35. (1896). fundur
35. (1896). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
17.09.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Strætó - Nýtt leiðanet.
Á fund bæjarráðs mættu Ragnheiður Einarsdóttir og Sólrún Svava Skúladóttir, starfsmenn Strætó bs. og kynntu verkefni á vegum faghóps sem kallast nýtt leiðanet. Um er að ræða endurskoðun leiðanets vegna undirbúnings Borgarlínu og gert er ráð fyrir að hópurinn skili niðurstöðum til stjórnar Strætó bs. í nóvember
Björg Fenger, bæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
02
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi tillögu um innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Bæjarráð vísar tillögu um innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
03
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning við Skátafélagið Vífil.
Fylgiskjöl
04
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs varðandi endurskoðun samstarfssamnings við UMF Álftanes.
Lögð fram.
05
Bréf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis varðandi skýrslu um samkeppnisrekstur opinberra aðila, dags. 02.09.19.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara umbeðnum spurningum er varða samkeppnisrekstur opinberra aðila.
Fylgiskjöl
06
Minnisblað Eflu varðandi umsagnir vegna tilkynningar um matsskyldu Hnoðraholtsbrautar, dags. 09.09.19.
Bæjarráð samþykkir tillögu að viðbrögðum við umsögnum og felur bæjarstjóra að gera Skipulagsstofnun grein fyrir málinu.
07
Bréf Andra Bachmann Sigurðssonar um styrk vegna jólahátíðar, dags. 06.09.19.
08
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2019, dags. 11.09.19.
09
Erindi Garðabæjarlistans um öryggi og vellíðan barna og ungmenna..
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar hjá fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.