Beint í efni

Hæðarbyggð 22 -Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1808155

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (843). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

02

6. (1867). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Lovísu Ólafsdóttur, kt. 300875-4169 leyfi til að breyta innra skipulagi núverandi einbýlishúss að Hæðarbyggð 22.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

1. (841).. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

04

2. (1863). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hæðarbyggð 22. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

16. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grennarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

14. fundur

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

07

9. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir breytingu á einbýlishúsinu að Hæðarbyggð 22 sem gerir ráð fyrir því að yfirbyggðum svölum verði lokað og að byggðar verði svalir á aðalhæð á vestur og norðurhlið ásamt stiga niður í garð. Nýjar svalir ná út fyrir byggingarreit að hluta. Viðbygging yrði innan byggingarreits.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar samkvæmt 44.gr. skipulagslaga nr,123/2010 þar sem breytingin er í samræmi við byggðarmynstur osfv. Grenndarkynna skal tillögu eigendum Hæðarbyggðar 20, 23, 24, 25 og 27. Ef samþykki allra viðeigandi liggur fyrir er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar. Ef engar athugasemdir verða gerðar við umsóknina gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.