Beint í efni

Götulýsing í Garðabæ.

Málsnúmer 1906092

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

9. (2204). fundur

Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs fóru yfir stöðu götulýsingar í Garðabæ, endurnýjun lampa og áætlaðar framkvæmdir ásamt yfirliti yfir þróun kostnaðar við götulýsingu í Garðabæ undanfarin ár.

Fylgiskjöl

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

17. fundur

Guðjón L.Sigurðsson hjá ráðgjafarstofunni LISKA kynnti stöðu utanhúslýsingar og þau sjónarmið, lausnir og kosti sem hafa verið til umfjöllunar undanfarin ár og með hvaða hætti taka mætti á utanhúslýsingu í skipulagi. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Umhverfisnefnd mælir með því að málið verði kynnt almenningi með einhverjum hætti t.d. á íbúafundi sem stefnt er að í sambandi við mótun umferðaröryggisáætlunar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

14. fundur

Guðjón L.Sigurðsson hjá ráðgjafarstofunni LISKA kynnti stöðu utanhúslýsingar og þau sjónarmið, lausnir og kosti sem hafa verið til umfjöllunar undanfarin ár og með hvaða hætti taka mætti á utnahúslýsingu í skipulagi. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Skipulagsnefnd mælir með því að málið verði kynnt almenningi með einhverjum hætti t.d. á íbúafundi sem stefnt er að í sambandi við mótun umferðaröryggisáætlunar.