2. (861). fundur
2. (861). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
06.02.2020
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson
- Áslaug Hulda Jónsdóttir
- Sigríður Hulda Jónsdóttir
- Gunnar Valur Gíslason
- Jóna Sæmundsdóttir
- Almar Guðmundsson
- Björg Fenger
- Gunnar Einarsson
- Valborg Ösp Á. Warén
- Ingvar Arnarson
- Harpa Þorsteinsdóttir
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 16. janúar 2019 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 21/1 ´20.
Enginn tók til máls.
Fundargerðin sem er 24 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.10 - 1910415 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna aðkomutákns.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna aðkomutákns. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og barst ein athugasemd. Athugasemdin hefur verið yfirfarin. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
1.13 - 1909193 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna aðstöðu fyrir kajakklúbb.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis sem gerir ráð fyrir lóð fyrir uppsátri og naust á fjörukambi í landi Katrínarkots. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Garðahverfi er verndarsvæði í byggð og skal tillagan send Minjastofnun til umsagnar.
Fylgiskjöl
1.2 - 1911057 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Víkurgötu 2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis fjölbýlishússins að Víkurgötu 2 þó að þak á bílgeymslu verði útfært með viðarpöllum og hellulögn í stað grasþekju en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrir liggur jákvæð umsögn deiliskipulagsráðgjafa.
Fylgiskjöl
1.3 - 1907083 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Víkurgötu 19.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem felst í breytingu á byggingarreit lóðarinnar að Víkurgötu 19, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
1.4 - 1706258 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hraungötu 8.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna svalaskýlis við einbýlishúsið að Hraungötu 8. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust tvær athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar, lögð hafa verið fram viðbótargögn og haldnir fundir með málsaðilum. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Fylgiskjöl
1.5 - 1911282 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 46.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Krókamýri 46. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Fylgiskjöl
1.6 - 1808350 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040.
Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006 tillögu svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins um breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 1 (16.1.2020) - Svæðisskipulagsbreyting á höfuðborgarsvæðinu - Vaxtarmörk á Álfsnesi.pdf
- 4. Umsagnir-7.pdf
- 3. A1234-103-U01-Svæðisskipulag-umsagnir og svör.pdf
- 2. A1234-101-D02-Álfsnes-Umhverfisskýrsla til staðfestingar.pdf
- 1. A1234-100-U01-Svæðisskipulag-VaxtarmörkÁlfsnes-til staðfestingar.pdf
- Lokaafgreiðsla á breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 -Gb.pdf
1.7 - 1910311 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæðis við Kjóavelli.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi hesthúsasvæði við Kjóavelli . Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Þar sem um sameignlegt skipulag Kópavogs og Garðabæjar er að ræða þarf að liggja fyrir samþykkt bæjarstjórnar Kópavogs um að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulaginu.
Fylgiskjöl
1.8 - 2001154 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóða við Eskiás.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda er varðar lóðir við Eskiás , sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að ákvæði um heimild fyrir kjallararýmum fellur brott og B-rými reiknast til grundvallar nýtingarhlutfalli. Heildarbyggingamagn er óbreytt.
Fallið er frá grenndarkynningu samkvæmt í heimild í 2. ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga 123/2010 þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda/lóðarhafa.
Fylgiskjöl
1.9 - 1911109 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Hraungötu 15-19 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 28/1 ´20.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar varðandi úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð.
Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar varðandi úttekt á stjórnarháttum/áætlunargerð Sorpu bs. vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð og 8. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í sveitarfélaginu og 10. tl., tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu varðandi mótun menntastefnu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 8. tl., bréf Umhverfisstofnunar varðandi endurvinnsluhlutfall heimilisúrgangs í sveitarfélaginu.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., samning við Vegagerðina um endurbætur og framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg.
Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.11 - 1606034 - Samningur við Vegagerðina um endurbætur og framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða samning við Vegagerðina um endurbætur á Hafnarfjarðarvegi o.fl.
2.2 - 1904109 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 - lántaka.
Sjá 17. tl.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð bæjarráðs frá 4/2 ´20.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Í tilefni af bókun oddvita Garðabæjarlistans á fundi bæjarráðs sl. þriðjudag um skort á upplýsingum um stöðu framkvæmda við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri er nauðsynlegt að eftirfarandi staðreyndir komi fram.
Málið hefur verið á dagskrá bæjarráðs fjórum sinnum síðan í maí 2019 og þá var það tekið fyrir á vinnufundi bæjarfulltrúa um fjárhagsáætlun 28. nóvember sl.. Á fundi sem haldinn var 21. maí 2019 samþykkti bæjarráð viðauka við samning vegna breytinga á verkinu sem var til komin vegna færslu hússins. Á fundi bæjarráðs sem haldinn var 16. júlí 2019 var á dagskrá að ræða stöðu framkvæmda almennt. Á fundinum var sérstaklaga vakin athygli á viðræðum við verktakann um styrkleika staura og athugun jarðvegs. Á fundum bæjarráðs 7. janúar og 21. janúar 2020 hafa málefni fjölnota íþróttahúss verið á dagskrá og þar ítarlega farið yfir stöðu mála.
Það er því kolrangt að halda því fram að ekki hafi verið upplýst um stöðu mála eins og augljóst má vera samkvæmt þeim staðreyndum sem hér eru raktar.
Engar formlegar fyrirspurnir hafa borist frá fulltrúum minnihlutans allan þennan tíma.
Það skal ennfremur áréttað að allt verklag og samskipti við verktaka hafa farið fram í samræmi við samning aðila og þau lög, reglur og staðla sem gilda um framkvæmd alútboða. Enginn ágreiningur er á milli aðila um þann framgang."
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Gunnar Einarson, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri - staða framkvæmda.
Fundargerðin sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
3.6 - 2001501 - Samningur um markaðssamstarf og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti samning sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um markaðssamstarf og upplýsingamiðlun í ferðaþjónustu.
Fylgiskjöl
05
Fundargerð leikskólanefndar frá 22/1 ´20.
Valborg Ösp Á Warén, ræddi málefni leikskólans og vakti athygli á að í dag er dagur leikskólans. Þá ræddi Valborg 2. tl., niðurstöður ytra mats á Hæðarbóli.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 24/1 ´20.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., vetrarhátíð 2020, 12. tl., minjagarð við Hofsstaði og 13. tl., viðburði framundan. Gunnar Valur vakti athygli á Þorravöku Kvennakórs Garðabæjar í Kirkjuhvoli.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2., tl., verkefni starfshóps til vinnu að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu Garðbæjar og vék í því sambandi að endurskoðun reglna um starfsstyrki til ungra listamanna.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.
Ingvar Arnarson, ræddi 13. tl., viðburðir framundan og vakti athygli á opnu húsi hjá Tónlistarskóla Garðabæjar á degi tónlistarskólanna.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 16/1 ´20.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar - rammahluti Vífilsstaðalands.
Fundargerðin lögð fram.
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 29/1 ´20.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi þjónustukönnun Gallup 2019 og óskaði skólastjórnendum og starfsfólki skólanna til hamingju með frábærar niðurstöður. Þá ræddi Sigríður Hulda 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla Garðabæjar, 3. tl., endurskoðun skólastefnu, 6. tl. verkefni starfshóps til vinnu að framgangi stafrænnar framþróunar og þjónustu Garðabæjar og 9. tl., uppsögn skólastjóra Garðaskóla á starfi.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., þróunarsjóð grunnskóla Garðabæjar, 3. tl., endurskoðun skólastefnu.
Fundargerðin lögð fram.
10
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsv. frá 22/1 ´20.
Fundargerðin lögð fram.
11
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsv. frá 24/1 ´20.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., mat á losun á útblæstri bifreiða árið 2030 og 3. tl., kynningu á verkefninu Maas.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., kynningu á verkefninu Maas.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., kynningu á verkefninu Maas.
Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 3. tl., kynningu á verkefninu Maas.
Fundargerðin lögð fram.
12
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 10/1 ´20.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., markaðsáætlun 2020 og 6. tl., vagnakaupaútboð.
Fundargerðin lögð fram.
14
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsv. frá 17/1 ´20.
Fundargerðin lögð fram.
15
Reglur um akstursþjónustu aldraðra í Garðabæ
Almar Guðmundsson, fylgdi úr hlaði reglum um akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ. Kom fram hjá Almari að reglurnar hafa verið til umfjöllunar í öldungaráði fjölskylduráði og bæjarráði.
Ingvar Arnarson, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um akstursþjónustu eldri borgara í Garðabæ.
16
Tillaga að breytingu á jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022.
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir tillögum að breytingum á jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Í stað "umönnun aldraðra“ í 1. ml. 3. tl. kemur "þjónusta við fatlað fólk og aldraða.
Fyrsti málsliður 3. tl. hljóðar þá svo:
"Sveitarfélög gegna veigamiklu hlutverki sem veitendur þjónustu, má þar m.a. nefna menntun barna og unglinga, tómstunda- og íþróttastarf, þjónustu við fatlað fólk og aldraðra."
Í 2. ml. töluliðar 3.4. fellur niður "og fólk með fötlun.
Töluliður 3.4. hljóðar svo eftir breytingu:
"3.4. Málefni aldraðra.
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda- og íþróttastarfi fyrir aldraða. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við eldri borgara."
Við bætist nýr töluliður sem verður töluliður 3.5. sem orðast svo:
:
"3.5. Málefni fatlaðs fólks.
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda- og íþróttastarfi fyrir fatlað fólk. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við fólk með fötlun."
Töluliður 3.5. verður töluliður 3.6.
17
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2020.
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 1.000.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,67% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.000.000.000, með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til byggingu grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi og byggingu fjölnota íþróttahúss sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku að fjárhæð kr. 1.000.000.000 samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.