29. fundur
29. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
10.02.2021
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2101191
01
Drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs - Í átt að hringrásarhagkerfi.
Lagt fram.
Málsnúmer 2101290
02
Áform um lögfestingu markmiðs um kolefnishlutleysi í samráðsgátt.
Lagt fram.
Málsnúmer 2009056
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2020
Formaður umhverfisnefndar fer yfir könnunina og helstu niðurstöður hennar. Könnunin hefur almennt komið vel út í Garðabæ og hafa niðurstöður hennar og vísbendingar verið nýttar til að bregðast við og bæta þjónustuna. Umhverfisnefnd leggur áherslu á nákvæma rýningu niðurstaðna og að skoða tækifæri til úrbóta.
Málsnúmer 2101333
04
Áform um friðlýsingu Garðahrauns
Umhverfisnefnd er ánægð með áform um stækkun friðlandsins í Garðahrauni.
Málsnúmer 2101174
05
Skýrsla um þörf fyrir sorpbrennslustöðvar á Íslandi
Lagt fram.
Málsnúmer 2101352
06
Samræming úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu
Umhverfisnefnd Garðabæjar tekur undir um að mikilvægt sé að samræma flokkun á höfuðborgarsvæðinu. Þá styður umhverfisnefnd tillögu starfshópsins við úrgangssöfnun á höfuðborgarsvæðinu þar sem lagt er til að fjórum úrgangsflokkum verði sérsafnað við heimili og vonar að sú tillaga verði samþykkt í öllum sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins.
Málsnúmer 1603091
07
Trjágróður á lóðamörkum
Linda Björk Jóhannsdóttir kynnir minnisblað um trjágróður á lóðarmörkum.
Málsnúmer 2101301
08
Tillaga um göngu og hjólaleiðir í upplandi Garðabæjar
Umhverfisnefnd fagnar samþykki bæjarstjórnar á að að hafin verði vinna á tækni- og umhverfissviði við að undirbúa skipulag á göngustíg milli Búrfells og Helgafells í samvinnu við Hafnarfjörð. Einnig að hafin verði vinna við svo kallaðan ,"Vatnastíg" hringleið sem nær milli Vífilsstaðavatns og Urriðakotsvatns og jafnvel til Hvaleyrarvatns í samvinnu við Hafnarfjörð. Þá er lagt til að skipulagsvinna hefjist við Garðahraun efra með það í huga að koma á göngu- og hjólastíg frá Urriðaholti í átt að Vífilsstöðum með tengingu við Garðahraun neðra.
Málsnúmer 2102035
09
Tillaga um nýtingu húsnæðis að Garðatorgi 1 fyrir starfsemi Hönnunarsafns Íslands og fjölbreytta menningarstarfsemi.
Lagt fram.
Bókun Garðabæjarlistans:
"Við í Garðabæjarlistanum fögnum ákvörðun meirihlutans að taka tvær af frábærum tillögum Garðabæjarlistans og setja þær í annan búning og leggja svo fram sem sína tillögu í bæjarstjórn þann 4. febr. s.l.
Þann 20. september 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær setti á fót sköpunarmiðstöð eða menningarhús. Einnig kom fram í þeirri tillögu að íþrótta- og tómstundaráð, menningar og safnanefnd og ungmennaráð myndu saman móta hugmyndir að menningarhúsi. Þann 18. október 2018 lagði Garðabæjarlistinn fram tillögu um að Garðabær hefji viðræður við eigendur fasteignar að Garðatorgi 1 með það að leiðarljósi að aukið rými skapist fyrir Hönnunarsafn Ísland og um leið fyrir aðra starfsemi.
Á sama augnabliki og við fögnum því að meirihlutinn taki upp okkar góðu tillögur að þá verðum við smá sorgmædd yfir þeim vinnubrögðum sem meirihlutinn viðhefur. Það að vísa okkar tillögum í nefndir og láta þær svo hverfa í svarthol tillagna til þess eins að setja þær í annan búning í sínu nafni þykir okkur vera dapurleg vinnubrögð.?
Við gerum athugasemd við að tillögur okkar hafa ekki verið ræddar í nefndum og óskum eftir að svo verði. Nefndum ber að afgreiða tillögur sem þangað koma inn.