Jafnréttisstefna Garðabæjar 2019-2022
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
5. fundur
Núgildandi Jafnréttisstefna Garðabæjar er frá árinu 2019 og fjölmenningarstefna Garðabæjar er frá árinu 2014. Umræða um næstu skref.
Fjölskylduráð felur fjölskyldusviði að hefja undirbúning að endurskoðun fjölmenningarstefnu og jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
2. fundur
Núgildandi Jafnréttisstefna Garðabæjar er frá árinu 2019 og fjölmenningarstefna Garðabæjar er frá árinu 2014. Umræða um næstu skref.
Umræður um jafnréttistefnu Garðabæjar sem er frá árinu 2019 og gildir til 2022 og fjölmenningarstefnu Garðabæjar sem er frá 2014, vísað til áframhaldandi umræðu á næsta fundi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
2. (861). fundur
Almar Guðmundsson, gerði grein fyrir tillögum að breytingum á jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi breytingar á jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Í stað "umönnun aldraðra“ í 1. ml. 3. tl. kemur "þjónusta við fatlað fólk og aldraða.
Fyrsti málsliður 3. tl. hljóðar þá svo:
"Sveitarfélög gegna veigamiklu hlutverki sem veitendur þjónustu, má þar m.a. nefna menntun barna og unglinga, tómstunda- og íþróttastarf, þjónustu við fatlað fólk og aldraðra."
Í 2. ml. töluliðar 3.4. fellur niður "og fólk með fötlun.
Töluliður 3.4. hljóðar svo eftir breytingu:
"3.4. Málefni aldraðra.
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda- og íþróttastarfi fyrir aldraða. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við eldri borgara."
Við bætist nýr töluliður sem verður töluliður 3.5. sem orðast svo:
:
"3.5. Málefni fatlaðs fólks.
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda- og íþróttastarfi fyrir fatlað fólk. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við fólk með fötlun."
Töluliður 3.5. verður töluliður 3.6.
Bæjarráð Garðabæjar
05
3. (1912). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur fjölskylduráðs um breytingar á grein 3.4 og grein 3.5 í jafnréttisstefnu Garðabæjar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
06
1. fundur
Jafnréttisstofa hefur móttekið og yfirfarið jafnréttisáætlun Garðabæjar, sbr. tölvupóst dags. 09.01.20, og metur það sem svo að áætlunin uppfylli kröfur laga nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla.
Forstöðumaður heimilis fatlaðs fólks í Sigurhæð sendi inn athugasemdir varðandi atriði í jafnréttisáætluninni sem hann vill koma á framfæri við fjölskylduráð Garðabæjar.
Mál nr. 1909205 lagt fram til kynningar og umræðu. Jafnréttisstofa hefur móttekið og yfirfarið jafnréttisáætlun Garðabæjar, sbr. tölvupóst dags. 09.01.20, og er það mat Jafnréttisstofu að áætlunin uppfylli kröfur laga nr. 10/2008 um jafna stöðu kvenna og karla.
Forstöðumaður heimilis fyrir fatlað fólk í Sigurhæð sendi inn athugasemdir varðandi tvö atriði í lið 3 og 3.4 í jafnréttisáætluninni sem hann vill koma á framfæri við fjölskylduráð Garðabæjar.
Fjölskylduráð þakkar forstöðumanni fyrir góðar ábendingar og mun leggja til við bæjarstjórn tillögu að eftirfarandi breytingum á texta:
Fyrsta setning í lið 3 verði eftir breytingu: "Sveitarfélög gegna veigamiklu hlutverki sem veitendur þjónustu, má þar m.a.nefna menntun barna og unglinga, tómstunda- og íþróttastarf, þjónustu við fatlað fólk og aldraðra."
Liður 3.4. verði eftir breytingu:
"3.4. Málefni aldraðra
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda-og íþróttastarfi fyrir aldraða. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við eldri borgara."
Við bætist svo liður 3.5. sem verði þannig:
"3.5. Málefni fatlaðs fólks
Unnið skal að því með markvissum hætti að tryggja fjölbreytt framboð af tómstunda-og íþróttastarfi fyrir fatlað fólk. Til dæmis með samningum við frjáls félagasamtök og einstaklinga sem sérhæfa sig í þjónustu við fólk með fötlun."
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
17. (857). fundur
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022. Almar gerði grein fyrir vinnu í fjölskylduráði og hjá starfmönnum á bæjarskrifstofum við undirbúning og gerð stefnunnar. Almar gerði grein fyrir helstu meginþáttum stefnunnar og framkvæmdaáætlun sem fylgir stefnunni.
Almar þakkaði öllum þeim sem komu að málinu fyrir þeirra vinnu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls og lagði fram eftirfrandi bókun.
„Garðabæjarlistinn telur afar brýnt að verði útlistað betur og leggjum til að verði vísað áfram inn í nefndina til úrvinnslu.
Fyrst markmið 1.3 sem kallar eftir að við öflum kyngreinanlegra tölfræðiupplýsinga við þjónustukönnun. Hér þyrfti að okkar mati ekki síður að greina m.a. aðra jaðarhópa; hinsegin, fatlaða, innflytjendur og einstæða foreldra. Þannig að ná megi betri heildarmynd af stöðu allra viðkvæmustu hópanna sem er mikilvægt að hafa þegar verið er að forgangsraða t.d. þjónustu.
Markmið 1.5 um veitingu jafnréttisviðurkenninga. Hér vantar sannanlega bæði að skilgreina eða ákveða hverjir gætu verið tilnefndir (er það stjórnsýslan sjálf eða mögulega íbúar og fyrirtæki?). Einnig ætti að vera skýrt og tilgreint að fjölskylduráð setji reglur um þessa viðurkenningu.
Markmið 2.4 stefnur og viðbragsáætlanir Garðabæjar um einelti, ofbeldi og áreitni er ekki að finna á heimasíðu sveitarfélagsins þrátt fyrir ítrekaðar og mikla leit. Þetta skiptir máli ekki síst fyrir mögulega eða verðandi starfsmenn bæjarins að geta kynnt sér til dæmis við atvinnuumsókn eða atvinnuleit. Þessu þarf að kippa í liðinn.
Markmið 3. Hér teljum við að í jafnréttisáætlun sé kveðið á um að samningsaðilar bæjarins setji sér jafnréttisstefnu og skili henni inn. Hún megi ekki ganga skemur en stefna bæjarins og að þessi samningsaðilar þurfi einnig að setja sér aðgerðaáætlun sem uppfærð sé árlega.“
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls og þakkaði fjölskylduráði fyrir góða vinnu við gerð stefnunnar. Gunnar sagði frá vinnu við jafnlaunavottun en forúttekt hefur farið fram þar sem engar athugasemdir komu fram. Lokaúttekt jafnlaunakerfis mun fara fram dagana 27. ? 29. nóvember nk.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022.
Bæjarráð Garðabæjar
08
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að vísa jafnréttisstefnu Garðabæjar 2019-2022 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
09
11. fundur
Drög að jafnréttisstefnu Garðabæjar og framkvæmdaáætlun 2019-2022 lögð fram til umræðu og samþykktar.
Mál nr. 1909205 lagt fram. Fjölskylduráð fjallar um drög að stefnu og framkvæmdaáætlun. Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi drög að jafnréttisstefnu og framkvæmdaáætlun. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði Garðabæjar.
Fjölskylduráð Garðabæjar
10
10. fundur
Drög að jafnréttisstefnu og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar og umræðu.
Mál nr. 1909205, drög að jafnréttisstefnu og framkvæmdaáætlun lögð fram til kynningar og umræðu. Formanni og starfsmönnum er falið að vinna úr athugasemdum fjölskylduráðs varðandi jafnréttisstefnuna og framkvæmdaáætlun.
Fjölskylduráð Garðabæjar
11
9. fundur
Farið yfir vinnslustöðu jafnréttisáætlunar 2019-2022.
Drög að jafnréttis- og framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2019-2022 lögð fram til umræðu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
12
8. fundur
Umræða um jafnréttisáætlun Garðabæjar 2019-2022.
Tímalína vegna vinnslu jafnréttisáætlunar lögð fyrir fjölskylduráð. Kallað hefur verið eftir áherslum frá sviðsstjórum Garðabæjar vegna þeirra málaflokka sem þeir stýra. Áætlað er að lokadrög jafnréttisáætlunar verði lögð fyrir fund bæjarráðs þann 5.nóvember nk.