Beint í efni

30. (1891). fundur

13.08.2019
Bæjarráð Garðabæjar

30. (1891). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

13.08.2019

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Björg Fenger - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1906334

01

Vetrarbraut 18, fjölnota íþróttahús - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Íslenskum aðalverktökum hf., kt. 660169-2379, leyfi til að byggja fjölnota íþróttahús að Vetrarbraut 18.

Málsnúmer 1907046

02

Sunnuflöt 35 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Birni Inga Hafliðasyni, kt. 140668-4519, leyfi til að reisa stoðveggi á lóðinni að Sunnuflöt 35.

Málsnúmer 1907255

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu um breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að gera ekki, fyrir sitt leyti, athugasemdir við tillögu að breytingu á svæðisskipulagi Suðurnesja enda verði tillagan tekin til umfjöllunar hjá samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins þar sem lagt verður mat á tillöguna út frá sameiginlegum hagsmunum höfuðborgarsvæðisins.

Málsnúmer 1907230

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um breytingu á ákvæðum um hámarkshæð vegna byggingar einbýlishúss að Víkurgötu 27.

Lögð fram.

Málsnúmer 1906192

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsögn vegna tilkynningar til ákörðunar um matsskyldu fyrir tengingu Hnoðraholtsbrautar við Arnarnesveg.

Málsnúmer 1710083

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.

Bæjarráð samþykkir samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðis sem afmarkast af Lyngási, Stórási og Ásabraut. Tillagan var auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga, sbr 1. mgr. 41. gr. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.

Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til eftirfarandi breytingar við auglýsta tillögu.

Íbúðum er fækkað úr 390 íbúðum í 375 íbúðir. Fjöldi bílastæða verður óbreyttur frá auglýstri tillögu og hækkar úr 1,2 í 1,25 bílastæði á íbúð.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Málsnúmer 1907130

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varaðndi umsókn um ljósaskilti á húsinu við Miðhraun 2.

Bæjaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Miðhrauni 2 um frávik frá skipulagsskilmálum varðandi uppsetningu á ljósaskilti.

Málsnúmer 1906365

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um fjölgun íbúða á lóðinni við Holtsveg 55.

Lögð fram.

Málsnúmer 1908033

09

Tilkynning frá Félagi Sameinuðu þjóðanna varðandi málstofu um innleiðingu sveitarfélaga á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, dags. 05.08.19.

Málsnúmer 1908055

10

Tilkynning frá Ferðamálastofu varðandi umsónarfrest um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála, dags., 06.08.19.

Bæjarráð vísar umsókninni til umfjöllunar umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1907047

11

Tilboð í framkvæmdir við gatnagerð á Sveinskotsreit.

Á fundi bæjarráðs 30. júlí sl. var lagt fram eitt tilboð í framkvæmdir við gatnagerð á Sveinskotsreit.

Jarðtækni ehf./JJ pípulagnir kr. 86.950.280.

Kostnaðaráætlun kr. 76.422.860.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarverkfræðingi að leita samninga við bjóðanda á grundvelli tilboðs hans.

Málsnúmer 1907017

12

Bréf Sjafnar Haraldsdóttur varðandi breytta skráningu eignar við Nýhöfn 3, dags. í júlí 2019.

Bæjarráð samþykkir að fela byggingarfulltrúa að taka til afgreiðslu umsókn bréfritara um að breyta skráningu eignar að Nýhöfn 3 í samræmi við heimildir í gildandi deiliskipulagi.

Við afgreiðslu málsins skal þess gætt að samkvæmt skipulagsskilmálum getur stærð atvinnurýmis sem tengist einstaka íbúðum einungis verið 60 fm að stærð og getur ekki talist sérstakur eignarhluti. Þinglýsa skal yfirlýsingu þess efnis ásamt því að taka fram að samkvæmt skilmálum skal atvinnustarfsemi í rýminu flokkast sem smástarfsemi tengd viðkomandi íbúð.

Við lokaúttekt skal fara fram skráning á atvinnurými í fasteignaskrá.

Málsnúmer 1812061

14

Fundargátt nefndarmanna - breytt innskráning.

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir innleiðingu nýrra reglna varðandi innskráningu bæjarfulltrúa og nefndarmanna í fundargátt.

Bæjarráð óskar eftir að persónufulltrúi mæti á fund bæjarráðs og geri nánar grein fyrir helstu ástæðum og forsendum fyrir nýjum reglum um innskráningu í fundargátt.

Málsnúmer 1803127

15

Samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu - viðræður SSH og ríkisins um uppbyggingu samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum starfshóps SSH og ríkisins um uppbyggingu samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu.