Beint í efni

10. (1968). fundur

16.03.2021
Bæjarráð Garðabæjar

10. (1968). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

16.03.2021

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2012333

01

Ársreikningur Garðabæjar 2020.

Magnús Jónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og Þorbjörg Kolbeinsdóttir, deildarstjóri bókhalds mættu á fund bæjarráðs. Magnús Jónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2020, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Lögð fram og kynnt drög að endurskoðunarskýrslu.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2020 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. mars 2021 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 15. apríl 2021.

Bæjarfulltrúarnir, Jóna Sæmundsdóttir og Gunnar Valur Gíslason, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2010333

02

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 7. Breyting á landnotkun v. búsetukjarna í Brekkuás

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breyttrar landnotkunar á reit 2.06 við Brekkuás sem breytist úr svæði fyrir samfélagsþjónustu í svæði fyrir íbúðabyggð.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2005435

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) varðandi lóðina við Brekkuás 2.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr., sbr. 2. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna breytinga á skilgreiningu á lóðinni við Brekkuás 2 sem breytist úr lóð fyrir samfélagsþjónustu í lóð fyrir íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir að á lóðinni verði búsetukjarni fyrir fatlað fólk.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2012070

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna Blikaness og Mávaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna stækkunar byggingarreita lóða ofan við götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan var kynnt samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og komu fram almenn mótmæli íbúa gagnvart tillögunni.

Málsnúmer 2101220

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 4.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um að heimilað verði að bygging við lóðarmörk lóðarinnar við Smáraflöt 4 verði 11,8 m á lengd en í skilmálum er heimiluð lengd 7,5 m. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 1,2,4,5 og 6 og Stekkjarflatar 5,7 og 9.

Málsnúmer 2102132

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Stekkjarflöt 25.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um viðbyggingu sem fer út fyrir byggingarreit lóðarinnar við Stekkjarflöt 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 20 og 22 og Stekkjarflatar 20,21,22 og 23.

Málsnúmer 2011349

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12.

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Málsnúmer 2101295

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðarinnar við Espilund 3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lunda í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits lóðarinnar við Espilund 3. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Espilundar 1,2,4,5 og 6 og Víðilundar 2,4 og 6.

Málsnúmer 1811125

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um deiliskipulag 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem er svæði fyrir nýja íbúðarbyggð og atvinnustarfsemi norðan við Urriðaholtsstræti auk útivistarsvæðis næst Flóttamannaveginum. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr. 1. mgr. 41. gr. og var samhliða auglýst breyting á aðalskipulagi. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Skipulagsnefnd samþykkti að til að koma á móts við athugasemdir um útsýnisskerðingu að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu.

Miðhluti fjölbýlishúss við Urriðaholtsstræti 9 er 2 hæðir og verður feldur út glertengigangur á 3. og 4. hæð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 2008336

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna svæðis í Urriðaholti 5.04 Vþ.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 36, gr. laganna, um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 er nær til landnotkunarreits í Urriðaholti sem er merktur 5.04 Vþ. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á svæðinu verði heimiluð íbúðarbyggð ásamt atvinnuhúsnæði. Íbúðarhúsnæði skal vera innan 50% af heildarbyggingarmagni. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga og samhliða var auglýst tillaga að deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga og jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 1912215

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu varðandi brottfall deiliskipulags viðskiptastræti Urriðaholts.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fella úr gildi deiliskipulag Viðskiptastrætis Urriðaholts samhliða samþykkt á deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Málsnúmer 2102057

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns vegna lóðarinnar við Hólmatún 25.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hólmatúns í tilefni umsóknar um leyfi fyrir smáhýsi á lóðinni við Hólmatún 25. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Hólmatúns 6.8.10.10a,23a,24,26 og 29.

Málsnúmer 2010384

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð í Kumlamýri.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna gatnagerðar í Kumlamýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri.

Málsnúmer 2004123

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir skólpdælustöð í Breiðumýri. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag fyrir Breiðumýri.

Málsnúmer 1806404

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu stígs í Garðahrauni efra.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu útivistarstígs í Garðahrauni efra. Um er að ræða stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði og einnig hliðarstíg frá þeim stíg við norðurmörk Molduhrauns að vegstæði fyrirhugaðs Álftanesvegar. Framkvæmdin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag Bæjargarðs og Garðahraun efra - fólkvangur.

Samkvæmt 10. gr. auglýsingar um stofnun fólkvangsins í Garðahrauni, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum í Garðabæ nr. 510/2014 þarf að liggja fyrir leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda innan marka fólkvangsins.

Málsnúmer 2102372

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vinnslutillögu fyrir breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 og Reykjavíkur 2010-2030 vegna Borgarlínu.

Lögð fram.

Málsnúmer 2011215

17

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsáætlun Lyklafellslínu 1 og Ísallínu 3, dags. 05.03.2021.

Lögð fram ákvörðun Skipulagsstofnunar þar sem fallist er á tillögu Landsnets að matsáætlun vegna Lyklafellslínu 1 og Ísalslínu 3, með athugasemdum sem tilgreindar eru í átta liðum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1910293

18

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Vetrarmýrar, dags. 25.02.21.

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og gert athugasemdir í átta liðum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1906192

19

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts, dags. 25.02.21.

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn vegna deiliskipulags norðurhluta Hnoðraholts og gert athugasemdir í sex liðum.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1910294

20

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag Rjúpnadals, dags 25.02.21.

Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn deiliskipulags Rjúpnadals og gerir ekki athugasemdir við að deiliskipulagið verði staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1902106

21

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu fulltrúa í starfshóp vegna undirbúnings friðlýsingar strandlengju Álftaness, dags. 10.03.21.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, deildarstjóra umhverfis og framkvæmda sem fulltrúa Garðabæjar í samstarfshóp sem vinna mun að undirbúningi friðlýsingar strandlengju Álftaness.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2101335

22

Betri Garðabær - hugmyndasöfnun - íbúakosning 2021.

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir að alls hafa borist um 250 hugmyndir í hugmyndasöfnun að Betri Garðabæ. Matshópur frá tækni- og umhverfissviði er að fara yfir hugmyndirnar og mun gera tillögu til bæjarráðs um kjörseðil vegna rafrænna kosninga sem fyrirhugaðar eru frá 26. maí til 7. júní.

Lagðar fram uppfærðar reglur um rafrænar kosningar 2021.

Málsnúmer 2103211

23

Bréf UMF Stjörnunnar varðandi rekstur Garðaholts, dags. 09.03.21.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103190

24

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins (samþætting þjónustu, hlutverk o.fl.), 561. mál., dags. 08.03.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2103221

25

Bréf Alþings varðandi frumvarp til laga um brottfall laga um Kristnisjóð o.fl., nr. 35 1970, með síðari breytingum., 470. mál., dags. 09.03.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2103185

26

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablaðið og aukatekjur ríkissjóðs (gjaldfrjáls rafræn útgáfa), 273. mál., dags. 08.03.21.

Lagt fram.

Málsnúmer 2103257

27

Bréf Hringleiks varðandi styrk vegna sirkussýninga, ódags.

Bæjarráð vísar bréfinu til /afgreiðslu menningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2103259

28

Tilkynning frá félagsmálaráðuneytinu varðandi átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin, dags. 04.03.21.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði, öldungaráði og íþrótta- og tómstundaráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1902222

29

Sala lóða í Vetrarmýri.

Bæjarstjóri kynnti drög að forvalsskilmálum fyrir ráðgjafaþjónustu vegna úthlutunar og sölu byggingarréttar í Vetrarmýri.

Málsnúmer 2101230

30

Umsóknir um starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

Á fundinn mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir úrvinnslu umsókna um starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Fram kom að alls bárust 14 umsóknir um starfið. Farið var yfir allar umsóknir og lagt mat á umsækjendur út frá þeim menntunar- og hæfniskröfum sem tilgreindar voru í auglýsingu. Fimm umsækjendur voru boðaðir í viðtöl og sömu fimm einstaklingar fluttu 15 mínútna kynningu og sátu fyrir svörum í framhaldi.

Embættismenn aðrir en bæjarritari og bæjarstjóri véku af fundi undir þessum dagskrárlið.