24. (1885). fundur
24. (1885). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
25.06.2019
Kl. 08:00 - 08:50
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1902069
01
Úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar -kynning á stöðu verkefnis.
Á fund bæjarráðs mætti Haraldur Líndal Haraldsson og gerði grein fyrir stöðu úttektar sem hann er að vinna að á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar. Haraldur gerði grein forsendum og nálgun á verkefninu sem felst í því að greina reksturinn með því að rýna fjárhagsupplýsingar og eiga viðtöl við alla forstöðumenn.
Fram kom að stefnt er að lokaskilum skýrslu í byrjun september.
Málsnúmer 1906193
02
Stórás 4-6 - Umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúar að veita Mótási Garðabæ ehf., kt. 501286-1419, leyfi til að rífa núverandi hús að Stórási 4-6.
Málsnúmer 1903061
03
Víkurgata 29 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita PK-Byggingum ehf., kt. 530307-2200, leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 29.
Málsnúmer 1810028
04
Betri Garðabær - framkvæmdaáætlun.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi áætlun um framkvæmdir verkefna sem hlutu kosningu í rafrænum íbúakosningum - Betri Garðabær.
Framkvæmt 2019 Kostnaður Framkvæmt 2020 Kostnaður
Skjólveggur við heita
potta í Ásgarði 2 mkr Útivistarstígur í Heiðmörk 20 mkr
Útisturta við ströndina í Sjálandi 2 mkr Fjórir vatnsfontar 5 mkr
Sundfatavindur í Álftaneslaug 1 mkr Leiksvæði við ströndina í Sjálandi 25 mkr
Tíu áningastaðir með bekkjum 10 mkr Sjónaukar við Arnarnesvog 3 mkr
Aparóla við Hofsstaðaskóla 3 mkr Fræðsluskilti við stríðsminjar 5 mkr
Fjölgun strætóskýla (að hluta) 12 mkr Ærslabelgur við Álftanesskóla 3 mkr
Yfirbyggt hjólask. við Aktu Taktu 5 mkr
Samtals 30 mkr Samtals 66 mkr
Framkvæmdaáætlun verður birt á vef Garðabæjar og uppfærð á þriggja mánaða fresti og einnig verða framkvæmdirnar sýnilegar á kortavef bæjarins, undir „verklegar framkvæmdir“. Reglulega verða birtar fréttir á vef Garðabæjar og Facebook síðu bæjarins um framgang verkefnanna og þegar hverju verkefni er lokið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811339
05
Afgreiðsla skólanefndar varðandi tillögu að breytingu á reglum um Þróunarsjóð grunnskóla 2019.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar um eftirfarandi breytingu á 5. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla.
Við 5. gr. kemur eftirfarandi viðbót.
"Komi til þess að ekki sé hægt að vinna verkefni skal styrkur falla niður. Skólanefnd er heimilt að endurúthluta styrknum."
Málsnúmer 1903352
06
Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi þakkir við skipulag og framkvæmd hátíðarkaffihlaðborðs fyrir bæjarbúa á 17. júní, dags. 19.06.19.
Málsnúmer 1906222
07
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi náttúruspjöll í Helgafelli (Reykjanesfólkvangi), dags. 19.06.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í umhverfisnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906281
08
Ársreikningur Hrafnistu - Ísafold árið 2018.
Lagður fram.
Í ársreikningum kemur fram að tap ársins nemi kr. 37,5 mkr og greiðir Garðabær samkvæmt samningi um rekstur hjúkrunarheimilisins framlag til Hrafnistu að fjárhæð 24,0 mkr.
Málsnúmer 1706251
09
Samningur við ÍSB fasteignir um uppbyggingu byggðar á Sveinskotsreit.
Bæjarráð samþykkir samning við ÍSB fasteignir um uppbyggingu íbúðarbyggðar á Sveinskotsreit.
Málsnúmer 1811027
10
Samningur við ÍSB fasteignir um uppbyggingu á miðsvæði Álftaness.
Bæjarráð samþykkir samning við ÍSB fasteignir um uppbyggingu íbúðarbyggðar á miðsvæði Álftaness ásamt samningi við Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka um sölumeðferð á byggingarrétti lóða.