12. fundur
12. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
15.05.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - aðalmaður
- Hrönn K. Sch. Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Páll Magnús Pálsson - aðalmaður
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson - varamaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
01
Rafhjól til láns
Kristinn Jón Eysteinsson kynnti tilraunaverkefni Reykjavíkurborgar með rafreiðhjól í láni. Verkefnið er áhugavert og umhverfisnefnd felur umhverfis- og tæknisviði að skoða nánari útfærslu fyrir Garðabæ og kostnað.
02
Tillaga um að draga úr plastmengun í rekstri Garðabæjar og stofnana á vegum bæjarins.
Karl Eðvaldsson og Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir frá ReSourse international kynntu stöðu verkefnisins og drög að lokaskýrslu.
03
Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Dagný Bjarnadóttir skipulagshönnuður og Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri kynntu tillögur að deiliskipulagi friðlandisins Gálgahrauns og Garðahrauns neðra. Tillögu hefur verið vísað af skipulagsnefnd til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissvið. Umhverfisnefnd leggur áherslu á að við vinnu að nánari úrvinnslu á tillögu, ábendingum og umsögnum hjá deiliskipulagsráðagjafa og umhverfis- og tæknisviði verði rask á hrauni ekki meira en nauðsynlegt er og stígagerð verði stillt í hóf.
Umhverfisnefnd óskar eftir að fá kynningu að lokinni úrvinnslu.
04
Garðahraun efra-Fólkvangur, deiliskipulag
Dagný Bjarnadóttir skipulagshönnuður og Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri kynntu tillögur að deiliskipulagi fólkvangsins Garðahrauns efra. Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að fólkvangurinn verði stækkaður út fyrir hraunjaðarinn í Bæjargarði og að friðlýsingarteyminu verði falið að útfæra það nánar í samstarfi við Umhverfisstofnun.
Umhverfisnefnd styður tillögur skipulagsnefndar að breytingum frá fundi skipulagsnefndar 10.05.2019 en í fundargerð Skipulagsnefndar segir:
Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á forkynntri tillögu:
-Aðalstígur sem sýndur er hjá Hádegishóli breytist í stikaða leið.
-Tenging við Molduhraun á móts við Vesturhraun 5 sem aðalstígur verði felld út.
-Malarstígar á uppdrætti breytast allir í stikaða leið.
-Sett verði ákvæði um það í skilmálum að heimilt sé að gera lítilsháttar breytingar á stikuðum leiðum sem auðvelda fólki aðgengi, svo sem með því að fjarlægja steina eða leggja hraunhellur sem upp-og niðurstig á stöku stað.
-Heimilt verði að útfæra stikaða leið á stöku stað sem malarslóða ef sýnt er fram á að umferð gangandi fólks sé að valda skemmdum á náttúrulegum gróðri.
05
Snjallvæðing Garðabæjar
Umhverfisnefnd styður það að skipaður verði starfshópur um snjallvæðingu Garðabæjar.
06
Álftanes sjóvarnir
Umhverfisnefnd samþykkir áform um sjóvörn við Bessastaði á Álftanesi.
07
Plastlaus september 2019
Mál þegar tekið fyrir og samþykkt að styrkja Plastlausan september með sama hætti og undanfarin ár.
08
Hreinsum Ísland
Garðabær styrkir nú þegar íbúasamtök og félagasamtök í gegnum hreinsunarátak sem haldið hefur verið undanfarin ár og þar er öllum Garðbæingum heimilt að sækja um styrk og fá úthlutað svæðum til hreinsunar.
09
Fundargerðir 2018 - 2022 - Reykjanesfólkvangur
Fundagerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 27. mars 2019 lögð fram.