Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við skólpdælustöð í Breiðumýri.

Málsnúmer 2004123

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

11. (1969). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í framkvæmdir við byggingu skólpdælustöðvar í Breiðumýri.

Berg Verktakar ehf., kt. 560816-1460 kr. 142.873.562
Óskatak ehf., kt. 440107-0600 kr. 158.534.003
Ístak hf., kt. 430214-1520 kr. 162.910.958

Kostnaðaráætlun kr. 147.116.550

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Berg Verktaka ehf. ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri. (Mál nr. 2004123)

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

4. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdarleyfi fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri milli Lambamýrar og Hestamýrar.
Nýsamþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á níu 1-3 hæða fjölbýlishúsakjörnum á um 10,9 hektara svæði. Í framkvæmd er uppbygging á nýju fráveitukerfi svæðisins og er bygging skólpdælustöðvarinnar hluti af því. Ný dælustöð leysir af núverandi skólpdælustöð sem verður aftengd og rifin.
Um er að ræða gröft á lausum jarðlögum ásamt losun og gröft á föstum jarðlögum, dælingu á jarðvatni, uppsteypu á dælustöð,frágang á fráveitutengingum og grjótgildrubrunni í lóð, uppsetningu búnaðar og fullnaðarfrágang á húsi og lóð.
Gert er ráð fyrir fyrir skólpdælustöðinni í deiliskipulagi Breiðumýrar.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.