Beint í efni

29. (1890). fundur

30.07.2019
Bæjarráð Garðabæjar

29. (1890). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

30.07.2019

Kl. 08:00 - 08:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1905048

01

Maríugata 30-32 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gerð ehf., kt. 530116-0180, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 16 íbúðum að Maríugötu 30-32.

Málsnúmer 1907202

02

Bréf MS og KP varðandi byggingarrétt á bæjarstæði jarðarinnar Selskarðs, dags. 25.04.19.

Bæjarráð bendir bréfriturum á að með vísan til aðalskipulags Garðabæjar er ekki gert ráð fyrir byggð á því svæði þar sem áður stóð íbúðarhús í landi Selskarðs.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1907047

03

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð á Sveinskotsreit.

Eftirfarandi tilboð barst við opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð á Sveinskotsreit.

Jarðtækni ehf./JJ pípulagnir kr. 86.950.280

Kostnaðaráætlun kr. 76.422.860

Afgreiðslu frestað.

Málsnúmer 1906350

04

Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2019.

Bæjarráð samþykkir tillögu umhverfisnefndar um viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi 2018.

Málsnúmer 1907242

05

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tillögu að friðlýsingu háhitasvæði Brennisteinsfjalla, dags. 23.07.19.

Málsnúmer 1906192

06

Bréf Skipulagsstofnunar varðandi tengingu Hnoðraholtsbrautar við Arnarnesveg, dags. 25.07.19.

Efla verkfræðistofa hefur fyrir hönd Garðabæjar sent Skipulagsstofnun tilkynningu til ákvörðunar um matsskyldu tengingar Hnoðraholtsbrautar í Hnoðraholti í Garðabæ við Arnarnesveg í Kópavogi. Skipulagsstofnun hefur óskað eftir að veitt verði umsögn um málið. Garðabær er einn af umsagnaraðilum varðandi áhrif framkvæmdarinnar á umhverfi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1812195

07

Þjónustusamningur Áss styrktarfélags og Garðabæjar - kostnaðarútreikningur.

Bæjarráð samþykkir kostnaðarútreikning vegna samnings við Styrktarfélagið Ás um rekstur þjónustu búsetukjarna við Unnargrund. Samkvæmt kostnaðarútreikningi er gert ráð fyrir að kostnaður á ársgrundvelli verði kr. 126.296.845 og er þá miðað við eina næturvakt.

Sara Dögg Svanhildardóttir leggur fram eftirfarandi fyrirspurn.

"Það vekur furðu að drög að samningi við ÁS styrktarfélag sem samþykkt voru í bæjarráði 30. apríl síðastliðinn að bera undir bæjarstjórn sé ekki enn frágenginn. Þrátt fyrir að búið sé að gefa tilvonandi íbúum fyrirheit um að flutningar verði í ágústmánuði.

Ekki vekur það síður furðu að tilvonandi íbúar fái fregnir af seinkun um flutning með eins stuttum fyrirvara og raun ber vitni eða rétt um viku fyrir mánaðarmót. Hér er um einn viðkvæmasta hóp einstaklinga að ræða og verulegar breytingar á aðstæðum þessara einstaklinga og því gríðarlega mikilvægt að vanda til verka og lágmarka alla óvissu í slíku ferli.

Því legg ég fram eftirfarandi fyrirspurn:

Hvaða forsendur lágu fyrir þegar tilvonandi íbúum var tilkynnt að miðað væri við flutning í ágúst? Og hvað hefur breyst?"

Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.