Umsókn um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi við Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (846). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar um að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi. Forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og að þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi
Bæjarráð Garðabæjar
02
12. (1873). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skólanefndar um að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi. Forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og að þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
03
8. fundur
Skólanefnd leggur til við bæjarráð að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi enda stuðlar það að auknum fjölbreytileika við val á skóla í bæjarfélaginu. Stöðugleiki í námsframboði er mikilvægur og forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
8. (1869). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skólanefndar.