Beint í efni

Snjallvæðing Garðabæjar

Málsnúmer 1802205

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

5. fundur

Lagt er fram mál nr. 1802205, snjallvæðing Garðabæjar. Farið yfir minnisblað um málið sem lagt var fram af tækni- og umhverfissviði og upplýsingadeild Garðabæjar um lausnir sem í boði eru í átt að frekari snjallvæðingu sveitarfélagsins. Fjölskylduráð leggur áherslu á að velferðartækni verði nýtt til að efla stuðningsþjónustu á fjölskyldusviði, til dæmis í málefnum fatlaðs fólks og aldraðra, sbr. meðal annars stefnu bæjarins um málefni eldri borgara. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs falið að fylgja málinu eftir og leggja fram drög að aðgerðaráætlun þess efnis á fundi fjölskylduráðs í september.

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

02

4. fundur

Lagt fram til kynningar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lagt fram til umfjöllunar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

10. fundur

Skólanefnd fagnar áhugaverðu verkefni og leggur áherslu á sterka tengingu við skólasamfélagið.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

05

12. fundur

Umhverfisnefnd styður það að skipaður verði starfshópur um snjallvæðingu Garðabæjar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

8. fundur

Lagt fram.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Bæjarráð fjallaði um minnisblað um snjallvæðingu Garðabæjar á fundi sínum 26. mars sl. Í minnisblaðinu er m.a. farið yfir að hvaða leyti Garðabær er nú þegar snjall og hvaða lausnir væri hægt að skoða nánar með því markmiði að Garðabær verði snjall og tengdur bær. Þar er lagt til að settur verði af stað vinnuhópur til að fylgja málinu eftir og móta stefnu Garðabæjar um snjalllausnir sem verður lögð fyrir bæjarráð. Bæjarráð vísaði minnisblaðinu til umfjöllunar nefnda.

Lagt fram og rætt.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

08

12. (1873). fundur

Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði um snjallavæðingu Garðabæjar þar sem m.a. er farið yfir að hvaða leyti Garðabær er nú þegar snjall og hvaða lausnir væri hægt að skoða nánar með því markmiði að Garðabær verði snjall og tengdur bær.
Í minnisblaðinu er lagt til að settur verði af stað vinnuhópur til að fylgja málinu eftir og móta stefnu Garðabæjar um snjalllausnir sem verður lögð fyrir bæjarráð.

Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar nefnda.

Fylgiskjöl