15. fundur
15. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
28.08.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eva Ósk Ármannsdóttir - skjalastjóri
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.
Áframhaldanandi kynning á stöðu verkefnisins. Stefnt á útgáfu stefnu á degi íslenskrar náttúru.
02
Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri fór yfir athugasemdir sem hafa borist. Umhverfisnefnd telur mjög mikilvægt að Garðahraun efra haldist að mestu óraskað og njóti verndar. Umhverfisnefnd leggur til að stígurinn næst Hraunhólum verði felldur úr deiliskipulagstillögu og vísar þar í athugasemd og einnig stikaða leiðin við Hádegishól.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við gerð stígs í gegnum hraunið verði umhverfisrask sem minnst og vandað til vals á ljósbúnaði. Samhliða verði farið í að friðlýsa allt hraunið út fyrir hraunjaðar.
03
Bæjargarður, stígakerfi, dsk breyting.
Umhverfisnefnd leggur til að stígurinn næst Hraunhólum, sbr. lið 2 verði felldur úr deiliskipulagstillögu.
04
Tillaga að friðlýsingu svæðis í verndarflokki rammaáætlunar - Brennisteinsfjöll
Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
05
Umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála.
Lagt fram.
07
Náttúruspjöll í Helgafelli
Umhverfisnefnd harmar eyðilegginguna og þakkar viðbragðsaðilum fyrir skjót og góðar úrbætur.
08
Grár dagur - Átaksverkefni fyrir bættum loftgæðum
Umhverfisnefnd er fylgjandi þessu verkefni.