11. (1969). fundur
11. (1969). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
23.03.2021
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
01
Tunguás 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sæmundi Friðjónssyni, kt. 190479-5019, leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús við Tunguás 8.
02
Víkurgata 4 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristínu Hjördísi Ásgeirsdóttur, kt. 050352-4049 leyfi til að byggja einbýlishús við Víkurgötu 4.
03
Opnun tilboða í framkvæmdir við skólpdælustöð í Breiðumýri.
Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í framkvæmdir við byggingu skólpdælustöðvar í Breiðumýri.
Berg Verktakar ehf., kt. 560816-1460 kr. 142.873.562
Óskatak ehf., kt. 440107-0600 kr. 158.534.003
Ístak hf., kt. 430214-1520 kr. 162.910.958
Kostnaðaráætlun kr. 147.116.550
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Berg Verktaka ehf. ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
04
Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri.
Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri.
Berg Verktakar ehf., kt. 560816-1460 kr. 327.994.887
Íslenskir aðalverktakar hf., kt. 660169-2379 kr. 334.934.491
Loftorka Reykjavík ehf. , kt. 571285-0459 kr. 268.700.000
Háfell ehf., kt. 500907-1770 kr. 357.362.076
Grafa og Grjót ehf., kt. 580202-2090 kr. 306.849.391
Óskatak ehf., kt. 440107-0600 kr. 265.538.682
Kostnaðaráætlun kr. 387.243.012
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Óskatak. ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
05
Tilkynning frá Kópavogi varðandi auglýsingu og kynningu á nýju aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
07
Áskorun Bændasamtaka Íslands til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir, dags. 16.03.21.
Bæjarráð vísar áskoruninni til kynningar í leikskólum og grunnskólum bæjarins. Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að leita upplýsinga hjá Skólamat ehf. um málið.
Fylgiskjöl
08
Bréf Samtaka iðnaðarins varðandi áskorun til sveitarfélaga um endurákvörðun álagningar stöðuleyfisgjalda, dags. 15.03.21.
09
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi reglugerð um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 17.03.21.
10
Bréf Vegagerðarinnar varðandi þátttöku í kostnaði við sjóvarnir 2021.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í kostnaði með Vegagerðinni í sjóvörnum á Álftanesi. Áætlaður heildarkostnaðar er 25,1 mkr og hlutur Garðabær 3,1 mkr.
Fylgiskjöl
11
Bréf Hjallastefnunnar varðandi rekstur leikskólanna Litlu Ása og Hnoðraholts á Vífilsstöðum, dags. 11.03.21.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra og leggur áherslu á að Hjallastefnan standi við að útvega Garðabæ þau rými sem bærinn á rétt á samkvæmt samningi.
Fylgiskjöl
12
Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga um frestun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021, dags. 17.03.21.
13
Tilkynning frá forsætisráðuneytinu um nýja stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum, dags. 18.03.21.
Lögð fram.
14
Erindi Strætó bs. um heimild fyrir yfirdrætti, dags. 02.03.21.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni stjórnar Strætó bs. um heimild til að sækja um yfirdráttarheimild á reikning félagsins hjá Arion banka að fjárhæð kr. 300.000.000. Heimildin er veitt til að tryggja í öryggisskyni nægt fjármagn til fjárstreymis Strætó bs. út árið 2021.
15
Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi skýrslu um lóðarleigusamninga, dags. 15.03.21.
Lögð fram.
16
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90 2018, 585. mál., dags. 16.03.21.
Lagt fram.
17
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísanir, dvalar- og atvinnuleyfi), 602. mál., dags. 18.03.21.
Lagt fram.
18
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframleiðenda og heimildar til sölu áfengis á framleiðslustað, 495. mál., dags. 16.03.21.
Lagt fram.
19
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000 (fjölgun jöfnunarsæta), 496. mál., dags. 16.03.21.
Lagt fram.
20
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (borgarafundir, íbúakosningar um einstök mál), 491. mál., dags. 16.03.21
Lagt fram.
21
Samkomulag við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning við Urriðaholt ehf. um uppbyggingu samkvæmt deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
23
Tillaga Garðabæjarlistans um flýtingu frumdraga á leið D í samgöngusáttmála Betri samgangna.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 18. mars 2021 var eftirfarandi tillögu Garðabæjarlistans vísað til bæjarráðs.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að kallað verði eftir því að vinnu frumdraga fyrir leið D verði flýtt og hafin sem allra fyrst. Tillagan verði send til stjórnar SSH til afgreiðslu.“
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að senda erindi til Betri samgangna ohf. þar sem farið verði fram á að kannaður verði sá möguleiki að flýta vinnu við gerð frumdraga fyrir leið D þannig að hægt verði að hefja framkvæmdir mun fyrr en áætlað er að því gefnu að fjárveitingar verði fyrir hendi.
24
Sala lóða í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri kynnti drög að skilmálum forvals og auglýsingu vegna ráðgjafaþjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Bæjarráð samþykkir skilmálana og felur bæjarstjóra að auglýsa forval þar sem óskað er eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna kaupa að ráðgjafarþjónustu við úthlutun lóða og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.
Ingvar Arnarson, situr hjá við afgreiðslu málsins.