Beint í efni

Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/12 ´20.

Málsnúmer 2012032F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (879). fundur

Sigurður Guðmundsson, ræddi 22. tl., beiðni um umsögn varðandi legu Lyklafellslínu og Ísallínu og 20. tl., umferðaröryggisáætlun Garðabæjar.

Ingvar Arnarson, ræddi 22. tl., beiðni um umsögn varðandi legu Lyklafellslínu og Ísallínu og 5. tl., bókun Baldurs Ó. Svavarssonar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Garðahverfis. Ingvar fór fram á að bókunin verði rituð í fundargerð bæjarstjórnar.

"Bókun vegna óvæginna umæla Áslaugar Huldu Jónsdóttur á bæjarstjórnarfundi. Undirritaður vill af gefnu tilefni koma eftirfarandi bókun á framfæri, vegna bókunar formanns bæjarráðs á bæjarstjórnarfundi þann 5. nóv. sl. og varðaði skipulag á Garðaholti. Þar hafði undirritaður ekki tök á að verja sig og bókar því hér. Í bókun sinni ýjar formaðurinn ósmekklega að því að undirrót gagnrýni minnar á undarlegt einkavætt skipulag á Garðaholti stafi af hagsmunapoti vegna fyrri vinnu minnar við skoðun á möguleikum svæðisins til framtíðar. Fer í manninn frekar en boltann eins og gjarnt er um rökþrota En það kemur svo sem ekki á óvart að fulltrúi sjálfstæðimanna geri það og ýji að hagsmunapoti ? því margur heldur mig - sig. Það skal hinsvegar skýrt tekið fram að undirritaður hefur nákvæmlega engra hagsmuna að gæta vegna þessara fornu vinnu, enda fór hún fram fyrir hart nær 20 árum. Verkefninu lauk þá og er að fullu uppgert við þáverandi bæjaryfirvöld. En minna má á að sú vinna var að frumkvæði þáverandi bæjarstjóra og bæjaryfirvalda sjálfstæðisflokksins sem höfðu nokkuð aðra og nútímalegri framtíðarsýn á þetta svæði, en samflokksfélagar þeirra og núverandi yfirvöld. Hins vegar þekkir undirritaður svæðið og möguleika þess betur en flestir vegna einmitt þeirrar vinnu. Betur en formaðurinn rökþrota og það er ástæða þess að ég hef beitt mér. Ég veit hverju er fórnað af verðmætum og framtíðar möguleikum þarna, auk þess sem núverandi áform gefa færi á braski sem reyndar er þegar hafið."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bókun Baldurs Ó. Svavarssonar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Garðahverfis.

Fundargerðin lögð fram.