49. (1957). fundur
49. (1957). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
15.12.2020
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
- Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.
Dagskrá
Málsnúmer 2001444
01
COVID-19 - neyðarstig almannavarna.
Á fund bæjarráðs kom Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna og fór almennt yfir stöðuna í baráttunni við farsóttina. Jón Viðar gerði grein fyrir undirbúningi bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu en verkefnið er samstarfsverkefni sveitafélaganna og heilsugæslunnar. Jón Viðar upplýsti að ákveðið hefur verið að veita ekki leyfi í ár fyrir áramótabrennu og til skoðunar er hvort unnt verði að hafa flugeldasýningar á vegum sveitarfélaganna.
Upplýst var um nýjar reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi sem tóku gildi í síðustu viku. Reglugerð um takmörkun á samkomum gildir til 12. janúar 2021 en reglugerð um skólastarf til 31. desember 2020.
Bæjarfulltrúarnir Sara Dögg Svanhildardóttir og Jóna Sæmundsdóttir voru á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 8.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri var á fundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1, 2 og 8.
Málsnúmer 1904109
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - viðauki 15.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Launakostnaður
Á árinu 2020 stefnir í að kostnaður vegna langtímaveikinda þe. veikindi starfsmanna sem vara samfellt 3 mánuði og lengur nemi um 145 m.kr. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 25 m.kr. á skólaskrifstofu til að mæta þessum kostnaði. Kostnaður umfram fjárhagsáætlun nemur því um 120 m.kr.
Skipting á málaflokka er eftirfarandi.
Félagsþjónustusvið kr. 29.000.000
Fræðslumál kr. 82.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál kr. 6.000.000
Eignasjóður kr. 3.000.000
Samtals kr. 120.000.000
Rekstrarframlag til Hrafnistu vegna Ísafoldar
Aukin framlög vegna viðaukasamnings við Hrafnistu sem samþykkt var í bæjarráði 20. október sl.
Rekstrarframlag kr. 1.400.000 02472-9990
Snjómokstur og hálkuvarnir
Ljóst er að kostnaður vegna hálkuvarna og snjómoksturs stenst ekki áætlun ársins. Staðan í nóv. er þannig að kostnaður er kominn 16 millj. fram úr áætlun Lagt er því til að bæta við 35 millj. við áætlun.
Hálkuvarnir og snjómokstur kr. 35.000.000 10610-4521
Kostnaðarauki samtals kr. 156.400.000
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur nú endurreiknað framlög til sveitarfélaga vegna viðbótarframlags frá ríkinu til að vega upp á móti lægri framlögum til sjóðsins 2020.
Málefni fatlaðra kr. 46.000.000 00100-0148
Framlög vegna sérþ. fatlaðs fólks kr. 26.000.000 00100-0142
Samtals kr. 72.000.000
Mismunur -84.400.000 Lækkun á handbæru fé.
Málsnúmer 2011058
03
Maríugata 23 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tyrfingi Sigurðssyni, kt. 281089-2509, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 23.
Málsnúmer 2011059
04
Maríugata 25 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tyrfingi Sigurðssyni, kt. 281089-2509, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 25.
Málsnúmer 2011060
05
Maríugata 27 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tyrfingi Sigurðssyni, kt. 281089-2509, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 27.
Málsnúmer 2011055
06
Maríugata 29 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Skoðun ehf., kt. 640908-0920, kt. 281089-2509, leyfi til að byggja raðhús að Maríugötu 29.
Málsnúmer 2012137
07
Bréf SSH varðandi erindi Fjölsmiðjunnar um fjárstuðning, dags. 09.12.20.
Bæjarráð samþykkir að veita Fjölsmiðjunni viðbótarframlag á árinu 2020 að fjárhæð kr. 150.000.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012149
08
Bréf SSH varðandi málefni skíðasvæðanna, dags 08.12.20.
Á fund bæjarráð kom Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH og gerði grein fyrir minnisblaði verkefnahóps um uppbyggingu og rekstur á skíðasvæðunum ásamt viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018. Í viðaukanum koma fram breytingar á tímasetningu framkvæmda og áætluðum framkvæmdakostnaði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka II við samkomulag um endurnýjun á uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 7. maí 2018, enda verði hann samþykktur í öllum aðildarsveitarfélögunum.
Málsnúmer 2012150
09
Bréf SSH varðandi stafrænt ráð sveitarfélaga, dags. 09.12.20.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja þátttöku Garðabæjar í kostnaði á árinu 2021 vegna stofnunar á miðlægu tækniteymi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hlutur Garðabæjar er um 2,5 mkr. Samþykktin er með skilyrði um almenna þátttöku sveitarfélaga í verkefninu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2011331
10
Álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna framkvæmd fjarfunda, dags. 07.12.20.
Lagt fram álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þar sem því er beint til sveitarstjórna að viðhafa beina vefútsendingu frá fundum sveitarstjórna sem haldnir eru með fjarfundarbúnaði.
Garðabær virðir álit ráðuneytisins og hlítir niðurstöðu þess. Það vekur hins vegar undrun að ráðuneytið hafið valið þá leið að fjalla um málið í almennu áliti og boða frekari fyrirmæli vegna málsins þegar það lá fyrir þegar álitið var birt að fundur bæjarstjórnar Garðabæjar hafði verið sendur út í beinu vefstreymi.
Þá þykir rétt að benda á að samkvæmt auglýsingu ráðuneytisins varðandi heimild til að nota fjarfundarbúnað á fundum sveitarstjórnar er vikið frá tilteknum skilyrðum í 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011 þar sem fjallað er um fjarfundi en ákvæðið mælir ekki fyrir um að fjarfundir skulu vera í beinu streymi á vef sveitarfélags.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2009024
11
Samningur um keppnislýsingu vegna samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður bæjarráðs og formaður dómnefndar um samkeppni um hönnun leikskóla í Urriðaholti kynnti hugmyndir um verðlaunafé.
Bæjarráð samþykkir tillögu dómnefndar að heildarverðlaunafé verði kr. 9.000.000 án vsk. og að stefnt verði að því að veita þrenn verðlaun. Fjárhæð 1. verðlauna skal vera kr. 4.500.000 án vsk.
Bæjarráð samþykkir að auk verðlauna hafi dómnefnd heimild til að veita sérstaka viðurkenningu á keppnistillögu að fjárhæða allt að kr. 1.000.000 án vsk. Dómnefnd getur einnig veitt athyglisverðri tillögu viðurkenningu, en það er viðurkenning án peningverðlauna.
Málsnúmer 2007120
12
Bréf Magnúsar Kristinssonar varðandi álagningu byggingarréttargjalds af hesthúsalóð við Andvaravelli 2A, ódags.
Í bréfinu er farið fram á lækkun á gatnagerðargjöldum og byggingarréttargjaldi vegna úthlutunar á hesthúsalóð við Andvaravelli 2A.
Bæjarráð hefur ekki heimild til að lækka lögbundinn gjöld eins og gatnagerðargjöld. Álagning byggingarréttargjalds byggir á samþykkt bæjarráðs frá fundi 25. september 2018 þar sem fram kemur að álagning gjaldsins skuli nema sömu fjárhæð og gatnagerðargjald.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið nánar og ræða við bréfritara.
Málsnúmer 2011371
13
Fyrirspurn Garðabæjarlistans um umbun til starfsmanna leik- og grunnskóla.
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012025
14
Tillaga Garðabæjarlistans um að Garðabær innleiði Framfaravogina, mælitæki sem mælir velsæld bæjarbúa.
Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjóra að afla upplýsinga og láta kanna kosti og galla þess að innleiða Framfaravogina sem mælir velsæld bæjarbúa og almennt að skoða heildstæða nálgun á mælingum í starfsemi bæjarins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2012162
15