Beint í efni

Hörgatún 2, dsk breyting vegna hringtorgs

Málsnúmer 1711132

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (1877). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hörgtúns 2 samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.

Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lagðar fram að lokinni auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðalagfæringum á stofnbrautinni ásamt tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir varanlegu útfærslum á umferðarkerfi. Lagðar fram tillögur að breytingum á deiliskipulagi Hörgatúns 2, deiliskipulagi Ásgarðs, deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis, deiliskipulagi Hraunsholts eystra og deiliskipulagi Ása og Grunda sem tengjast allar endurbótum umferðarkerfisins, bæði varanlegum og til bráðabirgða.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Lögð fram greinargerð með tillögum að svörum við athugasemdum.
Athugasemdir kalla ekki á breytingar á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lagðar fram tillögur að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir breytingu á vegtengingum og lóðarstærð sem nauðsynegt er að ráðast í til að laga deiliskipulagið að tillögum um endurbætur Hafnarfjarðarvegar.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

3. (843). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

06

7. (1868). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hörgatúns 2 að lokinni forkynningu. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar. Ein ábending barst sem snýr að útfærslu á hringtorgi við Litlatún/Flataskóla og framtíðarsýn skipulagsyfirvalda um uppbyggingu á svæðinu milli miðbæjar við Garðatorg og Hafnarfjarðarvegar.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Skoða skal sérstaklega útfærslu á hringtorginu á auglýsingartíma og skoða hvort aðrir valkostir komi til greina. Móta skal tillögur að breytingum á lóðinni Hörgatún 2 í samráði við lóðarhafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

1. (841).. fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Hörgatún 2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi

Bæjarráð Garðabæjar

09

2. (1863). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Hörgatún 2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

16. fundur

Lögð fram tilllaga að breyting á deiliskipulagi Hörgatúns 2. Tillagan gerir ráð fyrir skerðingu í norðvesturhorn lóðar vegna útfærslu á hringtorgi á gatnamótum Liltatúns og Vífilsstaðavegar. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna svæðis við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.

Bæjarráð Garðabæjar

12

47. (1813). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna svæðis við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingun Hörgatúns 2 í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar og neðsta hluta Vífilsstaðavegar.Leita skal samráðs við lóðarhafa Hörgatúns 2. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

14. fundur

Vegna tillagna um útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar/Litlatúns/Flataskóla er ljóst að gera þarf breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 þar sem gera verður ráð fyrir breytingu lóðarmarka.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.