Öryggi og vellíðan barna og ungmenna.
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
13. fundur
ÍTG telur mikilvægt að þegar upp koma mál af þessu tagi sé brugðist við með ákveðnum hætti og leiðir fundnar í samtali og samvinnu allra aðila. Skólasamfélagið, félagsmiðstöðvarnar og frjálsu félögin skipta miklu máli í þessu samvinnu. Sé um að ræða skemmdarverk skal tilkynna það til lögreglu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
8. fundur
Erindi Garðabæjarlistans um öryggi og vellíðan barna og ungmenna.
Fjallað um erindi Garðabæjarlistans um öryggi og vellíðan barna og viðbrögð í samfélaginu þegar endurtekin óæskileg hegðun ungmenna gerir vart við sig. Þegar rætt er um viðbragðsaðgerðir er mikilvægt að þær byggi á samtali milli foreldra, skólasamfélagsins,fjölskyldusviðs og annara sem koma að umönnun og velferð barna. Tryggja þarf fræðslu til barna um afleiðingar andfélagslegrar hegðunar fyrir þau sjálf og umhverfið. Þegar upp hafa komið mál af þessu tagi þá er brugðist við með ákveðnum hætti og leiðir fundnar í samtali og samvinnu. Fjölskyldusvið Garðabæjar bíður upp á foreldrafærninámskeið þar sem foreldar fá þjálfun í notkun gagnreyndra verkfæra til að draga úr óæskilegri hegðun barna sinna. Forvirkar aðgerðir sem miða að því að efla foreldra enn frekar í hlutverki sínu hefur öflugt forspárgildi fyrir öryggi og vellíðan barna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
35. (1896). fundur
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.