Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (878). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Launakostnaður
Á árinu 2020 stefnir í að kostnaður vegna langtímaveikinda þ.e. veikindi starfsmanna í einn mánuð eða fleiri nemi um 145 m.kr. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 25 mkr. á skólaskrifstofu til að mæta þessum kostnaði. Kostnaður umfram fjárhagsáætlun nemur því um 120 m.kr.
Skipting á málaflokka er eftirfarandi.
Félagsþjónustusvið kr. 29.000.000
Fræðslumál kr. 82.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál kr. 6.000.000
Eignasjóður kr. 3.000.000
Samtals kr. 120.000.000
Rekstrarframlag til Hrafnistu vegna Ísafoldar
Aukin framlög vegna viðaukasamnings við Hrafnistu sem samþykkt var í bæjarráði 20. október sl.
Rekstrarframlag kr. 1.400.000 02472-9990
Snjómokstur og hálkuvarnir
Ljóst er að kostnaður vegna hálkuvarna og snjómoksturs stenst ekki áætlun ársins. Staðan í nóv. er þannig að kostnaður er kominn 16 mkr. fram úr áætlun Lagt er því til að bæta við 35 mkr við áætlun.
Hálkuvarnir og snjómokstur kr. 35.000.000 10610-4521
Kostnaðarauki samtals kr. 156.400.000
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur nú endurreiknað framlög til sveitarfélaga vegna viðbótarframlags frá ríkinu til að vega upp á móti lægri framlögum til sjóðsins 2020.
Málefni fatlaðra kr. 46.000.000 00100-0148
Framlög vegna sérþ. fatlaðs fólks kr. 26.000.000 00100-0142
Samtals kr. 72.000.000
Mismunur - 84.400.000 Lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð Garðabæjar
02
49. (1957). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 15 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Launakostnaður
Á árinu 2020 stefnir í að kostnaður vegna langtímaveikinda þe. veikindi starfsmanna sem vara samfellt 3 mánuði og lengur nemi um 145 m.kr. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 25 m.kr. á skólaskrifstofu til að mæta þessum kostnaði. Kostnaður umfram fjárhagsáætlun nemur því um 120 m.kr.
Skipting á málaflokka er eftirfarandi.
Félagsþjónustusvið kr. 29.000.000
Fræðslumál kr. 82.000.000
Æskulýðs- og íþróttamál kr. 6.000.000
Eignasjóður kr. 3.000.000
Samtals kr. 120.000.000
Rekstrarframlag til Hrafnistu vegna Ísafoldar
Aukin framlög vegna viðaukasamnings við Hrafnistu sem samþykkt var í bæjarráði 20. október sl.
Rekstrarframlag kr. 1.400.000 02472-9990
Snjómokstur og hálkuvarnir
Ljóst er að kostnaður vegna hálkuvarna og snjómoksturs stenst ekki áætlun ársins. Staðan í nóv. er þannig að kostnaður er kominn 16 millj. fram úr áætlun Lagt er því til að bæta við 35 millj. við áætlun.
Hálkuvarnir og snjómokstur kr. 35.000.000 10610-4521
Kostnaðarauki samtals kr. 156.400.000
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur nú endurreiknað framlög til sveitarfélaga vegna viðbótarframlags frá ríkinu til að vega upp á móti lægri framlögum til sjóðsins 2020.
Málefni fatlaðra kr. 46.000.000 00100-0148
Framlög vegna sérþ. fatlaðs fólks kr. 26.000.000 00100-0142
Samtals kr. 72.000.000
Mismunur -84.400.000 Lækkun á handbæru fé.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
16. (875). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 11
Covid útgjöld
Eftirfarandi kostnaður hefur fallið á málaflokka vegna Covid útgjalda.
Kostnaður sem forstöðumenn voru beðnir um að merkja með sérstöku verknúmeri og er vegna beins útlagðs kostnaður vegna Covid 19 heimsfaraldurs.
Um er að ræða hreinlætisvörur, hanskar, grímur, spritt, viðbót við tölvubúnað sem nauðsynlegur var vegna fjarfunda og fleira.
Fjölskyldusvið 300.000 02-xxxx
Fræðslumál 15.000.000 04-xxxx
Menningarmál 700.000 05-xxxx
Æskulýðs og íþróttamál 2.000.000 06-xxxx
Umhverfismál 200.000 11-xxxx
Sameiginlegur kostnaður 2.600.000 21-xxxx
Eignasjóður 200.000 31-xxxx
Samtals 21.000.000
Fjölskyldusvið
Samningur við Vinakot vegna búsetuúrræða sem gert var ráð fyrir hluta ársins að fjárhæð 44,5 millj. kr. var framlengdur út árið. Jafnframt hefur reynst nauðsynlegt að kaupa sérfræðiráðgjöf sem snýr að atferlisþjálfun.
Aðkeypt sólarhringsþjónusta 44.500.000 02530-4382
Aðkeypt sérfræðisþjónusta 500.000 02530-4990
Samtals 45.000.000
Fjármögnun:
Kostnaðarauka skal mætt með seldum byggingarrétti
Byggingarréttur -66.000.000 31400-0397
Viðauki 12
Breyting á fjárfestingaáætlun
Lagt er til að eftirfarandi breyting verði gerð á fjárfestingaráætlun 2020.
Við upphaflega áætlun var gert ráð fyrir nettó tölu vegna byggingar fjölnota íþróttahúss. Sú breyting er gerð að tekjufæra sölu byggingarréttar á málaflokk 31 (eignasjóður) og færa heildarkostnað vegna byggingar fjölnota íþróttahúss á framkvæmdaáætlun.
Fjárfestingar:
Skólahúsnæði 108.000.000
Framlag Urriðaholts -110.000.000
Íþróttamannvirki 32.000.000
Fjölnota íþróttahús 1.000.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlaða -190.000.000
Vífilsstaðaland -211.800.000
Samtals 628.200.000
Fjármögnun:
Seldur byggingarréttur -628.200.000 31400-0397
Viðauki 13
Lækkun tekna vegna Covid-19.
Vegna heimsfaraldurs Covid-19 verður að breyta áætlun útsvarstekna, vegna gríðarlegra breytinga á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að útsvarstekjur á árinu 2020 verði um 400 millj. kr. lægri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir.
Staðgreiðsla útsvars 400.000.000 00010-0021
Leikskólagjöld og gjöld í tómstundaheimilum hafa verið felld niður þegar börn hafa verið í sóttkví eða veik vegna Covid-19.
Þjónustugjöld hafa verið lækkuð eða felld niður vegna lokunar og skertrar þjónustu.
Leikskólagjöld 37.000.000
Þjónustugjöld tómstundaheimila 14.000.000
Samtals 51.000.000
Viðauki 14
Vegna samþykktar bæjarstjórnar um almenningssamgöngur í Urriðaholti þar af bæta við 13 millj. kr á fjárhagsáætlun til að mæta kostnaði við verkefnið.
Strætó 13.000.000 10720-9195
Fjármögnun:
Lækkun rekstrarafgangs -13.000.000
Millifærsla milli A- og B- sjóðs
Hjúkrunarheimilið Ísafold var rekið sem B-deildar fyrirtæki Garðabæjar á árunum 2013 - 2017. Halli var á rekstrinum öll árin. Samkvæmt reikningsskilaaðferðum sveitarfélaganna ber að gera reikningskil við lok starfsemi B-deildarfyrirtækja milli A og B sjóðs. Þar sem Garðabær var í málaferlum við ríkið vegna hallareksturs stofnunarinnar var ekki gengið frá þessu uppgjöri og ákveðið að bíða með það þangað til niðurstaða dóms lægi fyrir. Nú þykir því rétt að gera upp þessi reikningskil milli A- og B- sjóðs enda liggur fyrir niðurstaða með dómi Hæstaréttar. Það er því fullreynt að ríkið mun ekki standa skil á verkefninu gagnvart Garðabæ.
Niðurstaðan hefur engin áhrif á samantekin reikningsskil.
Hjúkrunarheimili uppgjör A sjóður 538.000.000
Hjúkrunarheimili uppgjör B- sjóður -538.000.000
Engin áhrif á heildarrekstur.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
16. (875). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 8
Í byrjun sl. sumars var gerður viðauki vegna atvinnuátaks ungs fólks vegna áhrifa af Covid-19. Viðaukinn sem var gerður var byggður á áætlun miðað við umsóknir sem þá lágu fyrir. Nokkur frávik urðu á þessari áætlun, sem skýra má vegna þess að það skiluðu sér ekki allir í vinnu og sumir unnu styttra en áætlað var. Einnig tókst ekki að ná þeim fjölda sem til stóð í atvinnuátak með endurgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna þeirra takmarkana sem þær reglur gerðu ráð fyrir.
Miklu fleiri ungmenni sóttu vinnuskólann en áætlun gerði ráð fyrir, vegna slæmrar stöðu á vinnumarkaði.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar:
Sumarátak ungs fólks -lækkun kostnaðar 56.000.000 11330-
Sumarátak með þátttöku Vinnumálastofnunar
Kostnaður lægri en áætlað var 19.500.000 11340-
Þátttaka Vinnumálastofnunar lægri en áætlað -18.200.000 11340-
Kostnaður umfram áætlun 1.300.000
Samtals lægri kostnaður sumarátaks 57.300.000
Vinnuskóli Garðabæjar viðbótarkostnaður 61.200.000 6271-
Mismunur kostnaðarauki 3.900.000
Kostnaðarauka mætt með hækkun tekna
af fasteignagjöldum vegna nýrra eigna.
Fasteignaskattur -3.900.000 00060-0011
Viðauki 9
Vegna nýrra kjarasamninga á árinu 2020 þarf að leiðrétta launaliði stofnana umfram það sem fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir að launaliðir hækkuðu. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 200 millj. kr. varasjóði sem m.a. átti að nýta til að leiðrétta launaliði mv. niðurstöðu kjarasamninga.
Félagsþjónustusvið 16.000.000 02-
Fræðslusvið 216.000.000 04-
Menningarmál 1.000.000 05-
Æskulýðs- og íþróttasvið 15.000.000 06-
Skipulags- og byggingamál 2.000.000 09-
Umhverfismál 4.000.000 11-
Sameiginlegur kostnaður 7.000.000 21-
Þjónustumiðstöð 4.000.000 31-
Samveitur 2.000.000 43-
Samtals 267.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Varasjóður 163.000.000 31916-7179
Útgjaldajöfnunarframlag 29.000.000 00100-0110
Grunnskólaframlag 45.000.000 00100-0141
Seldur byggingarréttur 30.000.000 31400-0397
Samtals 267.000.000
Viðauki 10
Fjölskyldusvið
Á fjölskyldusviði þarf að hækka fjárheimildir vegna þjónustu við fatlað fólk og kostnaðarauka við reksturs búsetukjarna við Unnargrund sem er til kominn vegna næturvakta og hækkunar á launum samkvæmt nýjum kjarasamningum.
Samtals 54.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti.
Seldur byggingarréttur -54.000.000 31400-0397
Bæjarráð Garðabæjar
05
43. (1951). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. nr. 11, 12, 13 og 14 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 11
Covid útgjöld
Eftirfarandi kostnaður hefur fallið á málaflokka vegna covid útgjalda.
Kostnaður sem forstöðumenn voru beðnir um að merkja með sérstöku verknúmeri og er vegna beins útlagðs kostnaður vegna Covid 19 heimsfaraldurs.
Um er að ræða hreinlætisvörur, hanskar, grímur, spritt, viðbót við tölvubúnað sem nauðsynlegur var vegna fjarfunda og fleira.
Fjölskyldusvið 300.000 02-xxxx
Fræðslumál 15.000.000 04-xxxx
Menningarmál 700.000 05-xxxx
Æskulýðs og íþróttamál 2.000.000 06-xxxx
Umhverfismál 200.000 11-xxxx
Sameiginlegur kostnaður 2.600.000 21-xxxx
Eignasjóður 200.000 31-xxxx
Samtals 21.000.000
Fjölskyldusvið
Samningur við Vinakot vegna búsetuúrræða sem gert var ráð fyrir hluta ársins að fjárhæð 44,5 millj. kr. var framlengdur út árið.
Jafnframt hefur reynst nauðsynlegt að kaupa sérfræðiráðgjöf sem snýr að atferlisþjálfun.
Aðkeypt sólarhringsþjónusta 44.500.000 02530-4382
Aðkeypt sérfræðisþjónusta 500.000 02530-4990
Samtals 45.000.000
Fjármögnun:
Kostnaðarauka skal mætt með seldum byggingarrétti
Byggingarréttur -66.000.000 31400-0397
Viðauki 12
Breyting á fjárfestingaáætlun
Lagt er til að eftirfarandi breyting verði gerð á fjárfestingaráætlun 2020.
Við upphaflega áætlun var gert ráð fyrir nettó tölu vegna byggingar fjölnota íþróttahús. Sú breyting er nú gerð að tekjufæra byggingarétt í málaflokki 31 eignasjóði, en færa ekki tekjur á móti kostnaði við byggingu mannvirkisins.
Fjárfestingar:
Skólahúsnæði 108.000.000
Framlag Urriðaholts -110.000.000
Íþróttamannvirki 32.000.000
Fjölnota íþróttahús 1.000.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlaða -190.000.000
Vífilsstaðaland -211.800.000
Samtals 628.200.000
Fjármögnun:
Seldur byggingarréttur -628.200.000 31400-0397
Viðauki 13
Lækkun tekna vegna Covid-19
Vegna heimsfaraldurs Covid 19 verður að breyta áætlun útsvarstekna, vegna gríðarlegra breytinga á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að útsvarstekjur á árinu 2020 verði um 400 millj. kr. lægri en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir
Staðgreiðsla útsvars 400.000.000 00010-0021
Leikskólagjöld og gjöld í tómstundaheimilum hafa verið felld niður þegar börn hafa verið í sóttkví eða veik vegna Covid-19.
Þjónustugjöld hafa verið lækkuð eða felld niður vegna lokunar og skertrar þjónustu
Leikskólagjöld 37.000.000
Þjónustugjöld tómstundaheimila 14.000.000
Samtals 51.000.000
Viðauki 14
Vegna samþykktar bæjarstjórnar um almenningssamgöngur í Urriðaholti þar af bæta við 13 millj. kr á fjárhagsáætlun til að mæta kostnaði við verkefnið.
Strætó 13.000.000 10720-9195
Fjármögnun:
Lækkun rekstrarafgangs -13.000.000
Millifærsla milli A- og B- sjóðs
Hjúkrunarheimilið Ísafold var rekið sem B-deildar fyrirtæki Garðabæjar á árunum 2013 - 2017. Halli var á rekstrinum öll árin. Samkvæmt reikningsskilaaðferðum sveitarfélaganna ber að gera reikningskil við lok starfsemi B-deildarfyrirtækja milli A og B sjóðs. Þar sem Garðabær var í málaferlum við ríkið vegna hallareksturs stofnunarinnar var ekki gengið frá þessu uppgjöri og ákveðið að bíða með það þangað til niðurstaða dóms lægi fyrir. Nú þykir því rétt að gera upp þessi reikningskil milli A- og B- sjóðs enda liggur fyrir niðurstaða með dómi Hæstaréttar. Það er því fullreynt að ríkið mun ekki standa skil á verkefninu gagnvart Garðabæ.
Niðurstaðan hefur engin áhrif á samantekin reikningsskil.
Hjúkrunarheimili uppgjör A sjóður 538.000.000
Hjúkrunarheimili uppgjör B- sjóður -538.000.000
Engin áhrif á heildarrekstur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir útkomuspá 2020 að teknu tilliti til ofangreindra viðauka.
Bæjarráð Garðabæjar
06
41. (1949). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 8, 9 og 10 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 8
Sumarstörf
Í byrjun sl. sumars var gerður viðauki vegna atvinnuátaks ungs fólks vegna áhrifa af Covid-19. Viðaukinn sem var gerður var byggður á áætlun miðað við umsóknir sem þá lágu fyrir. Nokkuð frávik urðu á þessari áætlun, sem skýra má vegna þess að það skiluðu sér ekki allir í vinnu og sumir unnu styttra en áætlað var. Einnig tókst ekki að ná þeim fjölda sem til stóð í atvinnuátak með endurgreiðslu Vinnumálastofnunar vegna þeirra takmarkana sem þær reglur gerðu ráð fyrir.
Miklu fleiri ungmenni sóttu vinnuskólann en áætlun gerði ráð fyrir, vegna slæmrar stöðu á vinnuarkaði.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar:
Sumarátak ungs fólks -lækkun kostnaðar 56.000.000 11330-
Sumarátak með þátttöku Vinnumálastofnunar
Kostnaður lægri en áætlað var 19.500.000 11340-
Þátttaka Vinnumálastofnunar lægri en áætlað -18.200.000 11340-
Kostnaður umfram áætlun 1.300.000
Samtals lægri kostnaður sumarátaks 57.300.000
Vinnuskóli Garðabæjar viðbótarkostnaður 61.200.000 6271-
Mismunur kostnaðarauki 3.900.000
Kostnaðarauka mætt með hækkun tekna
af fasteignagjöldum vegna nýrra eigna.
Fasteignaskattur -3.900.000 00060-0011
Viðauki 9
Vegna nýrra kjarasamninga á árinu 2020 þarf að leiðrétta launaliði stofnana umfram það sem fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir að launaliðir hækkuðu. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir 200 millj. kr. varasjóði sem m.a. átti að nýta til að leiðrétta launaliði mv. niðurstöðu kjarasamninga.
Lagt er til að eftirfarandi fjárhæðir fari til hver sviðs:
Félagsþjónustusvið 16.000.000 02-
Fræðslusvið 216.000.000 04-
Menningarmál 1.000.000 05-
Æskulýðs- og íþróttasvið 15.000.000 06-
Skipulags- og byggingamál 2.000.000 09-
Umhverfismál 4.000.000 11-
Sameiginlegur kostnaður 7.000.000 21-
Þjónustumiðstöð 4.000.000 31-
Samveitur 2.000.000 43-
Samtals 267.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Varasjóður 163.000.000 31916-7179
Útgjaldajöfnunarframlag 29.000.000 00100-0110
Grunnskólaframlag 45.000.000 00100-0141
Seldur byggingarréttur 30.000.000 31400-0397
Samtals 267.000.000
Viðauki 10
Fjölskyldusvið
Á fjölskyldusviði þarf að hækka fjárheimildir vegna þjónustu við fatlað fólk og kostnaðarauka við reksturs búsetukjarna við Unnargrund sem er til kominn vegna næturvakta og hækkunar á launumnýrra kjarasamninga.
Samtals 54.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti.
Seldur byggingarréttur -54.000.000 31400-0397
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
14. (873). fundur
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 500.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 0,75% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 14 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 500.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til viðbyggingar við grunnskóla á Álftanesi og byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 500.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
14. (873). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 7.
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 m.kr. Með viðauka nr. 1 sem samþykktur var í bæjarstjórn 04.06.2020 var samþykkt hækkun á lántöku að fjárhæð 375 mkr eða samtals lántökuheimild 2.175 mkr
Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um kr. 500 mkr og verði 2.675 mkr.
Bæjarráð Garðabæjar
09
38. (1946). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 7.
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 m.kr. Með viðauka nr. 1 sem samþykktur var í bæjarstjórn 04.06.2020 var samþykkt hækkun á lántöku að fjárhæð 375 mkr eða samtals lántökuheimild 2.175 mkr
Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um kr. 500 mkr og verði 2.675 mkr.
Bæjarráð Garðabæjar
10
38. (1946). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 500 mkr verðtryggt með 0,75% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 14 ára.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fyrir liggja drög að lánssamningi.
Bæjarráð Garðabæjar
11
31. (1939). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögu að viðaukum nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 5 og 6 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 5 - æskulýðs- og íþróttamál.
Aðgangseyrir sundlauga kr. 9.000.000
Útleiga fasteigna kr. 2.500.000
Félagsmiðstöðvar (velferð barna og ungmenna) kr. 2.000.000
Covid útgjöld kr. 2.000.000
Hestamannafélagið Sóti (bygging reiðskemmu) kr. 10.000.000
Styrkur til íþrótta og heilsurækt kvenna (19. júní sjóður) kr. 4.000.000
Ásgarður íþróttamiðstöð v. lokunar sundlaugar kr. -1.000.000
Mýrin íþróttamiðstöð kr. -500.000
Íþróttahús Sjálandsskóla kr. -500.000
Aðrir styrkir til íþrótta- og æskulýðsmála kr. -2.000.000
Samtals breyting kr. 25.500.000
Kostnaðarauka mætt.
Niðurlagning á 19. júní sjóði samkvæmt
samþykkt bæjarstjórnar frá 4. júní 2020 kr. 24.900.000
Lækkun á varasjóði kr. 600.000
Viðauki 6 - hreinlætismál.
Leggja þarf Sorpu bs. til aukið fjármagn á árinu 2020 til að takast á við vanda vegna ófjármagnaðra fjárfestinga sbr. tillögu stjórnar byggðasamlagsins sem samþykkt var á fundi bæjarráðs 7. júlí 2020.
Lagt er til að eigendur leggi til Sorpu bs. 1.000 mkr. á árunum 2020 og 2021 eða 500 mkr. hvort ár. Hlutur Garðabæjar nemur 36,3 mkr. á árinu 2020.
Stofnframlag til Sorpu 08210-9911 kr. 36.300.000
Kostnaðarauka mætt.
Lækkun á varasjóði 31916-7179 kr. -36.300.000
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
9. (868). fundur
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 600.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,5% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 600.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til byggingar grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingar við grunnskóla á Álftanesi og byggingar fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
"Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 600.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun með viðaukum fyrir árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
9. (868). fundur
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1.
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 mkr.
Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um 375 mkr og verði 2.175 mkr.
Viðauki 2.
Fjölskyldusvið
Fjárhagsaðstoð 26.000.000 02110-9112
Sérstök niðurgreiðsla húsaleigu 12.000.000 02180-9179
Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 18.350.000 02582-4990
Stoðþjónusta (frekari liðveisla) 80.300.000 02530-4382
Sambýli viðbótarkostnaður 14.000.000 ýmsir lyklar
Kostnaðarauki vegna kaupa á Covid vörum 1.000.000 ýmsir lyklar
Akstursþjónusta fatlaðs fólks -5.000.000 02590-4118
Félagsleg heimaþjónusta -5.000.000 02150-4990
Afsláttur fasteignagjalda eldri borgara -18.000.000 02415-9916
Jónshús - áhrif lokunar -2.000.000 ýmsir lyklar
Samtals kostnaðarauki félagsþjónusta 121.650.000
Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -121.650.000 31400-0397
Viðauki 3.
Á fundi bæjarráðs þann 5. maí 2020 var samþykkt að ráða öll ungmenni í sumarvinnu og var umsóknarfrestur til 31. maí 2020.
Atvinnuátak ungs fólks laun 166.000.000 11330-
Efni 10.000.000 11330-
Endurgreiðsla frá ríki -58.100.000 11340-
Launakostnaður 74.350.000 11340-
Efni 5.000.000 11340-
Samtals viðbótarkostnaður 197.250.000
Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -154.350.000
Lækkun á rekstrarafgangi 42.900.000
Viðauki 4.
Breyting á fjárfestingaáætlun
Samveitur 100.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 100.000.000
Bæjargarður - útivistarstígur -50.000.000
Garðatorg -100.000.000
Minjagarður við Hofsstaði -50.000.000
Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -154.350.000
Lækkun á rekstrarafgangi 42.900.000
Bæjarráð Garðabæjar
14
21. (1929). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 1-4 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2020 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 1.
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 1.800 m.kr.
Lagt er til að lántökuheimild ársins hækki um 375 mkr og verði 2.175 mkr.
Viðauki 2.
Fjölskyldusvið
Fjárhagsaðstoð 26.000.000 02110-9112
Sérstök niðurgreiðsla húsaleigu 12.000.000 02180-9179
Lengd viðvera fatlaðra ungmenna 18.350.000 02582-4990
Stoðþjónusta (frekari liðveisla) 80.300.000 02530-4382
Sambýli viðbótarkostnaður 14.000.000 ýmsir lyklar
Kostnaðarauki vegna kaupa á Covid vörum 1.000.000 ýmsir lyklar
Akstursþjónusta fatlaðs fólks -5.000.000 02590-4118
Félagsleg heimaþjónusta -5.000.000 02150-4990
Afsláttur fasteignagjalda eldri borgara -18.000.000 02415-9916
Jónshús - áhrif lokunar -2.000.000 ýmsir lyklar
Samtals kostnaðarauki félagsþjónusta 121.650.000
Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -121.650.000 31400-0397
Viðauki 3.
Á fundi bæjarráðs þann 5. maí 2020 var samþykkt að ráða öll ungmenni í sumarvinnu sem sótt hafa um og skráð verða á biðlista til 31. maí 2020.
Atvinnuátak ungs fólks laun 166.000.000 11330-
Efni 10.000.000 11330-
Endurgreiðsla frá ríki -58.100.000 11340-
Launakostnaður 74.350.000 11340-
Efni 5.000.000 11340-
Samtals viðbótarkostnaður 197.250.000
Kostnaðarauka skal mætt með sölu á lóðum -154.350.000
Lækkun á rekstrarafgangi 42.900.000
Viðauki 4.
Breyting á fjárfestingaáætlun
Samveitur 100.000.000
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk 100.000.000
Bæjargarður útivistarstígur -50.000.000
Garðatorg -100.000.000
Minjagarður við Hofsstaði -50.000.000
Bæjarráð Garðabæjar
15
21. (1929). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1-2.
Fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku, hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 600.000.000, verðtryggt með 1,5% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
16
16. (1925). fundur
Bæjarráð samþykkir að veita eftirfarandi aðilum styrki samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun 2020.
Garðálfar , kór eldri borgra á Álftanesi kr. 300.000
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi kr. 150.000
Kvennaráðgjöfin kr. 200.000
Garðakórinn kr. 350.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 500.000
Stígamót kr. 200.000
Félag eldri borgara í Garðabæ kr. 500.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Bjarkahlíð -miðstöð fyrir þolendur ofbeldis kr. 300.000
Bæjarráð samþykkir að vísa styrkbeiðni Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindi KFUM & KFUK og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins um styrk að þessu sinni.
Bæjarráð samþykkir að vísa styrkbeiðni Hjálparstarfs kirkjunnar til frekari skoðunar við ákvörðun á framlagi til styrktarsjóðs Garðasóknar og Bessastaðasóknar.
Bæjarráð samþykkir að fresta að svo stöddu afgreiðslu á styrkbeiðni Samtaka um stuðningssetur fyrir ungt fólk.
Bæjarráð Garðabæjar
17
8. (1917). fundur
Bæjarverkfræðingur kynnti tímaás framkvæmda á árinu 2020.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
2. (861). fundur
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,67% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.000.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til byggingu grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi og byggingu fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 1.000.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarráð Garðabæjar
20
4. (1913). fundur
Fjármálastjóri kynnti tillögu um samþykkt á lántöku á árinu 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.000 mkr. samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020. Lagður fram lánssamningur. Um er að ræða jafngreiðslulán, verðtryggt til 15 ára með 1,67% föstum vöxtum
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
21
1. (1910). fundur
Eftirfarandi tillaga samþykkt.
„Einstaklingar með tekjur árið 2018 allt að kr. 5.400.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 5.900.000.
Hjón með tekjur árið 2018 allt að kr. 6.890.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 8.190.000.
Bæjarstjórn Garðabæjar
22
19. (859). fundur
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 575.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,74% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 575.000.000 með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar) standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi og byggingu fjölnota íþróttahúss sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
23
19. (859). fundur
Bæjarstjórn samþykkir nýjar reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Bæjarráð Garðabæjar
24
48. (1909). fundur
Fjármálastjóri kynnti tillögu um samþykkt á lántöku á árinu 2020 hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 1.800.000 þkr. samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
25
18. (858). fundur
Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði til að sorphirðugjald árið 2020 hækki einungis um 2,5% í samræmi við tilmæli í tengslum við lífskjarasamninga.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Tillaga um 2,5% hækkun sorphirðugjalda felld með átta atkvæðum.(JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) gegn þremur atkvæðum (SDS,IA,HÞ).
Bæjarstjórn samþykkir með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) gegn þremur atkvæðum (SDS,IA,HÞ) nýja gjaldskrá fyrir sorphirðugjöld árið 2020 þar sem gert er ráð fyrir að sorphirðugjald árið 2020 verði kr. 31.000.
Bæjarstjórn Garðabæjar
26
18. (858). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.
"Fasteignaskattur skal vera 0,185% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Fasteignaskattur skal vera 1,59% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0% samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Vatnsgjald skal vera 0,095% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2020 vera 23,4 kr/tonn m.v. BVT í des 2019.
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.
Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,10% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 30.400.
Sorphirðugjald skal vera kr. 31.000 á hverja íbúð [sjá gjaldskrá].
Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 310.700 á hvert hús. [sjá gjaldskrá].
Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2020 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október."
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).
Bæjarstjórn Garðabæjar
27
18. (858). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Þróunarsjóðir leik- og grunnskóla 4.000.000
Hjólaverkefni 3.000.000
Félagsþjónusta (frekari liðveista) 50.000.000
Aukin fjárveiting til viðhalds 50.000.000
Vefsíðugerð skólar 5.000.000
Vegna tónlistarnáms 8.000.000
Vallarsamningur á Álftanesi (leiðrétting) 2.050.000
Námskeið um kvíða 1.500.000
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðis (leiðrétting) 526.000
Samtals útgjaldaauki 124.076.000
Breyting vegna hagræðingar -37.592.826
Lífeyrisskuldbinding -40.000.000
Millifærslur frá Samveitum (tekjur) -54.000.000
Jöfnunarsjóðs - hækkun nýbúaframlags -5.300.000
Hækkun sorpgjalds um 3.000 kr. -18.000.000
Lækkun fasteignaskatts á íbúðahúsnæði 0,185% 20.000.000
Lækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði 0,159% 20.000.000
Samveitur (B-hluti) 54.000.000
Samtals útgjaldaauki (A og B hluti) 63.183.174
Rekstrarafgangur eftir breytingar 503.055.325
Framkvæmdayfirlit
Minjagarður (Hofsstaðir-Garðatorg) 50.000.000
Sjóðsstreymisyfirlit
Lántaka (hækkun) 50.000.000
Ingvar Arnarson, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Nú liggur fyrir okkur tillaga að fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 og nauðsynlegt fyrir okkur í Garðabæjarlistanum að rýna hana og finna hvort hún samræmist okkar áherslum.
Eftir að hafa farið vandlega yfir fjárhagsáætlunina eru nokkrir punktar sem ég vil gjarnan koma frá mér. Ég hef verið tilbúinn að skoða allar góðar hugmyndir sem tengjast skattalækkunum á íbúa. Að mínu mati er sú skattalækkun sem hér er kynnt í raun tilfærsla á skatti, þ.e.a.s. að þeir sem eiga stærri eignir munu borga minna á meðan að þeir sem eiga minni eignir standa í stað eða borga jafnvel meira. Það að lækka fasteignaskatt á íbúðarhúsnæði í heild um 20 milljónir en hækka sorphirðugjald um 18 milljónir er í raun engin skattalækkun á íbúðarhúsnæði heldur einungis tilfærsla skattinnheimtu með því að skipta út prósentulækkun fyrir krónutöluhækkun. Einnig stendur til að lækka skatta í atvinnuhúsnæði og er það í raun lækkun á skatttekjum þar sem að það á ekki að hækka nein gjöld á móti á þessar eignir. Þessar hugmyndir hugnast mér ekki því í raun er einungis verið að lækka skatta á fyrirtæki og þá íbúa sem eiga stærstu eignirnar og á meðan eru aðrir íbúar látnir borga þær skattalækkanir, þannig horfir þetta við mér.
Það er mikilvægt að hafa í huga að Garðabær hefur verið að auka lántökur til muna síðustu ár og er að leggja í stórar framkvæmdir. Að mínu mati er mikil óvissa fólgin í því að gera ráð fyrir einum milljarði í tekjur fyrir lóðasölu á næsta ári og alls óvíst hvernig það á eftir að ganga að koma lóðum sem bærinn á í verð. Hvað ætlum við að gera ef þessar lóðir seljast ekki á þessu verði eða seljast ekki?
Nú hafa margar góðar tillögur komið fram bæði frá meiri- og minnihluta. Nánast eingöngu fá tillögur meirihluta fjármagn og finnst mér það miður þar sem að margar af tillögum Garðabæjarlistans hafa fengið góðan hljómgrunn innan bæjarstjórnar og meðal íbúa og hafa oft rímað vel við hugmyndir meirihlutans. Það hefur því verið sorglegt að horfa á eftir góðum tillögum, frá Garðabæjarlistanum, ofan í svarthol tillagna. Í svartholinu velkjast þær um í kerfinu og virðast svo hverfa.
Að þessu sögðu sé ég því miður ekki fram á að geta lagt nafn mitt við þessa fjárhagsáætlun. Ég mun því sitja hjá við afgreiðslu hennar."
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020 blasa fyrst og fremst við þrengingar. Verulega minni afgangur blasir við okkur þegar við horfum á A sjóð sveitarfélagsins. Og öll teikn á lofti um verri rekstur. Af sem áður var.
Sveitarfélagið stækkar og því fylgir eðlilega aukin útgjöld vegna lögbundinnar þjónustu. Eldri borgurum fjölgar mjög og er fjölmennur hópur fyrir. Öll félagsleg þjónusta fer vaxandi. Húsnæði, bæði leik- og grunnskóla, eru komin á tíma fyrir fjárfrekt viðhald og svona mætti áfram telja um þá þjónustu sem er lögbundin og enga undanþágu er að hafa á að standa undir.
Það er miður að sjá að þrátt fyrir þá þröngu stöðu sem sveitarfélagið er í raun komið í að þá skuli pólitík meirihlutans vera að fara gegn almannahagsmunum með skattalækkun sem reynist þeim efnameiri góður fengur en leggur auknar skattbyrðar á þá efnaminni. Gjaldskrá sorpgjalds er hækkuð langt umfram þann sáttmála sem lífskjarasamningur kveður á um eða um 10%. Þannig er lækkun á innkomu fasteignatekna mætt, með því að leggja frekari álögur á tekjulægri íbúa Garðarbæjar á meðan þeim tekjuhærri er rétt skattalækkun. Ásamt því að skrapað verður saman í formi hagræðingar á öllum sviðum til að mæta skattlækkun fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði. Nægir þar að nefna fræðslusvið sem gert er að hagræða um tæpar 15 milljónir króna. Í málaflokki sem einmitt ætti að standa vörð um í stað þess að láta sæta niðurskurði.
Allt í boði Sjálfstæðisflokksins.
Ekki er að finna sérstaklega styðjandi aðgerðir í þágu barnafjölskyldna í fjárhagsáætlun að þessu sinni. Ekkert er um systkinaafslátt í íþróttastarfi sem er marg framlögð tillaga okkar í Garðabæjarlistanum sem og eitt af 100 loforðum Sjálfstæðisflokksins sem nær enn ekki í gegn. Vonir stóðu um útfærslur á systkinaafslætti af leikskólagjöldum sem og hugmynd um að færast nær tillögu okkar í Garðabæjarlistanum um hækkun hvatapeninga þar sem meirihlutinn lagði fram ágætis útfærslu sem fyrsta skref í þá átt með því að tekjutengja hækkun á hvatapeningum. Þessar tillögur líta ekki dagsins ljós í fjárhagsáætlun fyrir árið 2020."
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls. Áslaug Hulda þakkaði starfmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut við undirbúning að gerð fjárhagsáætlunar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun.
Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).
Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020-2023 með átta atkvæðum (JS,ÁHJ,SHJ,GVG,AG,BF,GE,GS) Þrír sitja hjá (SDS,IA,HÞ).
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020- 2023 eru:
2020 2021 2022 2023
Tekjur: 17.362.144 17.658.144 17.976.144 18.329.144
Gjöld: 16.015.068 16.369.093 16.748.787 17.129.802
Niðurstaða án fjármagnsliða: 1.347.076 1.289.051 1.227.357 1.199.342
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (844.020) (690.070) (640.288) (637.108)
Rekstrarniðurstaða 503.056 598.981 587.069 562.234
Bæjarráð Garðabæjar
28
46. (1907). fundur
Lögð fram tillaga um álagningu fasteignagjalda á árinu 2020 ásamt breytingum á áður samþykktri gjaldskrá sorphirðugjalda.
Lögð fram tillaga um breytingar á einstaka liðum við A og B - hluta frumvarps að fjárhagsáætlun ásamt breytingu á tillögu að framkvæmdayfirliti.
Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2020-2023 ásamt tillögum að breytingum við einstaska liði og tillögu um álagningu gjalda til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 5 desember nk.
Bæjarráð Garðabæjar
29
45. (1906). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að tillögum um álagningu fasteignagjalda og drögum að breytingartillögum við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
30
17. fundur
Farið yfir fjárhagsstöðu nefndarinnar 2019 og vinnu við fjárhagsáætlun 2020.
Fjárhagur nefndarinnar á árinu 2019 stendur vel miðað við áætlun og þau verkefni sem nefndin hefur staðið fyrir á árinu.
Frumvarp til fjárhagsáætlunar 2020 var tekið til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar 7. nóvember sl. Síðari umræða er fyrirhuguð 5. desember nk. Farið var yfir áætlað deildaryfirlit fyrir menningarmál á árinu 2020. Á næsta ári er fyrirhugað að ráða í starf menningarfulltrúa og Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, kynnti drög að starfslýsingu þess starfs.
Umræður voru um fjárhagsáætlun og starfslýsingu menningarfulltrúa.
Bæjarráð Garðabæjar
31
44. (1905). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hugmyndum að tillögum að breytingum við frumvarp að fjárhagsáætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
32
14. fundur
Kynning á helstu liðum fjárhagsáætlunar er varða grunnskólastarf
Bæjarráð Garðabæjar
33
43. (1904). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs við afgreiðslu mála samkvæmt dagskrárliðum 1 -2.
Lagt fram yfirlit með samanburði á álagningarreglum sveitarfélaga árið 2019.
Lagt fram yfirlit yfir erindi sem vísað hefur verið til afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Lagt fram nýtt minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2020 og fjárhagsáætlana til þriggja ára, dags. 1. nóvember 2019.
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar og tillögur sem borist hafa frá íbúum.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
34
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá leikskóla árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
35
16. (856). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2020 - 2023. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að vísa frumvarpinu til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:
2020 2021 2022 2023
Tekjur: 17.361.334 17.532.334 17.950.334 18.413.334
Gjöld: 15.951.072 16.302.205 16.681.899 17.062.914
Niðurstaða án fjármagnsliða: 1.410.262 1.230.129 1.268.435 1.350.420
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (844.018) (708.685) (665.924) (665.192)
Rekstrarniðurstaða 566.243 521.444 602.511 685.228
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2020 - 2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
36
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá skólamálsverða árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
37
16. (856). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2020 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2019 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
38
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá fyrir hreinsun taðþróa árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
39
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá frístundar árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
40
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá tómstundaheimila árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
41
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sorphirðu árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
42
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá bókasafns Garðabæjar árið 2020.
Bæjarstjórn Garðabæjar
43
16. (856). fundur
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sundlauga Garðabæjar árið 2020.
Bæjarráð Garðabæjar
44
42. (1903). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að álagningu gjalda samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.
Bæjarráð vísar tillögu að álagningu gjalda til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
45
16. fundur
Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023) verður tekið til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 7. nóvember nk.
Gunnar Valur kynnti, með vísan til skýrslu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar, dags. í september 2019 og sem lögð var fram í bæjarstjórn 17. október 2019, að í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar lægi fyrir tillaga um nýja stöðu menningarfulltrúa Garðabæjar sem verður auglýst á næstunni.
Fjárhagsáætlun verður aftur til umræðu á næsta fundi nefndarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
46
41. (1902). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2020 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2019 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga."
Bæjarráð vísar tillögu um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð Garðabæjar
47
41. (1902). fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2020 og árin 2021 - 2023, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti. Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2019 eru: Heildartekjur 17.361.334 þkr. Heildargjöld 15.951.072 þkr. Niðurstaða án fjármagnsliða 1.410.262 þkr. Fjármunatekjur (gjöld) (844.018) þkr. Rekstrarniðurstaða 566.243 þkr.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023) til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð fimmtudaginn 7. nóvember 2019.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
48
40. (1901). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir fyrstu drögum að fjárhagsáætlun árið 2020. Frumvarp að fjárhagsáætlun 2020-2023 verður lagt fram á fundi bæjarráðs 29. október og vísað til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 7. nóvember.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
49
17. fundur
Umhverfisnefnd samþykkir tillögur í fjárhagsáætlun.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
50
13. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, kynnti vinnuferla við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu vinnunnar og næstu skref.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
51
15. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri mætir á fundinn og kynnir forsendur fjárhagsáætlunar.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri var gestur fundarins undir þessum lið og fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2020.
Farið var yfir ferli við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar 2020. Leitað verður eftir ábendingum íbúa eins og fyrri ár þar sem þeir geta sent inn ábendingar í gegnum vef Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
52
33. (1894). fundur
Fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2019 (2020-2023). Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 29. október 2019 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 7. nóvember 2019. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 5. desember 2019.
Bæjarráð samþykkir forsendur og verkferla fjárhagsáætlunar 2020 - 2023.
Bæjarráð Garðabæjar
53
26. (1887). fundur
Lagt fram og vísað til frekari skoðunar við undirbúning fjárhagsáætlunar 2020 (2020 - 2023).