Beint í efni

Tillaga um göngu og hjólaleiðir í upplandi Garðabæjar

Málsnúmer 2101301

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

29. fundur

Umhverfisnefnd fagnar samþykki bæjarstjórnar á að að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði við að undirbúa skipulag á göngustíg milli Búrfells og Helgafells í samvinnu við Hafnarfjörð. Einnig að hafin verði vinna við svo kallaðan ,"Vatnastíg" hringleið sem nær milli Vífilsstaðavatns og Urriðakotsvatns og jafnvel til Hvaleyrarvatns í samvinnu við Hafnarfjörð. Þá er lagt til að skipulagsvinna hefjist við Garðahraun efra með það í huga að koma á göngu- og hjólastíg frá Urriðaholti í átt að Vífilsstöðum með tengingu við Garðahraun neðra.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

1. (879). fundur

Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Bæjarstjórn samþykkir að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði við að undirbúa skipulag á göngustíg milli Búrfells og Helgafells í samvinnu við Hafnarfjörð. Einnig að hafin verði vinna við svo kallaðan ,"Vatnastíg" hringleið sem nær milli Vífilsstaðavatns og Urriðakotsvatns og jafnvel til Hvaleyrarvatns í samvinnu við Hafnarfjörð.
Þá er lagt til að skipulagsvinna hefjist við Garðahraun efra með það í huga að koma á göngu- og hjólastíg frá Urriðaholti í átt að Vífilsstöðum með tengingu við Garðahraun neðra."

Greinargerð:
Ganga í upplandi Garðabæjar verður sífellt vinsælli og mikilvægt að tryggja fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir um upplandið. Gangandi umferð í kringum vötnin í Garðabæ hefur farið vaxandi og gaman að geta boðið uppá lengri gönguferðir í kringum þessi vinsælu vötn. Ganga á bæði Búrfell í Garðabæ og Helgafell í Hafnarfirði er vinsæl og gaman að geta tengt þessi fjöll betur saman þannig að nálgast megi þau frá tveimur áttum, þegar eru að myndast farvegir þarna á milli og mikilvægt að klára stíg þarna á milli til að vernda svæðið.
Mikilvægt er að tryggja öruggar göngu- og hjólreiðatengingar frá Urriðaholti til miðbæjar Garðabæjar og í átt að fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Tengingar undir eða yfir Reykjanesbraut þarf að vinna í samvinnu við Vegagerðina.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.