Fundargerð bæjarráðs frá 19/1 ´21.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (879). fundur
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 13. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir.
Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 10. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032, 11. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöð á Íslandi og 12. tl., lokadrög skýrslu varðandi umhverfisuppgjör Garðabæjar.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 10. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að stefnu um meðhöndlun úrgangs 2021-2032, 11. tl., tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi skýrslu um þörf fyrir sorpbrennslustöð á Íslandi og 12. tl., lokadrög skýrslu varðandi umhverfisuppgjör Garðabæjar.
Almar Guðmundsson, ræddi 13. tl., bréf félagsmálaráðuneytisins varðandi skipun sérfræðingateymis til ráðgjafar sveitarfélögum vegna þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 8. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Brekkuás 2 og 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingum á aðalskipulagi Garðabæjar vegna breytingar á landnotkun lóðarinnar við Brekkuás 2.
Fundargerðin sem er 14 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.