Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12.

Málsnúmer 2011349

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

10. (1968). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

4. fundur

Grenndarkynningu lokið, engar athguasemdir

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Flata sem nær til lóðarinnar Bakkaflatar 12 að lokinni grenndarkynningu.
Tillagan gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall sé aukið úr 0,45 í 0,51. Þau rými sem auka nýtingarhlutfall eru í kjallara. Tillaga gerir einnig ráð fyrir því að hámarkshæð hækki um 70 cm úr 4,2 m í 4,9 m.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Flata.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (879). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um byggingu nýs einbýlishúss og niðurrifi eldra húss á lóðinni við Bakkaflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Bakkaflatar 7, 9, 10, 11 og 14. (Mál nr. 2011349)

Bæjarráð Garðabæjar

04

50. (1958). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um byggingu nýs einbýlishúss og niðurrifi eldra húss á lóðinni við Bakkaflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Bakkaflatar 7, 9, 10, 11 og 14.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall sé aukið úr 0,45 í 0,51. Þau rými sem auka nýtingarhlutfall eru í kjallara.
Tillaga gerir einnig ráð fyrir því að hámarkshæð hækki um 70 cm úr 4,2 í 4,9.
Skýringarmyndir fylgja af hugmyndum um nýtt einbýlishús á lóðinni sem gera ráð fyrir niðurrifi núverandi húss.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Bakkaflatar 7,9,10,11 og 14.
Gögn skulu gera betur grein fyrir tillögunni og skulu lögð fram áður en grenndarkynning fer fram.