17. fundur
17. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
16.10.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson - varamaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1906092
01
Götulýsing í Garðabæ
Guðjón L.Sigurðsson hjá ráðgjafarstofunni LISKA kynnti stöðu utanhúslýsingar og þau sjónarmið, lausnir og kosti sem hafa verið til umfjöllunar undanfarin ár og með hvaða hætti taka mætti á utanhúslýsingu í skipulagi. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði. Umhverfisnefnd mælir með því að málið verði kynnt almenningi með einhverjum hætti t.d. á íbúafundi sem stefnt er að í sambandi við mótun umferðaröryggisáætlunar.
Málsnúmer 1910012
02
Útikennsla
Umhverfisnefnd Garðabæjar hefur undanfarin 20 ár boðið grunnskólum bæjarins upp á útikennslu um lífríki Vífilsstaðavatns og fuglaskoðun á Álftanesi. Linda Björk Jóhannsdóttir kynnir hvernig útikennslan hefur farið fram undanfarin ár.
Málsnúmer 1904109
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2020 (2020-2023)
Umhverfisnefnd samþykkir tillögur í fjárhagsáætlun.
Málsnúmer 1810055
04
Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.
Staða kynningarveggspjalds kynnt.
Málsnúmer 1909468
05
Starfsskýrlsla Skógræktarfélags Garðabæjar 2018-2019
Skýrslan lögð fram. Ánægja með öflugt starf skógræktarfélagsins.
Málsnúmer 1910209
06
Tillaga um lengingu varptíma við Vífilsstaðavatn
Umhverfisnefnd leggur til að varptími verður lengdur til 15. ágúst samanber tillögu í minnisblaði.