1. (879). fundur
1. (879). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
21.01.2021
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Sara Dögg Svanhildardóttir
- Ingvar Arnarson
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðabirgðaákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020. Fundinum er streymt beint á vefsíðu Garðabæjar.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. desember 2020 er lögð fram.
Björg Fenger, kvaddi sér hljóðs og óskaði íþróttakonu Garðabæjar Ágústu Eddu Björnsdóttur, hjólreiðakonu og íþróttakarli Garðabæjar Hilmari Snæ Örvarssyni, skíðamanni til hamingju með þeirra viðurkenningar. Einnig óskaði Björg öðru íþróttafólki og þjálfurum til hamingju með viðurkenningar er þau fengu fyrir góðan árangur í sinni íþrótt svo og þeim sem fengu viðurkenningar fyrir fórnfúst starf að félagsstörfum. Þá þakkaði Björg starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra framlag við undirbúning og framkvæmd íþróttahátíðar Garðabæjar.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 22/12 ´20.
Sigríður Hulda ræddi 18. tl., staðfestingu á Breeam-vottun vegna Vífilsstaðalands.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 17. tl., skipun stýrihóps vegna innleiðingar barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19, 23. tl., niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks og 25. tl., tillögu um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Ingvar Arnarson, ræddi 23. tl., niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks, 25. tl., tillögu um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, 30. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð.
Gunnar Einarsson, ræddi 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19, 23. tl., niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks, 25. tl., tillögu um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, 30. tl., bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð.
Almar Guðmundsson, ræddi 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19.
Ingvar Arnarson, ræddi 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19, 25. tl., tillögu um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri,
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 18. tl, staðfestingu á Breeam-vottun vegna Vífilsstaðalands, , 25. tl., tillögu um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Almar Guðmundsson, ræddi 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19.
Gunnar Einarsson, ræddi 17. tl., skipun stýrihóps vegna innleiðingar barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og gerði grein fyrir að um er að ræða stýrihóp sem mun eingöngu koma að innleiðingu Barnasáttmálans en ekki innleiðingu Heimsmarkmiðanna og Heilsueflandi Garðabæ. Gunnar upplýsti að Björg Fenger er tilnefnd sem formaður stýrihópsins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 23. tl., niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks.
Ingvar Arnarsson, ræddi 20. tl., bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna Covid-19.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 23. tl., niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks.
Fundargerðin sem er 33 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.10 - 2011173 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Víkurgötu 1-7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 1-7, þar sem sótt er um að skipta neðsta húsinu í raðhúsaröðinni í tvær íbúðir. Fyrir liggur neikvæð umsögn deiliskipulagshöfunda. (Mál nr. 2011173)
Fylgiskjöl
1.11 - 2012153 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðanna og fjölgun íbúða um 8 á hvorri lóð.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 895.650 á íbúð m.v. BVT 747,7 stig í desember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi. (Mál nr. 2012153)
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 13 (17.12.2020) - Maríugata 5-7 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa.pdf
- Urriðaholt-DS Umsögn Maríugata 5-7-20201014.pdf
- 04-087L-(90)1.01 Maríugata 5-7 20201211.pdf
- umsokn-um-deiliskipulagsbreytingu Maríugata 5-7.pdf
- 04-087L-(90)1.01 Maríugata 5-7 20201208.pdf
- Fw: Maríugata 5-7 Bjarg og Búseti.pdf
1.12 - 2009325 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Tunguás 8.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús við Tunguás 8, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4, 5, 6, 7 og 9 og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13, 15, 17 og 19. (Mál nr. 2009325)
Fylgiskjöl
1.13 - 2009610 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðar fyrir dælustöð.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðar fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2009610)
Fylgiskjöl
1.14 - 2012070 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna breytinga á byggingarreitum lóða við Mávanes og Blikanes.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. (Mál nr. 2012070)
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 13 (17.12.2020) - Arnarnes-dsk-breyting, Mávanes og Blikanes byggingarreitir.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 01.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 02.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 03.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 03-ÁN HÚSA.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 04.pdf
- r-Blikanes og Mávnes - Stækkun byggingareita ofan götu - Forathugun - TEIKN 04-ÁN HÚSA.pdf
1.5 - 2011349 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um byggingu nýs einbýlishúss og niðurrifi eldra húss á lóðinni við Bakkaflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Bakkaflatar 7, 9, 10, 11 og 14. (Mál nr. 2011349)
Fylgiskjöl
1.6 - 2012115 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús að Smáraflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17. (Mál nr. 2012115)
Almar Guðmundsson, vék af fundi við afgreiðslu tillögunnar.
Fylgiskjöl
1.7 - 2010462 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2010462)
Gunnar Einarsson vék af fundi við afgreiðslu tillögunnar.
Fylgiskjöl
1.8 - 2010246 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðanna við Grenilund 10 og 12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðanna við Grenilund 10 og 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda. (Mál nr. 2010246)
Fylgiskjöl
1.9 - 2010451 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Kirkjulund 17.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á skipulagsskilmálum sem gilda fyrir lóðina við Kirkjulund 17. Starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum verður ekki talin vera í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi á miðsvæði eins og svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. (Mál nr. 2010451)
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 12/1 ´21.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun 2020, 19. tl., reglur um hvatapeninga árið 2021 og 21. tl., gjaldskrá stuðningsþjónustu.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun 2020, 19. tl., reglur um hvatapeninga árið 2021 og 21. tl., gjaldskrá stuðningsþjónustu.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun 2020 og 22. tl., bréf Bergljótar Sigurbjörnsdóttur um lausn frá starfi félagsmálastjóra. Almar færði Bergljótu þakkir bæjarstjórnar fyrir farsæl störf í þágu Garðabæjar.
Fundargerðin sem er 23 tl., er samþykkt samhljóða.
03
Fundargerð bæjarráðs frá 19/1 ´21.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 10. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032, 11. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöð á Íslandi og 12. tl., lokadrög skýrslu varðandi umhverfisuppgjör Garðabæjar.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 10. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032, 11. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöð á Íslandi og 12. tl., lokadrög skýrslu varðandi umhverfisuppgjör Garðabæjar.
Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Brekkuás 2 og 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingum á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á landnotkun lóðarinnar við Brekkuás 2.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
3.5 - 2008424 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi vegna lóðarinnar við Vesturtún 38-40.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Túnahverfis á Álftanesi er gerir ráð fyrir hækkun á mænishæð parhúsanna við Vesturtún 38-40. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og bárust engar athugasemdir. (Mál nr. 2008424)
Fylgiskjöl
3.6 - 2002267 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Hraungötu 7, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að leyfilegur þakhalli verður 0-15° í stað 15-45° og að heimilaðar verði 4 hæðir í tengibyggingu á milli húshluta þar sem fyrirhugað er lyftuhús. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og skal grenndarkynna tillöguna eigendum að Hraungötu 5, 8, 9, 10, 12, og 14 og Holtsvegar 41 og 43. (Mál nr. 2002267)
Fylgiskjöl
3.7 - 2012035 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Brúnás 12.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðarinnar við Brúnás 12 sem gerir ráð fyrir að þakvirki og burðaveggur undir því fari lítilega út fyrir byggingarreit, að gólfkóti aðalhæðar verði 20 cm hærri en G-kóti á lóðarblaði tilgreinir og að vegghæð hærri hluta húss verði 40 cm hærri en fram kemur í skilmálum.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga og hafa allir hlutaðeigendur áritað uppdrætti til samþykktar á tillögunni. (Mál nr. 2012035)
Fylgiskjöl
3.8 - 2005435 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis)vegna lóðarinnar við Brekkuás 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir að lóð fyrir leikskóla við Brekkuás 2 breytist í lóð fyrir búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt. (Mál nr. 2005435)
Fylgiskjöl
3.9 - 2010333 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna breytingar á landnotkun lóðarinnar við Brekkuás 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til lóðarinnar við Brekkuás 2. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkunarreitur svæðisins þar sem lóðin er breytist úr 2.06-S samfélagsþjónusta í 2.06-Íb íbúðarsvæði vegna byggingar búsetukjarna fyrir fatlað fólk.
Tillagan skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal einnig kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga og svæðisskipulagsnefnd.
Samhliða skal kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna sömu lóðar. (Mál nr. 2010333)
Fylgiskjöl
04
Fundargerð fjölskylduráðs frá 16/12 ´20.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., yfirlit yfir stöðu verkefna í málaflokki fatlaðs fólks og 4. tl., reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar.
Sara Dögg Svanhildardóttir spurði um úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar á vefsíðum sveitarfélaga.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., yfirlit yfir stöðu verkefna í málaflokki fatlaðs fólks.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Almar Guðmundsson, ræddi úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar á vefsíðum sveitarfélaga, 1. tl., yfirlit yfir stöðu verkefna í málaflokki fatlaðs fólks og 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021 og svaraði fyrirspurnum
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., yfirlit yfir stöðu verkefna í málaflokki fatlaðs fólks og 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 2. tl., fyrirspurn um þjónustu við fatlað fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., um fyrirspurn þjónustu við fatlað fólks með langvarandi stuðningsþarfir og svaraði fyrirspurn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl. yfirlit yfir stöðu verkefna í málaflokki fatlaðs fólks og 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Björg Fenger, ræddi 5. tl., tölulegar upplýsingar um rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2016-2021.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 11/1 ´21.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., safnanótt 2021 og 4. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 4. tl., barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021.
Ingvar Arnarson, 3. tl., menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss.
Björg Fenger, tók til máls og minnti á áform um menningardagskrá fyrir ungt fólk í Garðabæ.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/12 ´20.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 22. tl., beiðni um umsögn varðandi legu Lyklafellslínu og Ísallínu og 20. tl., umferðaröryggisáætlun Garðabæjar.
Ingvar Arnarson, ræddi 22. tl., beiðni um umsögn varðandi legu Lyklafellslínu og Ísallínu og 5. tl., bókun Baldurs Ó. Svavarssonar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Garðahverfis. Ingvar fór fram á að bókunin verði rituð í fundargerð bæjarstjórnar.
"Bókun vegna óvæginna umæla Áslaugar Huldu Jónsdóttur á bæjarstjórnarfundi. Undirritaður vill af gefnu tilefni koma eftirfarandi bókun á framfæri, vegna bókunar formanns bæjarráðs á bæjarstjórnarfundi þann 5. nóv. sl. og varðaði skipulag á Garðaholti. Þar hafði undirritaður ekki tök á að verja sig og bókar því hér. Í bókun sinni ýjar formaðurinn ósmekklega að því að undirrót gagnrýni minnar á undarlegt einkavætt skipulag á Garðaholti stafi af hagsmunapoti vegna fyrri vinnu minnar við skoðun á möguleikum svæðisins til framtíðar. Fer í manninn frekar en boltann eins og gjarnt er um rökþrota En það kemur svo sem ekki á óvart að fulltrúi sjálfstæðimanna geri það og ýji að hagsmunapoti ? því margur heldur mig - sig. Það skal hinsvegar skýrt tekið fram að undirritaður hefur nákvæmlega engra hagsmuna að gæta vegna þessara fornu vinnu, enda fór hún fram fyrir hart nær 20 árum. Verkefninu lauk þá og er að fullu uppgert við þáverandi bæjaryfirvöld. En minna má á að sú vinna var að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra og bæjaryfirvalda sjálfstæðisflokksins sem höfðu nokkuð aðra og nútímalegri framtíðarsýn á þetta svæði, en samflokksfélagar þeirra og núverandi yfirvöld. Hins vegar þekkir undirritaður svæðið og möguleika þess betur en flestir vegna einmitt þeirrar vinnu. Betur en formaðurinn rökþrota og það er ástæða þess að ég hef beitt mér. Ég veit hverju er fórnað af verðmætum og framtíðar möguleikum þarna, auk þess sem núverandi áform gefa færi á braski sem reyndar er þegar hafið."
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bókun Baldurs Ó. Svavarssonar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Garðahverfis.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 3/11 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., húsnæðismál.
Björg Fenger, ræddi 5. tl., stafræna tilvist safnsins og 6. tl., markaðsmál 2020.
Fundargerðin lögð fram.
09
Fundargerð umhverfisnefndar frá 13/1 ´21.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., umhverfisuppgjör Garðabæjar 2019, 3. tl., tillögu um að útfæra leiðir til að innleiða fjárhagslega hvata fyrir íbúa sveitarfélagsins sem stuðla að betri flokkun og úrgangstjórnun, 4. tl., rannsóknarskýrslu um losun svifryks af gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu og 5. tl., drög að vatnaáætlun fyrir Ísland.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., friðlýsingar, 4. tl., rannsóknarskýrslu um losun svifryks af gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu og 5. tl., drög að vatnaáætlun fyrir Ísland.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 11/12 og 29/12 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi fjárhags- og starfsáætlun Strætó 2021.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi pöntunarþjónustu Strætó.
Gunnar Einarsson ræddi fjárhags- og starfsáætlun Strætó 2021.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi pöntunarþjónustu Strætó og svaraði fyrirspurn.
Björg Fenger, ræddi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi pöntunarþjónustu Strætó.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi pöntunarþjónustu Strætó.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi pöntunarþjónustu Strætó.
Fundargerðirnar lagðar fram.
14
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 8/12, 16/12 og 30/12 ´20.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 16/12, minnisblað um stöðuna í uppkeyrslu móttöku og flokkunarstöðvar og GAJA, 3. tl., fg. frá 16/12, stöðuskýrslu verkefnastjóra vegna heildarlausnar úrgangsmála á höfuðborgarsvæðinu m.v. 30.11.2020, 7. tl., fg. frá 16/12, starfsemi Góða hirðisins og 2. tl., fg. 30/12, minnisblað vegna útflutnings á endurvinnsluplasti.
Fundargerðirnar lagðar fram.
15
Kosning varafulltrúa í skólanefnd grunnskóla.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Kristjönu Sigursteinsdóttur, Smáraflöt 16, sem varamann í skólanefnd í stað Kristrúnar Frostadóttur, sem flutt er úr bæjarfélaginu.
16
Kosning fulltrúa í öldungaráð.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa Sigurð Símonarson, Strikinu 10, sem fulltrúa í öldungaráð samkvæmt tilnefningu Félags eldri borgara í Garðabæ í stað Ástbjörns Egilssonar sem er fluttur úr bæjarfélaginu.
17
Umhverfisuppgjör 2019 fyrir starfsemi Garðabæjar.
Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir vinnu við gerð umhverfisuppgjörs Garðabæjar fyrir árið 2019. Umhverfisuppgjörið hefur að geyma allar helstu upplýsingar um umhverfisþætti Garðabæjar og við vinnslu þess var fylgt leiðbeiningum Nasdaq frá 2019 meginreglum Greenhouse Gas Protocol aðferðarfræðinnar. Jóna lagði til við bæjarstjórn að samþykkja umhverfisuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2019.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Jóna Sæmundsdóttir, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til mál.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða umhverfisuppgjör Garðabæjar fyrir árið 2019.
18
Samningur við Arkitektafélag Íslands og keppnislýsing vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, gerði grein fyrir keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Arkitektafélag Íslands og keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.
19
Tillaga Garðabæjarlistans um gerð meginreglna um íbúalýðræði og endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn samþykkir að sveitarfélagið setji sér meginreglur um íbúalýðræði og taki lýðræðisstefnu Garðabæjar frá 2010 til endurskoðunar."
Greinargerð
Núgildandi lýðræðisstefna Garðabæjar var samþykkt af bæjarstjórn 6. maí 2010 því er langt um liðið og því tímabært að endurskoða stefnuna. Í stefnunni sjálfri kemur m.a. fram að það beri að meta stefnuna reglulega.
Þegar lýðræðisstefna Garðabæjar er rýnd, sem eins og fram kemur í tillögunni er samþykkt í maí 2010, má sjá að hún ber þess merki að vera barns síns tíma og um leið að vera fyrstu skrefin í slíkri vinnu sveitarfélagsins.
Næsta skref í átt að auknu íbúalýðræði er að setja sér meginreglur eins og gert er grein fyrir í handbók sveitarfélaganna um íbúalýðræði.
Almar Guðmundsson, tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun.
"Á fundi fjölskylduráðs Garðabæjar þann 13. nóvember 2019 var samþykkt að hefja vinnu við endurskoðun lýðræðisstefnu Garðabæjar, þar sem m.a. yrði fjallað sérstaklega um samráð og íbúakosningar. Starfshópur var settur saman sem samanstóð af hópi starfsmanna þvert á svið bæjarins. Vinna hófst í upphafi síðasta árs og var hún kynnt bæjarbúum á ýmsan hátt. M.a. var samráðsgátt opnuð þar sem íbúar gátu sent inn ábendingar og tillögur um leiðir til lýðræðis. Vinnu við gerð stefnunnar var frestað í apríl 2020 vegna heimsfaraldurs. Fjölskylduráð samþykkti í október sl. að hefja vinnuna aftur og hefur verið einhugur um málið innan ráðsins frá byrjun. Stefnt er að því að henni ljúki á þessu ári.
Í ljósi ofangreinds er eðlilegt að hafna framkominni tillögu."
Ingvar Arnarson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, tók til máls um framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Farmkomin tillaga er felld með átta atkvæðum (SG,ÁHJ,SHJ,GVG,JS,AG,BF,GE) gegn þremur (SDS,IA,HÞ).
20
Tillaga um göngu- og hjólaleiðir í upplandi Garðabæjar
Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Bæjarstjórn samþykkir að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði við að undirbúa skipulag á göngustíg milli Búrfells og Helgafells í samvinnu við Hafnarfjörð. Einnig að hafin verði vinna við svo kallaðan ,"Vatnastíg" hringleið sem nær milli Vífilsstaðavatns og Urriðakotsvatns og jafnvel til Hvaleyrarvatns í samvinnu við Hafnarfjörð.
Þá er lagt til að skipulagsvinna hefjist við Garðahraun efra með það í huga að koma á göngu- og hjólastíg frá Urriðaholti í átt að Vífilsstöðum með tengingu við Garðahraun neðra."
Greinargerð:
Ganga í upplandi Garðabæjar verður sífellt vinsælli og mikilvægt að tryggja fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir um upplandið. Gangandi umferð í kringum vötnin í Garðabæ hefur farið vaxandi og gaman að geta boðið uppá lengri gönguferðir í kringum þessi vinsælu vötn. Ganga á bæði Búrfell í Garðabæ og Helgafell í Hafnarfirði er vinsæl og gaman að geta tengt þessi fjöll betur saman þannig að nálgast megi þau frá tveimur áttum, þegar eru að myndast farvegir þarna á milli og mikilvægt að klára stíg þarna á milli til að vernda svæðið.
Mikilvægt er að tryggja öruggar göngu- og hjólreiðatengingar frá Urriðaholti til miðbæjar Garðabæjar og í átt að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Tengingar undir eða yfir Reykjanesbraut þarf að vinna í samvinnu við Vegagerðina.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.