Beint í efni

Afgreiðsla skólanefndar varðandi tillögu að breytingu á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla 2019.

Málsnúmer 1811339

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (1885). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um eftirfarandi breytingu á 5. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.

Við 5. gr. kemur eftirfarandi viðbót.

"Komi til þess að ekki sé hægt að vinna verkefni skal styrkur falla niður. Skólanefnd er heimilt að endurúthluta styrknum."

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

11. fundur

Skólanefnd leggur til við bæjarráð að breytingar verði gerðar á 5. lið reglna um þróunarsjóð grunnskóla.

Bæjarráð Garðabæjar

03

12. (1873). fundur

Lögð fram afgreiðsla skólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði grunnskóla 2019. Alls bárust 41 umsókn í sjóðinn að fjárhæð kr. 54.000.000. Skólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 25.000.000 úr sjóðnum til 28 verkefna. Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar gerði grein fyrir vinnu skólanefndar við úrvinnslu og mat umsókna. Bæjarráð staðfestir tillögur skólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um þróunarsjóð grunnskóla.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

8. fundur

Til fundarins komu fulltrúar þeirra grunnskóla í Garðabæ sem áttu umsóknir í sjóðinn og kynntu verkefnin stuttlega og svöruðu spurningum nefndarmanna. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ krónum 25.000.000.- í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust 41 umsókn í sjóðinn sem allar voru teknar til afgreiðslu. Heildarupphæð umsókna var tæpar 54 milljónir. Lagt er til að 28 verkefni fái styrk. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni metnaðarfullu skólastarfi í Garðabæ.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

7. fundur

Farið yfir verkferla í tengslum við úthlutun úr sjóðnum.

Bæjarráð Garðabæjar

06

4. (1865). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar nýjan málslið við 6. gr. sem verður 4 ml. og hljóðar svo:

„Verkefni sem fá styrk úr þróunarsjóði geta verið tilnefnd til viðurkenningar eða verðlauna á Menntadegi Garðabæjar.“

Fylgiskjöl

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

07

6. fundur

Umræður um áhersluþætti næsta árs. Skólanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð breytingar á 6. gr. í reglum um Þróunarsjóð grunnskóla.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

08

5. fundur

Rætt um drög að áherslum sjóðsins fyrir úthlutun 2019.