8. fundur
8. fundur
Fjölskylduráð Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.09.2019
Kl. 16:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sigþrúður Ármann - aðalmaður
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður
- Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
01
Fundargátt nefndarmanna - breytt innskráning - rafræn skilríki - netföng
Bæjarfulltrúar og nefndarmenn fá netföng frá Garðabæ sem notuð eru til að senda fundarboð og önnur samskipti vegna starfa sinna fyrir Garðabæ.
Mál nr. 1812061 lagt fram til kynningar. Farið yfir ákvörðun þess efnis að allt nefndarfólk hjá Garðabæ stofni sérstakt Garðabæjar netfang í gegnum Minn Garðabæ og nefndarfólk hvatt til þess að virkja netfangið sem fyrst.
02
Umsókn um fjárhagsaðstoð - Tannlæknastyrkur
Málskot til fjölskylduráðs Garðabæjar vegna ákvörðunar afgreiðslufundar um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna, samþykkt/synjað. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
03
Umsókn um tryggingu v/leiguhúsnæðis
Málskot til fjölskylduráðs Garðabæjar vegna ákvörðunar afgreiðslufundar um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
04
Umsókn um námsstyrk
Umsókn um námstyrk lögð fyrir fjölskylduráð Garðabæjar. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Samþykkt að veita námsstyrk. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
05
Jafnréttisáætlun Garðabæjar 2019-2022
Umræða um jafnréttisáætlun Garðabæjar 2019-2022.
Tímalína vegna vinnslu jafnréttisáætlunar lögð fyrir fjölskylduráð. Kallað hefur verið eftir áherslum frá sviðsstjórum Garðabæjar vegna þeirra málaflokka sem þeir stýra. Áætlað er að lokadrög jafnréttisáætlunar verði lögð fyrir fund bæjarráðs þann 5.nóvember nk.
06
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Málskot til fjölskylduráðs Garðabæjar vegna ákvörðunar afgreiðslufundar um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
07
Öryggi og vellíðan barna og ungmenna.
Erindi Garðabæjarlistans um öryggi og vellíðan barna og ungmenna.
Fjallað um erindi Garðabæjarlistans um öryggi og vellíðan barna og viðbrögð í samfélaginu þegar endurtekin óæskileg hegðun ungmenna gerir vart við sig. Þegar rætt er um viðbragðsaðgerðir er mikilvægt að þær byggi á samtali milli foreldra, skólasamfélagsins,fjölskyldusviðs og annara sem koma að umönnun og velferð barna. Tryggja þarf fræðslu til barna um afleiðingar andfélagslegrar hegðunar fyrir þau sjálf og umhverfið. Þegar upp hafa komið mál af þessu tagi þá er brugðist við með ákveðnum hætti og leiðir fundnar í samtali og samvinnu. Fjölskyldusvið Garðabæjar bíður upp á foreldrafærninámskeið þar sem foreldar fá þjálfun í notkun gagnreyndra verkfæra til að draga úr óæskilegri hegðun barna sinna. Forvirkar aðgerðir sem miða að því að efla foreldra enn frekar í hlutverki sínu hefur öflugt forspárgildi fyrir öryggi og vellíðan barna.
08
Umsókn um fjárhagsaðstoð
Málskot til fjölskylduráðs Garðabæjar vegna ákvörðunar afgreiðslufundar um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallaði um málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.