Beint í efni

Samningur við Arkitektafélag Íslands og keppnislýsing vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.

Málsnúmer 2009024

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

1. (879). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, gerði grein fyrir keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Arkitektafélag Íslands og keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. (1959). fundur

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

49. (1957). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og formaður dómnefndar um samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti kynnti hugmyndir um verðlaunafé.

Bæjarráð samþykkir tillögu dómnefndar að heildarverðlaunafé verði kr. 9.000.000 án vsk. og að stefnt verði að því að veita þrenn verðlaun. Fjárhæð 1. verðlauna skal vera kr. 4.500.000 án vsk.

Bæjarráð samþykkir að auk verðlauna hafi dómnefnd heimild til að veita sérstaka viðurkenningu á keppnistillögu að fjárhæða allt að kr. 1.000.000 án vsk. Dómnefnd getur einnig veitt athyglisverðri tillögu viðurkenningu, en það er viðurkenning án peningverðlauna.

Bæjarráð Garðabæjar

04

44. (1952). fundur

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi aðila sem fulltrúa Garðabæjar í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs.
Kristjana Sigursteinsdóttir, formaður leikskólanefndar.
Hrefna Gunnarsdóttir, leikskólakennari í Urriðaholtsskóla.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

12. (871). fundur

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um hönnun leikskóla í Urriðaholti.
Skipa skal fimm manna dómnefnd vegna samkeppninnar og skal hún skipuð þremur fulltrúum tilnefndum af Garðabæ og tveimur fulltrúum frá Arkitektafélagi Íslands.
Dómnefndin skal semja keppnislýsingu og gera nánari afmörkun á verkefninu. Gera skal ráð fyrir að samkeppnin hefjist á árinu 2020.“

Greinargerð:
Í deiliskipulagi sem samþykkt var 28. janúar 2014 fyrir norðurhluta 1 í Urriðaholti er gert ráð fyrir 6.176 m2 lóð undir leikskóla. Leikskólalóðin er við Holtsveg neðan götu og opnast út að grænu svæði sem liggur frá efri hluta holtsins niður í átt að Kauptúni.
Íbúðabyggð í Urriðaholti er í örum vexti og búa nú um 2500 íbúar á svæðinu. Gert er ráð fyrir að íbúafjöldi verði í hverfinu fullbyggðu um 5000. Í Urriðaholtsskóla eru nú 156 börn á leikskólaaldri í 7 deildum. Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ eru fyrirheit um að skoða möguleika á lausnum fyrir foreldra vegna vistunar barna um leið og fæðingarorlofi lýkur. Jafnframt að inntaka í leikskóla sveitarfélagsins verði a.m.k. tvisvar á ári. Fyrirhugaður 6 deildar leikskóli er meðal annars til að koma til móts við þau markmið.
Bæjarstjóra er falið að undirbúa framgang ofangreindrar tillögu og upplýsa bæjarráð reglulega um stöðu verkefnisins.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að efna til samkeppni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands um hönnun leikskóla í Urriðaholti.