Beint í efni

Hraungata 8 (áður 10) - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1706258

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (861). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna svalaskýlis við einbýlishúsið að Hraungötu 8. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust tvær athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar, lögð hafa verið fram viðbótargögn og haldnir fundir með málsaðilum. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (861). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

3. (1912). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna svalaskýlis við einbýlishúsið að Hraungötu 8. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust tvær athugasemdir. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar, lögð hafa verið fram viðbótargögn og haldnir fundir með málsaðilum. Breytingin skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

1. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Hraungata 8. Tillagan var grenndarkynnt og bárust tvær athugasemdir. Á fundi skipulagsnefndar 4. október 2019 var mælt með að hafna tillögunni með vísan til athugasemda sem höfðu borist. Á fundi bæjarstjórnar 17. október 2010 var málinu vísað að nýju til skipulagsnefndar með vísan til þess að ný gögn höfðu borist frá eiganda Hraungötu 8.
Tillagan gerir ráð fyrir sólskýli á svölum 2.hæðar.
Athugsemdir sem bárust lagðar fram ásamt erindi frá umsækjanda.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Vísað er til þess að lokað svalarými hefði verið heimilt án grenndarkynningar ef útfærsla þakskyggnis hefði verið með öðrum hætti og þá hefðu áhrif hins lokaða rýmis verið þau sömu á aðliggjandi lóð.
Baldur Ó.Svavarsson óskar eftir því að í bókun komi fram að hann hafi lagt til við fyrri afgreiðslu málsins að þetta væri skynsamlegasta niðurstaðan.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

16. fundur

Lögð fram ný gögn varðandi tillöguna sem ekki lágu fyrir við umfjöllun skipulagsnefndar þegar málið var tekið fyrir núverið. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

15. (855). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að vísa afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna gustlokunar svala hússins að Hraungötu 8 að nýju til nefndarinnar með vísan til nýrra gagna í málinu.

Bæjarráð Garðabæjar

08

38 (1899.). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna gustlokunar svala hússins að Hraungötu 8. Umsóknin var grenndarkynnt og bárust athugasemdir þar sem umsókninni var mótmælt. Þá liggur fyrir neikvæð afstaða skipulagshönnuða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

14. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir sólskála á svölum 2.hæðar. Innsendar athugasemdir lagðar fram ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í innsendar athugasemdir og umsögn deiliskipulagshöfundar er tillögunni hafnað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

13. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir sólskála á svölum efri hæðar. Svalir eru styrktar með stoðum sem ná út fyrir byggingarreit og hefur verið vikið frá deiliskipulagi hvað það varðar. Lögð fram umsögn skipulagsráðgjafa sem mælir gegn sólskála á svölum. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og fjármála-og stjórnsýslusviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

11. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu vegna gerðar gustlokaðs rýmis á efri hæð hússins að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Athugasemdum og tillögu vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

12

10. (850). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

10. (850). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um svalalokun utan byggingarreits. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hraungötu 2, 4, 6, og 10 og Bæjargötu 11-19.

Bæjarráð Garðabæjar

14

22. (1883). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts í tilefni umsóknar um svalalokun utan byggingarreits. Grenndarkynna skal umsóknina eigendum Hraungötu 2,4,6, og 10 og Bæjargötu 11-19.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

9. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að gerð sólskála á svölum efri hæðar.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigenum Hraun götu 2, 4, 6 og 10 sem og Kinnnargötu 3 og Bæjargötu 11-19.

Bæjarstjórn Garðabæjar

16

8. (848). fundur


Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna lokunar svalarýmis einbýlishússins að Hraungötu 8 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

17

17. (1878). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis vegna lokunar svalarýmis einbýlishússins að Hraungötu 8 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

7. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem að gert er ráð fyrir lokuðu svalarými á svölum á efri hæð í suðausturhorni byggingar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugaemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfum 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar ef að eigandi Hraungötu 10 áður 12 hefur lýst því yfir að hann gerir ekki athugsemd við útfærsluna.

Bæjarráð Garðabæjar

19

27. (1793). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bergi Haukssyni, kt. 280962-3419 leyfi til að byggja einbýlishús að Hraungötu 10.