8. fundur
8. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
19.03.2019
Kl. 17:00 - 21:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Sófus Gústavsson - varamaður
Starfsmenn
- Katrín Friðriksdóttir - deildarstjóri skóladeildar
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Katrín Friðriksdóttir
Vegna afgreiðslu umsókna í Þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ sátu eingöngu kjörnir fulltrúar þennan fund.
Í upphafi fundar óskaði formaður skólanefndar grunnskóla, Sigríður Hulda Jónsdóttir, eftir að bæta á dagskrá máli er varðar skóladagatal næsta árs. Var það samþykkt samhljóða.
Dagskrá
02
Umsókn um leyfi fyrir skólastarfi á miðstigi við Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Skólanefnd leggur til við bæjarráð að verða við erindi Hjallastefnunnar um leyfi fyrir kennslu á miðstigi enda stuðlar það að auknum fjölbreytileika við val á skóla í bæjarfélaginu. Stöðugleiki í námsframboði er mikilvægur og forsenda fyrir leyfisveitingu er að viðeigandi húsnæði sé til staðar og þessi aukna starfsemi dragi á engan hátt úr þeirri starfsemi sem fyrir er á leik- og grunnskólastigi.
03
Þróunarsjóður grunnskóla 2019
Til fundarins komu fulltrúar þeirra grunnskóla í Garðabæ sem áttu umsóknir í sjóðinn og kynntu verkefnin stuttlega og svöruðu spurningum nefndarmanna. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ krónum 25.000.000.- í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust 41 umsókn í sjóðinn sem allar voru teknar til afgreiðslu. Heildarupphæð umsókna var tæpar 54 milljónir. Lagt er til að 28 verkefni fái styrk. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni metnaðarfullu skólastarfi í Garðabæ.
12
Þróunarsjóður grunnskóla - Út úr grámyglunni - útivist, hreyfing og vellíðan starfsmanna
17
Þróunarsjóður grunnskóla - Aukin sveigjanleiki og vellíðan nemenda með adhd og kvíða innan skólasamfélagsins.
19
Þróunarsjóður grunnskóla - STEAM - Science, Technology, Engineering, Arts and Mathematics (Vísindi, Tækni, Verkfræði, Listir og Stærðfræði)
21
Þróunarsjóður grunnskóla -,,Betri enskukunnátta í alþjóðavæddu samfélagi? - Þróun námsefnis og námsmats í færnimiðaðri enskukennslu á miðstigi.
25
Þróunarsjóður grunnskóla - Verkfærakistan - námskeið fyrir fagfólk til að vinna með hópa og einstaklinga í samskipta og félagsvanda
33
Þróunarsjóður grunnskóla - Innleiðing á Beinum fyrirmælum (Engelman´s Direct Instruction) og fimiþjálfunar í Urriðaholtsskóla ? áframhaldandi handleiðsla grunnskólakennara
35
Þróunarsjóður grunnskóla - Leikur og hreyfing yngstu barnanna í heilsueflandi skóla
37
Þróunarsjóður grunnskóla - Vísindi í námi og leik. Náttúrufræðikennsla í 1.-4.bekk í samstarfi við HR
38
Þróunarsjóður grunnskóla - Innleiðing Google Classroom (G-Suite) á miðstigi í Flataskóla
40