Garðabær gegn sóun - Innkaupa- og úrgangsstefna Garðabæjar - Tillaga um að draga úr plastmengun
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
1 (22-26). fundur
Staða við innleiðingu á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar kynnt. Innleiðing er í fullum gangi.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
02
44. fundur
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við drög af lokaskýrslu og fagnar því að innleiðing sé komin á fullt skrið.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
03
43. fundur
Karl Eðvaldsson ráðgjafi hjá Pure North kynnti stöðu mála við innleiðingu innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
04
41. fundur
Umhverfisnefnd fagnar því að grænu teymin séu orðin starfræk og hlakkar til að styðja við framgang tillagna.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
20. fundur
Innleiðing á innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar - Garðabær gegn sóun er hafin með kynningu fyrir forstöðumenn í stofnunum Garðabæjar. Þeir munu svo skipa græn teymi innan sinna stofnanna til að leiða vinnuna við innleiðinguna.
Umhverfisnefnd þakkar starfsfólki fyrir vel unnin störf.
Bæjarráð Garðabæjar
06
5. (1914). fundur
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn:
„Í hvaða aðgerðir hefur verið farið í stofnunum bæjarins við innleiðingu stefnu Garðabæjar gegn sóun?
Hvernig hefur stefnunni verið fylgt eftir hingað til?“
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
13. (853). fundur
Jóna Sæmundsdóttir, gerði grein fyrir innkaupa- og úrgangstefnu Garðabæjar en markmið hennar er að fylgja eftir umhverfisstefnu Garðabæjar þar sem stefnt er að því að draga úr myndun úrgangs sem og auka flokkun til endurnýtingar og endurvinnslu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls og hrósaði umhverfisnefndinni fyrir vel unnið verk.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
09
35. (1896). fundur
Bæjarráð vísar tillögu um innkaupa- og úrgangsstefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Umhverfisnefnd Garðabæjar
10
16. fundur
Umhverfisnefnd samþykkir stefnuna og vísar henni til bæjarstjórnar til samþykktar.
Unnið verður áfram að gerð veggspjalds.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
11
15. fundur
Áframhaldanandi kynning á stöðu verkefnisins. Stefnt á útgáfu stefnu á degi íslenskrar náttúru.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
12
13. fundur
Karl Eðvaldsson og Guðrún Guðmundsdóttir kynntu stöðu lokaskýrlsu verkefnisins ásamt paggati sem gefið verður út í september.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
13
12. fundur
Karl Eðvaldsson og Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir frá ReSourse international kynntu stöðu verkefnisins og drög að lokaskýrslu.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
14
9. fundur
Staða verkefnisins kynnt fyrir nefndinni. Búið er að ráða ráðgjafa og er verkefnið að hefjast.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
16
7. fundur
Staða verkefnisins kynnt nefndinni, þar sem verið er að móta umfang verkefnis og stöðuna hjá stofnunum í dag.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
17
6. fundur
Umhverfisnefnd hefur hafið undirbúning að innleiðingu á stefnu varðandi plastmengun.
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
13. (835). fundur
Guðfinnur Sigurvinsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögur sem hann flytur fyrir hönd allra bæjarfulltrúa.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela umhverfisnefnd og tækni- og umhverfissviði bæjarins að hefja vinnu við undirbúning sem miðar að því að koma í veg fyrir og draga sem mest úr plastmengun í rekstri sveitarfélagsins og stofnana á vegum þess."
Greinargerð:
Plastmengun hafsins er ein alvarlegasta umhverfisvá samtímans og geta sveitarfélög ekki skorast undan þeirri ábyrgð að stuðla að lausn vandans enda möguleikar nærsamfélagsins til þess miklir. Garðabær vill vera leiðandi sveitarfélag á þessu sviði sem og á öðrum sviðum umhverfisverndar og grænni valkosta í rekstri.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framlagða tillögu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framlagða tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.