Aðgerðaráætlun sviða vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar - staðan nóvember 2020.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (1953). fundur
Lagðar fram uppfærðar aðgerðaráætlanir sviða vegna tillagna sem bæjarstjórn hefur samþykkt í tengslum við úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins. Í aðgerðaráætlun sviða kemur fram tímarammi, ábyrgðaraðili og lýsing á framgangi verkefna.
Umræða var um einstaka þætti.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1925). fundur
Lögð fram uppfærð aðgerðaráætlun vegna tillagna sem bæjarstjórn hefur samþykkt í tengslum við úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins. Í aðgerðaráætluninni kemur fram tímarammi, ábyrgðaraðili og lýsing á framgangi verkefna.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger, Harpa Þorsteinsdóttir, Ingvar Arnarson og Sigurður Guðmundsson, voru á fjarfundi bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
03
8. (1917). fundur
Lögð fram aðgerðaráætlun vegna tillagna sem bæjarstjórn hefur samþykkt í tengslum við úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins.
Í aðgerðaráætluninni kemur fram tímarammi, ábyrgðaraðili og lýsing á framgangi verkefna.
Fylgiskjöl
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - tækni.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fjármála.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - bst.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fræðslu.pdf
- Aðgerðaráætlun -stjórnsýsluúttekt -bra 25.02.2020 - fjölsk.pdf
Bæjarráð Garðabæjar
04
40. (1901). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum með starfsmönnum en skýrslan var kynnt á starfsmannafundi sem haldinn var föstudaginn 18. október og á forstöðumannafundi sem haldinn var í gær.
Skýrslan verður birt á vef Garðabæjar í dag og kynnt íbúum á opnum fundi í Sveinatungu fimmtudaginn 24. október.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
15. (855). fundur
Gunnar Einarsson, fylgdi úr hlaði skýrslu um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum Garðabæjar. Skýrslan er unnin af Haraldi L. Haraldssyni, hagfræðingi. Við vinnslu skýrslunnar var stuðst við gögn frá sveitarfélaginu og til samanburðar voru skoðuð gögn á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi rekstur sambærilegra sveitarfélaga. Þá var rætt við forstöðumenn um rekstur viðkomandi stofnunar ásamt því að yfirfara bókhaldsgögn og rekstrarútgjöld.
Gunnar gerði grein fyrir tilurð þess að skýrslan var unnin og lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórn Garðabæjar lýsir ánægju með framkomna skýrslu sem staðfestir traustan rekstur bæjarfélagsins þar sem starfsmenn leggja sig fram af metnaði og með fagmennsku að leiðarljósi við að veita bæjarbúum góða þjónustu. Í skýrslunni felast jafnframt tækifæri til að gera enn betur með það að markmiði að fylgja eftir tillögum og ábendingum til að bæta rekstur, fjárhag og þjónustu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna aðgerðaráætlun um framgang einstakra tillagna og fylgja eftir ábendingum sem koma fram í skýrslunni. Aðgerðaráætlun skal lögð fram í bæjarráði og fylgt eftir með reglubundnu stöðumati að liðnum sex mánuðum.
Bæjarstjórn samþykkir að eftir kynningu á skýrslunni með forstöðumönnum stofnana bæjarins verði skýrslan birt á vef Garðabæjar og gerð aðgengileg öllum starfsmönnum og almenningi.“
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.
Bæjarráð Garðabæjar
06
24. (1885). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Haraldur Líndal Haraldsson og gerði grein fyrir stöðu úttektar sem hann er að vinna að á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar. Haraldur gerði grein forsendum og nálgun á verkefninu sem felst í því að greina reksturinn með því að rýna fjárhagsupplýsingar og eiga viðtöl við alla forstöðumenn.
Fram kom að stefnt er að lokaskilum skýrslu í byrjun september.
Bæjarráð Garðabæjar
08
6. (1867). fundur
Bæjarstjóri kynnti drög að samningi við HLH ehf. vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,SG,AG) að ganga til samninga við HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins. Í samningnum kemur fram að gert er ráð fyrir að drög að skýrslu liggi fyrir í byrjun júní 2019.
Ingvar Arnarson greiðir atkvæði gegn samþykkt samnings við HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins