Hnoðraholt norður deiliskipulag
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (883). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulag norðurhluta Hnoðraholts og uppfæra deiliskipulagsgögn samræmi við þær. Deiliskipulagið var samþykkt í bæjarstjórn 19. nóvember 2020. (Mál nr.1906192)
Bæjarráð Garðabæjar
02
10. (1968). fundur
Í bréfinu kemur fram að Skipulagsstofnun hefur yfirfarið gögn vegna deiliskipulags norðurhluta Hnoðraholts og gert athugasemdir í sex liðum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar og uppfæra deiliskipulagsgögn í samræmi við þær.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
17. (876). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum og deiliskipulagið með eftirfarandi áorðnum breytingum frá auglýstri tillögu:
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.
Götur fá götuheiti sbr. samþykkt skipulagsnefndar 29. október 2020.
Fjölbýlishúsum F-5 við austurhluta Vorbrautar með 47 íbúðum og 4 innkeyrslum er breytt í raðhús R-1. Um er að ræða fjórar raðhúslengjur við tvær botnlangagötur með 18 íbúðareiningum. Fjölbýlishús voru 2-3 hæðir en raðhús verða 2 hæðir.
Leiksvæði er bætt við austan við raðhúsin á móts við Þorrasali 13-15.
Fjölgað er stígatengingum frá stíg meðfram bæjarmörkum Kópavogs inn á stíga og gangstéttar í Þrymsölum og Þorrasölum í Kópavogi.
Ákvæði er bætt við um að Vorbraut milli golfbrauta og fjölbýlishúsa við Þorrasali verði niðurgrafin eins og aðstæður leyfa. Útfærslum golfboltavarna vísað til deiliskipulags Golfvallarins.
Hnoðraholtsbraut er breytt þannig að núverandi gata helst óbreytt en í stað tengingar að sunnan er hún framlengd upp á holtið til norðurs og tengist þar Vetrarbraut á hringtorgi. Heitið Vetrarbraut framlengist norður yfir holtið að Arnarnesvegi. Heiti núverandi Hnoðraholtsbrautar í holtinu breytist í Hnoðraholt en heiti brautarinnar frá Karlabraut að Vetrarbraut heldur sér. Tengingar við Eskiholt, Hrísholt og Háholt verða áfram eins og þær eru í dag, þ.e. beint við Hnoðraholt.
Vetrarbraut er breikkuð í 4 akreinar til norðurs frá Þorraholti að Arnarnesvegi.
Í sérskilmálum fyrir fjölbýlishús F-1 og F2 er lengd uppbrota breytt úr 6m í 8m.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Með samþykkt deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var af Skipulagsstjóra ríkisins þann 17. apríl 1996."
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (1953). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og umhverfisskýrslu. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á auglýstri tillögu.
Götur fá götuheiti sbr samþykkt skipulagsnefndar 29.október sl.
Fjölbýlishúsum F-5 við austurhluta Vorbrautar með 47 íbúðum og 4 innkeyrslum er breytt í raðhús R-1, 4 raðhúslengjur við tvær botnlangagötur með 18 íbúðareiningum. Fjölbýlishús voru 2-3 hæðir en raðhús verða 2 hæðir.
Leiksvæði er bætt við austan við raðhúsin á móts við Þorrasali 13-15.
Fjölgað er stígatengingum frá stíg meðfram bæjarmörkum Kópavogs inn á stíga og gangstéttar í Þrymsölum og Þorrasölum í Kópavogi.
Ákvæði um að Vorbraut milli golfbrauta og fjölbýlishúsa við Þorrasali verði niðurgrafin eins og aðstæður leyfa bætt við. Útfærslum golfboltavarna vísað til deiliskipulags Golfvallarins.
Hnoðraholtsbraut er breytt þannig að núverandi gata helst óbreytt en í stað tengingar að sunnan er hún framlengd upp á holtið til norðurs og tengist þar Vetrarbraut á hringtorgi. Heitið Vetrarbraut framlengist norður yfir holtið að Arnarnesvegi. Heiti núverandi Hnoðraholtsbrautar í holtinu breytist í Hnoðraholt en heiti brautarinnar frá Karlabraut að Vetrarbraut heldur sér. Tengingar við Eskiholt, Hrísholt og Háholt verða áfram eins og þær eru í dag, þ.e. beint við Hnoðraholt.
Vetrarbraut er breikkuð í 4 akreinar til norðurs frá Þorraholti að Arnarnesvegi.
Í sérskilmálum fyrir fjölbýlishús F-1 og F2 er lengd uppbrota breytt úr 6m í 8m.
Með samþykkt deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulags Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var Skipulagsstjóra ríkisins þann 17. apríl 1996
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir 419 fjölbreyttum íbúðareiningum og 20.000 m 2 atvinnuhúsnæðis.Alls 124.879 m2. Tillagan var í auglýsingu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/201 frá 11.júní til og með 7.september 2020. Almennur kynningarfundur var haldinn 27.ágúst og var hann gagnvirkur fjarfundur á Facebook vegna samkomutakmarkana kórónufaraldursins. Samhliða var auglýst tillaga að umhverfisskýrslu samkvæmt 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem náði til Þróunarsvæðis B, Vífilsstaðalands og deiliskipulagi Vetrarmýrar.
Lagðar fram innsendar athugasemdir og umsagnir.
Lagðar fram tillögur að svörum við innsendum athugasemdum og umsögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi lagfæringar á auglýstri tillögu:
1. Götur fá götuheiti sbr samþykkt skipulagsnefndar 29.október sl.
2. Fjölbýlishúsum F-5 við austurhluta Vorbrautar með 47 íbúðum og 4 innkeyrslum er breytt í raðhús R-1, 4 raðhúslengjur við tvær botnlangagötur með 18 íbúðareiningum. Fjölbýlishús voru 2-3 hæðir en raðhús verða 2 hæðir.
3. Leiksvæði er bætt við austan við raðhúsin á móts við Þorrasali 13-15.
4. Fjölgað er stígatengingum frá stíg meðfram bæjarmörkum Kópavogs inn á stíga og gangstéttar í Þrymsölum og Þorrasölum í Kópavogi.
5. Ákvæði um að Vorbraut milli golfbrauta og fjölbýlishúsa við Þorrasali verði niðurgrafin eins og aðstæður leyfa bætt við. Útfærslum golfboltavarna vísað til deiliskipulags Golfvallarins.
6. Hnoðraholtsbraut er breytt þannig að núverandi gata helst óbreytt en í stað tengingar að sunnan er hún framlengd upp á holtið til norðurs og tengist þar Vetrarbraut á hringtorgi. Heitið Vetrarbraut framlengist norður yfir holtið að Arnarnesvegi. Heiti núverandi Hnoðraholtsbrautar í holtinu breytist í Hnoðraholt en heiti brautarinnar frá Karlabraut að Vetrarbraut heldur sér. Tengingar við Eskiholt, Hrísholt og Háholt verða áfram eins og þær eru í dag, þ.e. beint við Hnoðraholt.
7. Vetrarbraut er breikkuð í 4 akreinar til norðurs frá Þorraholti að Arnarnesvegi.
8. Í sérskilmálum fyrir fjölbýlishús F-1 og F2 er lengd uppbrota breytt úr 6m í 8m.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið með ofangreindum breytingum/lagfæringum í samræmi við 3.mgr.41.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 ásamt umhverfisskýrslu í samræmi við lög um mat á umhverfisáætlunum áætlana nr.105/2006.
Skipulagsnefnd samþykkir niðurfellingu deiliskipulags Hnoðraholts-og Vetrarmýrar sem samþykkt var Skipulagsstjóra ríkisins þann 17.apríl 1996 m.s.br. við gildistöku hins nýja deiliskipulags.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Skipulagsráðgjafar og skipulagsstjóri kynntu hugmyndir að viðbrögðum við innsendum athugasemdum og umsögnum. Vísað til frekari úrvinnslu.
Lagðar fram tillögur að götuheitum í Hnoðraholti.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagðar tillögur skipulagsstjóra að götuheitum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
10. fundur
Skipulagsráðgjafar Batterísins, Landslags og Eflu kynntu greiningu á athugasemdum og umsögnum og viðruðu hugmyndir um möguleg viðbrögð.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
9. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts norður, ásamt umhverfisskýrslu, að lokinni auglýsingu samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Einnig ábendingar og fyrirspurnir sem bárust á milli forkynningar og auglýsingar og svör tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar sem sent var til þeirra íbúa í Þorrasölum í Kópavogi sem höfðu sent inn fyrirspurnir. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
10
9. (868). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020. (Mál nr. 1906192)
Bæjarráð Garðabæjar
11
21. (1929). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts. Auglýstur frestur til athugasemda skal vera til 31. ágúst 2020.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
12
6. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts norður.Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir íbúðarbyggð í fjölbýli, rað-, og einbýlishúsum. Atvinnuhúsnæði verður á norðvestur hluta skipulagsreitsins.
Hæðir íbúðarhúsa verða á bilinu 1-4 hæðir. Atvinnuhúsnæði verður 4 hæðir með inndreginni 5 hæð þar sem hún er hæst. Fjöldi íbúða verður 448 og atvinnuhúsnæði verður um 20.000 m². Heildarbyggingarmagn ofanjarðar verður um 64.000 m². Áætlaður fjöldi bílastæða er um 1.050.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Auglýsing skal birt um miðjan júni og standa til ágústloka þegar athugasemdafrestur rennur út.
Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag Hnoðraholts-og Vetrarmýrar frá 1996.
Tillaga skal auglýst samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Vífilsstaðalands.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
5. fundur
Sigurður Einarsson hjá Batterínu gerði grein fyrir mótun tillögu að Hnoðraholti norður. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
4. fundur
Tillögu vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni og umhverfissviði.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
15
19. fundur
Skipulagsstjóri kynnir tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
Bæjarstjórn Garðabæjar
17
17. (857). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og Rjúpnadals.
Bæjarráð Garðabæjar
18
44. (1905). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts. Tillagan, forsendur hennar og umhverfismat skal kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða skal kynna tillögur að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til þróunarsvæðis B, Vífilstaðalands og nýju deiliskipulagi Vetrarmýrar og Rjúpnadals.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
19
16. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi íbúðarbyggðar í norðurhluta Hnoðraholts sem skipulagsteymi Batterísins, Landslags og Eflu hafa unnið að. Einnig gert ráð fyrir byggingum ætluðum verslun og þjónustu í norðvesturhorn svæðisins. Sigurður Einarsson gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögum að deiliskipulagi, Vetrarmýrar og Rjúpnadals og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur.Tillögunni vísað til kynningar og umfjöllunar í umhverfisnefnd og íþrótta-og tómstundaráði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
20
15. fundur
Sigurður Einarsson í skipulagsteymi Batterísins, Eflu og Landslags kynnti stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarráð Garðabæjar
21
35. (1896). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu að viðbrögðum við umsögnum og felur bæjarstjóra að gera Skipulagsstofnun grein fyrir málinu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
22
12. fundur
Skipulagsráðfjafar gerðu grein fyrir mótun tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts norðurhluta.
Bæjarráð Garðabæjar
23
30. (1891). fundur
Bæjarráð samþykkir umsögn vegna tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu fyrir tengingu Hnoðraholtsbrautar við Arnarnesveg.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
11. fundur
Lögð fram tillaga að umsögn Garðabæjar vegna tilkynningar til ákvörðunar um matsskyldu fyrir tengingu Hnoðraholtsbrautar í Hnoðraholti við Arnarnesveg. Höfundur tillögunnar að umsögn er Efla ehf sem er í hópi skipulagsráðgjafa vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags Hnoðraholts norðurhluta sem unnið er að.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillögu að umsögn en leggur til að fram komi í umsögninni að á framkvæmdatíma uppbyggingar í Hnoðraholti og Vetrarmýri verði vegurinn ekki nýttur til gegnumaksturs fyrir þungaflutninga frá framkvæmdarsvæðum heldur til að þjónusta íbúðarbyggð sem fyrir er.
Samkvæmt drögum að tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi norðurhluta Hnoðraholts er gert ráð fyrir því að Hnoðraholtsbraut færist austar og sunnar en núverandi Hnoðraholtsbraut og að svæðið sem myndast þar á milli verði m.a. nýtt til hljóðvarna.
Bæjarráð Garðabæjar
25
29. (1890). fundur
Efla verkfræðistofa hefur fyrir hönd Garðabæjar sent Skipulagsstofnun tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu tengingar Hnoðraholtsbrautar í Hnoðraholti í Garðabæ við Arnarnesveg í Kópavogi. Skipulagsstofnun hefur óskað eftir að veitt verði umsögn um málið. Garðabær er einn af umsagnaraðilum varðandi áhrif framkvæmdarinnar á umhverfi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.