb sem er breyting úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðarbyggð.
Skipulagsnefnd áréttar mikilvægi þess að starfsemi búsetukjarna fyrir fatlað fólk verði valinn góður staður og óbyggða svæðið ofan Brekkuás uppfyllir þau skilyrði með ágætum. Sú tillaga að breyta lóð fyrir leikskóla í lóð fyrir einnar hæðar fjölbýlishús og leiksvæði sé ekki íþyngjandi fyrir nágrennið né líklegt að það dragi úr verði aðliggjandi fasteigna. Auk þess lækkar hámarkshæð byggingar á lóð úr 6 m í 4,5 m og heimilað byggingarmagn á lóð sem takmarkast af byggingarreit minnkar úr c.a.3000 m2 í 1000 m2.
Skiplagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 2.mgr. 43.greinar og 41.grein Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
Málsnúmer 2008336
04
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 5. Urriðaholt 5.04 Vþ.
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til landnotkunarreits Urriðaholt,viðskiptastræti 5.04 VÞ að lokinni auglýsingu í samræmi við 31.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4 og var í kynningu frá 11.desember 2020 til 22.janúar 2021.
Athugasemdir bárust frá íbúum við Urriðaholtsstræti og eru þær lagðar fram.
Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs og Alta ehf hafa fundað með fulltrúum húsfélagsins og farið yfir tillögurnar og athugasemdirnar.
Í skipulagsákvæði gildandi aðalskipulags segir:
Megináhersla á atvinnuhúsnæði.
Hámarkshæð húsa 4-5 hæðir,Uppbygging skv. deiliskipulagi.
Tillaga að breytingu skipulagsákvæða:
Megináhersla á atvinnuhúsnæði, en íbúðarbyggð heimil. Íbúðarhúsnæði sé innan við 50% af heildarbyggingarmagni reitsins.
Hámarkshæð húsa 4 -5 hæðir, Uppbygging skv. deiliskipulagi.
Í athugasemd er lagt til að hámarkshæð verði 4 hæðir. Skipulagsnefnd telur að við mótun deiliskipulags sé hægt að taka tillit til útsýnis frá aðliggjandi byggð þó svo að einhver hluti bygginga sé 5 hæðir þar sem landnotkunarreiturinn hallar til norðurs.
Tillagan er því samþykkt óbreytt sem breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr.32.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1811125
05
Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 4 að lokinni auglýsingu í damræmi við 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Deiliskipulagstillagan nær til svæðis fyrir nýja íbúðabyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti, auk útivistarsvæðis næst Flóttamannavegi. Hluti af deiliskipulagstillögunni er endurskoðun á deiliskipulagi fyrsta áfanga Urriðaholts, sem kallað er Viðskiptastræti og náði yfir húsin næst gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Holtsvegar. Hæðir húsa á skipulagssvæðinu verða á bilinu 4-6 hæðir. Fjöldi íbúða verður 218 (36 þegar byggðar), og atvinnuhúsnæði verður um 48.000 m2 (um 11.000 þegar byggt eða í byggingu).
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis og var í kynningu frá 11.desember 2020 til 22.janúar 2021.
Athugasemdir bárust frá íbúum við Urriðaholtsstræti og eru þær lagðar fram.
Starfsmenn tækni-og umhverfissviðs og Alta ehf hafa fundað með fulltrúum húsfélagsins og farið yfir tillögurnar og athugasemdirnar.
Gerðar eru athugasemdir við hæðafjölda bygginga og skerðingar á útsýni til norðurs frá fjölbýlishúsum við Urriðaholtsstræti.
Skipulagsnefnd bendir á að með nýju deiliskipulagi verði byggingar fjær byggð við vestanvert Urriðaholtsstræti og þar að auki lægri en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Breytingarnar séu því verulega til bóta hvað varðar útsýni frá aðliggjandi byggð.
Skipulagsnefnd leggur til að komið verði til móts við athugsemdir um útsýnisskerðingu með því að bil milli húshluta verði 2 hæðir og ekki gert ráð fyrir tengingum milli húshluta á 3.og 4.hæð.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna sem deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 4 með ofangreindri breytingu í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Einnig samþykkt umhverfisskýrsla sem er hluti af tillögunni í samræmi við lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Við gildistöku deiliskipulags Norðurhluta 4 fellur deiliskipulag Urriðaholts Viðskiptastrætis úr gildi.
Málsnúmer 1912215
06
Urriðaholt Viðskiptastræti - fellt úr gildi
Athuga að auglýsa í b-deild niðurfellingu, þegar hitt tekur gildi
Lagt fram gildandi deiliskipulag Urriðaholt, 1.ágangi, Viðskiptastræti sem samþykkt var í bæjarstjórn 2.október 2008. Við gildistöku deiliskiplags Urriðaholts norðurhluta 4 fellur þetta deiliskipulag úr gildi.
Málsnúmer 2102057
07
Hólmatún 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir gróðurhúsi 3x4,5 m að grunnfleti (13,5 m2) á parhúslóðinni Hólmatún 25. Fyrir er á lóðinni smáhýsi sem er um 8 m2 að grunnfleti.
Ekki er kveðið á um smáhýsi í deiliskipulagi Hólmatúns.
Þar sem að um annað smáhýsi á lóð er að ræða leggur skipulagsnefnd til að gerð verði sú breyting á deiliskipulagi Hólmatúns sem nær til lóðar nr.25 að heimilt verði að reisa allt að tvö smáhýsi sem séu ekki stærri en 20 m2 að samanlögðu flatarmáli.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hólmatúns í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Hólmatúns 6,8,10,10a,23a,24,26 og 29.
Áður en grenndarkynning er framkvæmd skal samþykki eigenda hins hluta parhússins liggja fyrir.
Málsnúmer 2012104
08
Alþjóðaskólinn. Breyting á deiliskipulagi Ása og Grunda
Afgreiðslu málsins frestað.
Málsnúmer 2102132
09
Stekkjarflöt 25 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir viðbyggingum við framhlið og bakhlið húss sem fara út fyrir byggingarreit.
Þar sem að gatan liggur í sveig við enda hennar skapast svigrúm að mati nefndarinnar fyrir hógværa viðbyggingu við framhlið.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar hennni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal íbúum Stekkjarflatar 20,21,22 og 23 og Smáraflatar 20 og 22.
Málsnúmer 2012115
10
Smáraflöt 12 Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Grenndarkynningu lýkur 20.02.21
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemdir sem borist haf lagðar fram.
Vísað til skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Málsnúmer 2011349
11
Bakkaflöt 12 - dsk breyting
Grenndarkynningu lokið, engar athguasemdir
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Bakkaflatar 12 að lokinni grenndarkynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall sé aukið úr 0,45 í 0,51. Þau rými sem auka nýtingarhlutfall eru í kjallara. Tillaga gerir einnig ráð fyrir því að hámarkshæð hækki um 70 cm úr 4,2 m í 4,9 m.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.
Málsnúmer 2012070
12
Arnarnes-dsk-breyting, Mávanes og Blikanes byggingarreitir
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til húsa við Mávanes og Bliknes að ofanverðu að lokinni forkynningu 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Lögð fram ábendingar frá eigendum húsa við báðar götur þar sem að tillögunni er mótmælt.
Með vísan í framlagðar ábendingar mælir skipulagsnefnd með því að tillagan verði dregin til baka.
Málsnúmer 2102539
13
Blikanes 9 - Frágangur á lóð -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir viðbótar bílastæði að götu í vesturhluta lóðar.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 2007640
14
Frjóakur 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 2101295
15
Espilundur 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit í samræmi við umsókn um byggingarleyfi.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Lunda í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2, 4 og 6.
Málsnúmer 2101220
16
Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir byggingu að lóðarmörkum sem er 11,8 m að lengd. Deiliskipulag heimilar 7,5 m.
Auk þess er gert ráð fyrir opnu bílskýli framan við bílageymslu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9.
Málsnúmer 2002267
17
Hraungata 7 - DSK breyting
grenndarkynningu lýkur 01.03.21
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til fjölbýlishúslóðarinnar Hraungata 7 að lokinni grenndarkynningu. Innsendar athugasemdir lagðar fram.
Vísað til skoðunar hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni og umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 2103095
18
Urriðaholt norðurhluti 3. Deiliskipulagsbreyting. Háholt - Vinastræti.
Stefán Veturliðarson fyrir hönd Oddfellow-reglunnar og Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís kynntu hugmyndir um breytingar á deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3 sem ná til háholtsins og bygginga á óbyggðum lóðum við Vinastræti. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 2010384
19
Hönnun - Útboð - Kumlamýri - gatnagerð og veitur
Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir gatnagerð og lagna í Kumlamýri á Álftanesi.
Samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á fimm
sérbýlishúsakjörnum á um fimm hektara svæði, með samtals 40 nýjum parhúsalóðum.
Verkið felst í nýbyggingu gatna, stíga og gangstétta, lagningu fráveitukerfis, ræsa og
mótun ofanvatnsrása. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á
svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 2004123
20
Hönnun - Útboð - Skólpdælustöð Breiðumýri
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdarleyfi fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri milli Lambamýrar og Hestamýrar.
Nýsamþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á níu 1-3 hæða fjölbýlishúsakjörnum á um 10,9 hektara svæði. Í framkvæmd er uppbygging á nýju fráveitukerfi svæðisins og er bygging skólpdælustöðvarinnar hluti af því. Ný dælustöð leysir af núverandi skólpdælustöð sem verður aftengd og rifin.
Um er að ræða gröft á lausum jarðlögum ásamt losun og gröft á föstum jarðlögum, dælingu á jarðvatni, uppsteypu á dælustöð,frágang á fráveitutengingum og grjótgildrubrunni í lóð, uppsetningu búnaðar og fullnaðarfrágang á húsi og lóð.
Gert er ráð fyrir fyrir skólpdælustöðinni í deiliskipulagi Breiðumýrar.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1806404
21
Stígur í Garðahrauni efra sunnan Flata
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs fyrir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs(aðalstígs skv.deiliskipulagi) í Garðahrauni efra frá núverandi stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði við Garðfit. Einnig fyrir hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar.
Stígurinn er innan fólkvangsins í Garðahrauni efra og Bæjargarðs og á sér stoð í deiliskipulagsáætlunum fólkvangsins og bæjargarðsins.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir útivistarstíginn í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með fyrirvara um samþykki Umhverfisstofnunar.
Málsnúmer 2102454
22
Borgarlína - Forkynning. Rammahluti Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030/40. 1. lota Borgarlínunnar | Ártún ? Fossvogsbrú. Vinnslutillaga í forkynningu
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 2102372
23
Borgarlínan - Forkynning á vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og Reykjavíkur 2010-2030.
Skipulagsnefnd vísar til bókunar frá síðasta fundi sínum vegna tillagna um breytingar á deiliskipulag og aðalskipulagi Kópavogs vegna Traðarreits og Hamraborgar.
Þar segir: Skipulagsnefnd Garðabæjar leggur áherslu á að tillögurnar taki tillit til þess með hvaða hætti leiðir Borgarlínunnar til austurs og vesturs og norðurs og suðurs tengist saman á skilvirkan og skynsamlegan hátt og þá í sömu hæðarlegu. Einnig leggur nefndin áherslu á að vel unnar umferðarspár- og greiningar verði lagðar til grundvallar með það að markmiði að ekki verði dregið úr afkastagetu Hafnarfjarðarvegar með fyrirhugaðir uppbyggingu í Miðbæ Kópavogs.
Að öðru leyti gerir nefndin engar athugasemdir.
Málsnúmer 1907242
24
Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar - Brennisteinsfjöll
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 2102036F
25
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 2
Lögð fram.
Málsnúmer 2103018F
26
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 3
Lögð fram.