6. (1867). fundur
6. (1867). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
12.02.2019
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1901331
01
Bréf Sorpu bs. varðandi hugsanlega sameiningu Sorpu bs. og Kölku, dags. 18.01.19.
Á fund bæjarráðs mættu Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu bs. og Snædís Helgadóttir og Þröstur Sigurðsson, ráðgjafar hjá Capacent. Gerðu þau grein fyrir skýrslu sem liggur fyrir um hugsanlega sameiningu Sorpu bs. og Kölku.
Bæjarfulltrúarnir Jóna Sæmundsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1808155
02
Hæðarbyggð 22 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lovísu Ólafsdóttur, kt. 300875-4169 leyfi til að breyta innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Hæðarbyggð 22.
Málsnúmer 1902092
03
Bréf Íbúðalánasjóðs varðandi húsnæðisáætlanir sveitarfélaga, ódags.
Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs þar sem vakin er athygli á ákvæði reglugerðar um húsnæðisáætlanir sveitarfélaga þar sem fram kemur að sveitarfélögum beri að skila húsnæðisáætlunum til Íbúðalánasjóðs fyrir 1. mars 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1901467
04
Bréf Skógræktarfélags Reykjavíkur varðandi öryggis- og upplýsingamál í Heiðmörk, dags. 29.01.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í verkefnið og vísar því á þessu stigi til umfjöllunar umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902089
05
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 07.02.19.
Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.054.773 til greiðslu fasteignagjalda af reiðskemmu árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902040
06
Bréf Bessastaðasóknar varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 29.01.19.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 255.215 til greiðslu fasteignagjalda af safnaðarheimili árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902044
07
Bréf Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa varðandi niðurfellingu fasteignagjalda 2019, dags. 04.02.19.
Bæjarráð samþykkir að veita Styrktar- og líknarsjóði Oddfellowa styrk að fjárhæð kr. 1.866.519 til greiðslu fasteignagjalda af golfskála árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902037
08
Bréf Hagstofu Íslands varðandi skráningu á lausum störfum o.fl., dags. 30.01.19.
Málsnúmer 1812139
09
Endurnýjun samnings við Hjálparsveit skáta í Garðabæ.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að nýjum samstarfsamningi við Hjálparsveit skáta í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902074
10
Bréf Nordjobb um sumarstörf 2019, dags. 01.02.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902093
12
Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga 495. mál., dags. 06.02.19.
Lagt fram.
Málsnúmer 1902094
13
Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, 509. mál., dags. 07.02.19.
Málsnúmer 1902050
14
Svar við fyrirspurn um niðurgreiðslur á fæði fyrir eldri borgara.
Lagt fram svar við fyrirspurn um niðurgreiðslur á fæði fyrir eldri borgara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902049
15
Svar við fyrirspurn um vöru- og þjónustukaup 2018.
Lagður fram listi yfir 100 stærstu viðskiptamenn bæjarins árið 2018 eða sem nemur 85% af öllum greiðslum vegna vöru- og þjónustukaupa árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902069
16
Úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Garðabæjar.
Bæjarstjóri kynnti drög að samningi við HLH ehf. vegna úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,SG,AG) að ganga til samninga við HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins. Í samningnum kemur fram að gert er ráð fyrir að drög að skýrslu liggi fyrir í byrjun júní 2019.
Ingvar Arnarson greiðir atkvæði gegn samþykkt samnings við HLH ehf. um úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag bæjarins