14. fundur
14. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
04.10.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Götulýsing í Garðabæ
Guðjón L.Sigurðsson hjá ráðgjafarstofunni LISKA kynnti stöðu utanhúslýsingar og þau sjónarmið, lausnir og kosti sem hafa verið til umfjöllunar undanfarin ár og með hvaða hætti taka mætti á utnahúslýsingu í skipulagi. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd mælir með því að málið verði kynnt almenningi með einhverjum hætti t.d. á íbúafundi sem stefnt er að í sambandi við mótun umferðaröryggisáætlunar.
02
Reynilundur 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við enda bílageymslu að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.skipulagslaga. Lagðar fram athugasemdir sem borist hafa en þar mótmælir eigandi að Reynilundi nr.17 sem er hús í sömu raðhúslengju tillögunni. Eigandinn er um leið arkitekt raðhúsalengjunnar.
Lögð fram húsakönnun sem unnin hefur verið í tengslum við gerð deiliskipulags fyrir Lundahverfi þar sem fram kemur að varðveislugildi raðhúsalengjunnar er metið hátt og lagt til að raðhúsalengjan hljóti sértaka vernd fyrir vikið.
Skipulagsnefnd mælir gegn því að grenndarkynnt byggingarleyfi verði veitt með vísan í hátt varðveislugildi raðhúsalengjunnar.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
03
Blikanes 14 - DSK breyting - stækkun á byggingarreit
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits til vesturs fyrir viðbyggingu við bílageymslu á neðri hæð hússins.
Lagðar fram athugsemdir sem borist hafa. Málinu vísað til úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Skipulagsstjóri vék af fundi undir þessum lið.
04
Haukanes 15-Umsókn um byggingarleyfi
Lagðar fram hugmyndir sem hafa verið unnar á vegum umsækjanda um útfærslu sem kemur til móts við athugasemdir. Skipulagsstjóra falið að funda með þeim sem athugasemdir gerðu og kynna fyrir þeim hugmyndirnar.
05
Hraungata 8 (áður 10) - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir sólskála á svölum 2.hæðar. Innsendar athugasemdir lagðar fram ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í innsendar athugasemdir og umsögn deiliskipulagshöfundar er tillögunni hafnað.
06
Smáraflöt 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir viðbyggingu framan við núverandi bílageymslu. Veggur á lóðarmörkum verður því rúmir 17 metrar en samkvæmt deiliskipulagi skal veggur á lóðarmörkum ekki vera lengri en 7,5 m.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
07
Nýhöfn 1-5, breyting á bílastæðum
Erindi húsfélags Nýhafnar 1-3 og 5 lögð fram þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til tillögu að breytingu á fyrirkomulagi bílastæða.
Þar sem að tillagan gerir ráð fyrir því að stór hluti bílastæða verði skilgreindur sem einkastæði samkvæmt tillögunni myndi það m.a. kalla á stækkun lóðar. Skipulagsnefnd telur að tillagan sé í miklu ósamræmi við skipulag bílastæða í Sjálandi og mælir ekki með því að deiliskipulaginu sér breytt hvað þetta varðar.
08
Hraungata 15-19, deiliskipulagsbreyting. Austurhluti 1.
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að íbúðum verði fjölgað um 4 og fyrirkomulagi bílastæða breytt til að koma nægjanlegum fjölda bílastæða fyrir á lóð. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda sem mælir ekki með tillögunni eins og hún er útfærð. Þó að koma megi auknu magni íbúða fyrir á lóð án aukins byggingarmagns þá eru lóðirnar seldar miðað við ákveðið byggingarmagn og ákveðin fjölda íbúða og því má telja eðlilegt er að þeir sem kaupa slikar lóðir haldi sig innan þessara heimilda. Enda telur skipulagsnefnd slíkt skipta miklu með tilliti til uppbyggingar samgangna, skóla og leikskóla í hverfinu. Eins þarf hlutfall á milli stærða ibuða að haldast. Með vísan í ofangreind atriði og umsögn deiliskipulagshöfundar er tillögunni hafnað.
09
Hraungata 2-6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir raðhúslengjuna Hraungata 2-6. Umsögn deiliskipulagshöfundar lagt fram. Hæðarlega og lögun lóðar er erfið og umsókn gerir ráð fyrir staðsetningu sorpgeymslu við lóðarmörk að götu. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá kröfum 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sbr.3.mgr.sömu greinar þar sem um óverulegt frávik er að ræða enda vandséð hvernig leysa má málið með öðrum hætti.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
10
Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2
Skipulagsnefnd samþykkir heitið "Eskiás" fyrir götuna sem í samþykktu deiliskipulagi er nefnd "Nýgata".
Í rökstuðning með tillögunni er bent á að örnefnið Eskines er til í nágrenni við Ásahverfi og að engin gata ber sama heiti í fasteignaskráningu á landsvísu.
13
Lundahverfi - nýtt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Lundahverfis ásamt húsakönnun, fornleifaskráningu og umsögn Minjastofnunar.
Deiliskipulagið hefur hlotið auglýsingar ferli og verið samþykkt í bæjastjórn í nóvember á síðasta ári. Þá lág fyrir ófullgerð húsakönnun sem að mati skipulagsnefndar ekki kallaði á breytingar á deiliskipulaginu.
Síðan hefur húsakönnun verið unnin til fullnustu í samráði við Minjastofnun. Niðurstaða húsakönnunarinnar er sú að lögð er til vernd á húsunum Einilundur 10, Gígjulundur 7 og Reynilundur 11-17 enda hafa þau hús hlotið hæstu einkun í varðveislumati.
Skipulagsnefnd telur að ekki sé æskilegt að setja ákvæði um hverfisvernd einstakra eigna í deiliskipulagi nema að undangenginni stefnumótun þar sem tekin er afstaða til samráðs við eigendur og til samspils þeirrar verndar við aðalskipulag.
Skipulagsnefnd vísar því til tækni-og umhverfissviðs að móta stefnum um húsvernd í deiliskipulagi og aðalskipulagi.
Bæta skal við eftirfarandi umfjöllun í fyrsta kafla í deiliskipulagsgreinargerðar.
1.8. Húsvernd. Niðurstaða húsakönnunar er sú að lögð er til vernd á húsunum Einilundur 10, Gígjulundur 7 og Reynilundur 11-17 enda hafa þau hús hlotið hæstu einkun í varðveislumati. Í þessu deiliskipulagi eru ekki sett ákvæði um hverfisvernd eða aðrar ráðstafanir umfram það varðveislumat sem kemur fram í húsakönnun. Skoðað verður sérstaklega hvernig standa megi að húsvernd í framhaldi af niðurstöðu húsakannanna í grónum hverfum í Garðabæ og ef ástæða þykir til að leggja á hverfisvernd í deiliskipulagi verður það gert með sérstakri deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindri breytingu í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Við gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag Púttvallar við Vífilsstaðaveg sem tók gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr.603/2005 falla úr gildi. Ákvæði þess deiliskipulags hafa verið felld óbreytt inn í deiliskipulagstillögu Lundahverfis.
14
afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 8
14.1 - 1907097 - Asparlundur 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingun á íbúðarhúsinu að Asparlundi 10 að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Breytingar eru í samræmi við samþykkt deiliskipulag sem hefur ekki ennþá tekið gildi.
Engar athugasemdir hafa borist.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
14.2 - 1908494 - Heiðarlundur 15, viðbygging
Heiðarlundi 15 sem vísað var til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að samþykkt deiliskipulag hefur ekki ennþá tekið gildi. Tillagan gerir ráð fyrir að bygging fari lítillega út fyrir byggingarreit að framanverðu.
Grenndarkynning náði til eigenda íbúðarhúsanna að Heiðarlundi nr. 17, 8, 11 og 13. Eigendur hafa með áritun sinni staðfest að þeir geri ekki athugasemdir við tillöguna.
Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
14.3 - 1906181 - Jafnakur 8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
14.4 - 1906067 - Þrastanes 10 Breyting á lofthæð - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
14.5 - 1908366 - Holtsbúð 37 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingum á íbúðarhúsi sem er í sarmræmi við deiliskipulag að öðru leyti en því að bílageymslu hluti fer um 20 cm út fyrir byggingarreit inn að miðju lóðar.
Þar sem hér er um óverulegt frávik að ræða gerir skipulagsstjóri ekki athugasem við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
14.6 - 1909297 - Sveinskotsvör - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að deiliskipulagsbreytingu þar sem gert er ráð fyrir að bygging fari lítillega út fyrir byggingarreit í átt að fyrirhuguðum húsum við Litlubæjarvör.
Svar: Sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi sem yrði vísað til grenndarkynningar. Grenndarkynna þarf eigendum við Sveinskotsvör nr.3 og 8, Bjarnastaðavör 2og 4 og Litlubæjarvör nr.20 21, 22, 23.
14.7 - 1903120 - Álftaneskaffi - stækkun - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun á eldhúshluta veitingahússins Álfteneskaffi að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Lagt fram erindi Íslandsbanka þar sem fram kemur að bankinn sem landeigandi í Breiðumýri geri ekki athugasemd við stækkunina. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.