Holtsvegur 55, breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, austurhluti 1
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (854). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Holtsvegi 55 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Bæjarráð Garðabæjar
02
36. (1897). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa að Holtsvegi 55 um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna fjölgunar íbúða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
13. fundur
Lögð fram umsögn skipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem skipulagsnefnd óskaði eftir.
Skipulagsnefnd telur rétt að bóka : Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast.Tillögunni er því hafnað.
Baldur Ó. Svavarsson og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir véku af fundi undir þessum fundarlið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
12. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskiplagsbreytingu þar sem íbúðum er fjölgað um 4 án þess að byggingarmagn sé aukið.
Vísað til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Baldur Ó Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um fjölgun íbúða um 4 og aukningu á byggingarmagni. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem fram kemur að ekki hefur verið fallist á aukningu byggingarmagns í þeim tilvikum sem íbúðum hefur verið fjölgað. Með vísan í framlagða umsögn er svar skipulagsnefndar neikvætt. Baldur Ó Svavarsson og Guðrún Dóra Brynjólfdóttir véku af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn um fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi að Holtsvegi 55. Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf. Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.