16. fundur
16. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
20.12.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Kjartan Örn Sigurðsson - varamaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - verkefnastjóri
- Sólveig Helga Jóhannsdóttir - skipulagsfræðingur
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1606034
01
Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.
Baldur Grétarsson deildarstjóri hjá Vegagerðinni ásamt Ólafi Erlingssyni og Önnu Guðrúnu Stefánsdóttur ráðgjöfum hjá Verkís kynntu tillögur að bráðabirgðarendurbótum gatnamótum Hafnarfjarðarvegar við Vífilstaðaveg og við Lyngás/Lækjarfit.
Markmið endurbótanna er að auka öryggi vegfarenda og að bæta umferðarflæði með því að bæta aðgengi hliðarvega inn á Hafnarfjarðarveg.
Málið mun hljóta meðferð sem framkvæmdaleyfisumsókn án deiliskipulags en ekki er vikið frá því markmiði að Hafnarfjarðarvegur verði síðar lagður í lokaðan stokk og gatnamót verði mislæg eins og aðalskipulag Garðabæjar gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar. Stefnt er að því að halda kynningarfund í Flataskóla þann 9.janúar.
Málsnúmer 1305618
02
Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.
Lögð fram tilllaga að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. M.a. verður gert ráð fyrir hringtorgi við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns/Flataskóla sem er liður útfærslu á bráðabirgðaumbótum gatnamóta við Hafnarfjarðarveg. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1711137
03
Ásar og Grundir, dsk br., minnkun svæðis.
Lögð fram tilllaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir breytingum á stígum ofl. næst Hafnarfjarðarvegi sem tengjast bráðabirgðaútfærslum á Hafjarfjarðarvegi og gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1711136
04
Hraunsholt eystra, dsk br, minnkun svæðis.
Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Hraunsholts eystra sem gerir ráð því að skipulagssvæðið minnkar við gatnamót Lækjarfitjar og Hafnarfjarðarvegar. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1711135
05
Miðbær, neðsta svæði (svæði III), dsk br minnkun svæðis
Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Sveinatungureits sem gerir ráð fyrir því að svæðið sem deiliskipulagið nær til minnkar sem nemur gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafjarfjarðarvegar. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1711133
06
Ásgarður, dsk breyting vegna hringtorgs
Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Ásgarðs. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breyttri legu göngustígs við Hraunsholtslæk og á fyrirkomulagi bílastæða. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1711132
07
Hörgatún 2, dsk breyting vegna hringtorgs
Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Hörgatúns 2. Tillagan gerir ráð fyrir skerðingu í norðvesturhorn lóðar vegna útfærslu á hringtorgi á gatnamótum Liltatúns og Vífilsstaðavegar. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1710083
08
Lyngássvæði, deiliskipulag L1 og L2
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu og Þráinn Hauksson landlagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að deiliskipulagi reita L1 og L2 á Lyngássvæði. Svæðið sem tillagan gerir ráð fyrir um 395 íbúðareiningum í 3-4 hæða fjölbýlishúsum. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal kynnt á íbúafundi ásamt tillögum Vegagerðarinnar að bráðabirgða endurbótum Hafjarfjarðarvegar.
Málsnúmer 1809246
09
Skipulag - Keldugata 2-20, dsk breyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir breytingu á húsagerðum ofl við ofanverða götuna. Tillagan gerir ráð fyrir að ein fjölbýlishúsalóð verði lögð af. Íbúðum í götunni fjölgar alls um 3.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með húseigendum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 1806425
10
Víkurgata 14- Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tilllaga að byggingarleyfisumsókn ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Útfærslur handriða og stoðveggja víkja lítillega frá ákvæðum deiliskipulags. Umsögn deiliskipulagshöfundar er jákvæð. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulegt frávik og gerir ekki athugasemdi við að við veitingu byggingarleyfis sé vikið frá ákvæði deiliskipulags hvað þetta varðar. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærsltu á lóðarmörkum.
Málsnúmer 1808155
11
Hæðarbyggð 22 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grennarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Málsnúmer 1812179
12
Lýsing fyrir nýtt deiliskipulag við Krýsuvíkurberg í Krýsuvík Hafnarfirði
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna.