Beint í efni

13. fundur

20.09.2019
Skipulagsnefnd Garðabæjar

13. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu

20.09.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1909084

01

Strætó - Nýtt leiðanet

Fulltrúar Strætó bs, Ragnheiður Einarsdóttir og Sólrún Svava Skúladóttir kynntu drög að nýju leiðarkerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. Skipulagsnefnd vísar tillögunum til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1903374

02

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Lögð fram uppfærð lýsing vegna tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.1213/2010. Tillagan verður unnin samhliða tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes. Skipulagasnefnd samþykkir lýsinguna 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Kynna skal lýsinguna almenningi og senda hana umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun.

Málsnúmer 1803108

03

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi kynnti tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes á Álftanesi og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem deiliskipulagstillagan kallar á. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á landnotkunarreitum Hvols og Jörfa, parhúsum við Bessastaðatjörn, golfvelli vestan og norðan Bessastaðatjarnar, útivistarsvæðum og fuglafriðlandi við Kasthúsatjörn og á Breiðabólstaðaeyri. Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissviði.

Málsnúmer 1710083

04

Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2

Tillaga að götuheiti

Lögð fram tillaga að heiti fyrir nýja götu sem nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1906365

05

Holtsvegur 55, breyting á deiliskipulagi

Lögð fram umsögn skipulagshöfundar og Urriðaholts ehf um tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem skipulagsnefnd óskaði eftir.

Skipulagsnefnd telur rétt að bóka : Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast.Tillögunni er því hafnað.

Baldur Ó. Svavarsson og Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir véku af fundi undir þessum fundarlið.

Málsnúmer 1908480

06

Urriðaholtsstræti 40-42 - Fjölgun íbúða. Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um eina, úr 19 í 20 íbúðir. Lögð fram umsögn skipulagshöfunda og Urriðaholts ehf sem skipulagsnefnd óskaði eftir.

Skipulagsnefnd telur rétt að bóka : Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast.

Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.

Í umsögn er mælt með því að lóðinni sé skipt í tvennt ef byggja á samkvæmt tillögunni. Skiplagsnefnd tekur undir það.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum fundarlið.

Málsnúmer 1706258

07

Hraungata 8 (áður 10) - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir sólskála á svölum efri hæðar. Svalir eru styrktar með stoðum sem ná út fyrir byggingarreit og hefur verið vikið frá deiliskipulagi hvað það varðar. Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa sem mælir gegn sólskála á svölum. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og fjármála-og stjórnsýslusviði.

Málsnúmer 1907004

08

Hraungata 15-19, deiliskipulagsbreyting. Austurhluti 1.

Málinu frestað til næsta fundar þar sem að umsögn skipulagshöfundar og Urriðaholts ehf liggur ekki fyrir.

Málsnúmer 1805169

09

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð

Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem gerir ráð fyrir breyttri landnotkun á tveimur svæðum, Veðurstofureit og Sjómannaskólareit. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.

Málsnúmer 1909066

10

Aðalskipulag Reykjavíkur - Iðnaðarsvæði í Álfsnesvík

Lögð fram auglýsing að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 og Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, ásamt nýju deiliskipulagi vegna iðnaðarsvæðis við Álfsvík.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd.

Málsnúmer 1909004F

11

afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 7