Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri.

Málsnúmer 2010384

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

11. (1969). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust við opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Kumlamýri.

Berg Verktakar ehf., kt. 560816-1460 kr. 327.994.887
Íslenskir aðalverktakar hf., kt. 660169-2379 kr. 334.934.491
Loftorka Reykjavík ehf. , kt. 571285-0459 kr. 268.700.000
Háfell ehf., kt. 500907-1770 kr. 357.362.076
Grafa og Grjót ehf., kt. 580202-2090 kr. 306.849.391
Óskatak ehf., kt. 440107-0600 kr. 265.538.682

Kostnaðaráætlun kr. 387.243.012

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Óskatak. ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

5. (883). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Kumlamýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri. (Mál nr. 2010384)

Bæjarráð Garðabæjar

03

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Kumlamýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

4. fundur

Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar fyrir gatnagerð og lagna í Kumlamýri á Álftanesi.
Samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á fimm
sérbýlishúsakjörnum á um fimm hektara svæði, með samtals 40 nýjum parhúsalóðum.
Verkið felst í nýbyggingu gatna, stíga og gangstétta, lagningu fráveitukerfis, ræsa og
mótun ofanvatnsrása. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á
svæðinu.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.