12. (1873). fundur
12. (1873). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
26.03.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1902061
01
Rafræn skjalavistun og skráning í málakerfi Garðabæjar.
Á fund bæjarráðs mætti Eva Ósk Ármannsdóttir, skjalastjóri Garðabæjar og kynnti rafræna skjalavistun og skráningu í málakerfi bæjarskrifstofa og stofnana bæjarins.
Málsnúmer 1707195
02
Keldugata 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vigni Frey Andersen, kt. 230371-5719, leyfi til að stækka einbýlishús sem er í byggingu að Keldugötu 3.
Málsnúmer 1903093
03
Rjúpnahæð 2 -Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svanhildi Pétursdóttur, kt. 160365-5019, leyfi til að stækka núverandi hús að Rjúpnahæð 2.
Málsnúmer 1903352
04
Bréf Kvenfélags Garðabæjar um hátíðarhlaðborð á 17. júní, dags. 21.03.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní nk. verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1903357
05
Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga um almennt eftirlit með fjármálastjórn sveitarfélaga, dags. 18.03.19.
Málsnúmer 1902216
06
Afgreiðsla skólanefndar á umsókn Hjallastefnunnar um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skólanefndar um að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi. Forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og að þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi.
Málsnúmer 1811339
07
Afgreiðsla skólanefndar um úthlutun á styrkjum úr þróunarsjóði grunnskóla árið 2019.
Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2019. Alls bárust 41 umsókn í sjóðinn að fjárhæð kr. 54.000.000. Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 25.000.000 úr sjóðnum til 28 verkefna. Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við úrvinnslu og mat umsókna. Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.
Málsnúmer 1903340
08
Tillaga um að senda ungmennum sundkort.
Lögð fram eftirfarandi tillaga sem vísað var til umfjöllunar bæjarráðs á fundi bæjarstjórnar 21. mars sl.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að senda öllum ungmennum sem fædd eru árin 2001, 2002 og 2003 árskort í sund. Ásamt því að senda þeim árskort í sund verður þeim send hvatning um að stunda hreyfingu ásamt boði um fræðslu og kennslu í hinum ýmsu leiðum sem hægt er að nýta sér innan Garðabæjar til að stunda líkams- og heilsurækt.“
Greinargerð
Heilsueflandi samfélag er samfélag þar sem heilsa og líðan íbúa er í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.
Þegar nýting hvatapeninga er skoðuð sést að nýting þeirra lækkar eftir því sem að börnin verða eldri. Með því að senda ungmennum árskort í sund ásamt hvatningu og boð um kennslu erum við að reyna að fá ungmenni til að hreyfa sig meira og nota þá aðstöðu sem til er í bænum. Nauðsynlegt er að fá fagfólk með í lið til að fræðsla og kennsla í hinum ýmsu leiðum til að stunda líkams- og heilsurækt verði sem best og henti sem flestum.
Kyrrseta og brottfall úr íþróttum er eitthvað sem þarf að skoða í samfélaginu og nauðsynlegt að leita leiða til að auka hreyfingu ungmenna.
Þegar börn fara að eldast minnkar oft hreyfingin. Ofþyngd barna og unglinga er hratt vaxandi vandamál í vestrænum löndum, sem við Íslendingar höfum ekki farið varhluta af, en ofþyngdinni fylgja oftar en ekki heilsufarsleg, sálræn og félagsleg vandamál. Nauðsynlegt er að beina sjónum sínum meira að ofneyslu og hreyfingarleysi og hættunni sem þessu fylgir. Árangursríkasta leiðin til að snúa þessari þróun við eru markvissar forvarnir og heilsuefling með megináherslu á breytingu á matarvenjum og aukna hreyfingu.
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í ungmennaráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802205
09
Minnisblað um snjallvæðingu Garðabæjar
Upplýsingastjóri gerði grein fyrir minnisblaði um snjallavæðingu Garðabæjar þar sem m.a. er farið yfir að hvaða leyti Garðabær er nú þegar snjall og hvaða lausnir væri hægt að skoða nánar með því markmiði að Garðabær verði snjall og tengdur bær.
Í minnisblaðinu er lagt til að settur verði af stað vinnuhópur til að fylgja málinu eftir og móta stefnu Garðabæjar um snjalllausnir sem verður lögð fyrir bæjarráð.
Bæjarráð vísar minnisblaðinu til umfjöllunar nefnda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1901274
10
Erindi Hrafnistu um samstarf við rekstur dagdvalar, dags. 17.01.19.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samkomulag við Hrafnistu um rekstur dagdvalar Ísafoldar frá og með 1. apríl nk.
Málsnúmer 1903375
11
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, 710. mál., dags. 22.03.19.
Lagt fram.