7. (1868). fundur
7. (1868). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
19.02.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1902102
01
Móttaka flóttamanna - kynning.
Á fund bæjarráð mættu Linda Rós Alfreðsdóttir, frá félagsmálaráðuneytinu, Eva Rós Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ vegna móttöku flóttamanna og Nína Helgadóttir umsjónarmaður flóttamanna hjá Rauða krossinum. Gerðu þær grein fyrir samstarfsverkefni milli ríkisins, sveitarfélaga og Rauða krossins um móttöku flóttamanna. Farið var nánar yfir hlutverk og verkefni sveitarfélaga, hlutverk Rauða krossins og reynslu Mosfellsbæjar af móttöku flóttamanna.
Valborg Ösp Á Warén, varabæjarfulltrúi sat fund bæjarráðs.
Málsnúmer 1812010
02
Víkurgata 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hótel Keili ehf., kt. 711288-1229, leyfi til að byggja einbýlishús að Víkurgötu 13.
Málsnúmer 1808104
03
Urriðaholtsstræti 36 -Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HHV ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúum að Urriðaholtsstræti 36.
Málsnúmer 1709351
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögur að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness - athugasemdir.
Lagðar fram athugasemdir sem bárust í athugasemdarfresti vegna auglýsingar á tillögum að nýju deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftaness. Alls er um að ræða 24 athugasemdir sem á milli 400 - 500 manns hafa undirritað.
Málsnúmer 1606034
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að endurbótum á Hafnarfjarðarvegi.
Lögð fram.
Málsnúmer 1902117
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi hluta Hafnarfjarðarvegar.
Málsnúmer 1902118
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi rammahluta aðalskipulags fyrir Hafnarfjarðarveg og Lyngás.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafinn verði undirbúningar að gerð rammahluta aðalskipulags fyrir svæðið Hafnarfjarðarvegur - Lyngás.
Málsnúmer 1305618
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar
Málsnúmer 1711133
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna hringtorgs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1711135
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar, (svæði III).
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar (svæði III). Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1711132
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna hringtorgs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1711137
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1711136
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystar. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1805161
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Haukanes 10.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar að hafna fráviki frá skipulagi vegna svala er ná út fyrir byggingarreit en samþykkja frávik frá skilmálum vegna útitrappa. Um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1902041
15
Afgreiðsla leikskólanefndar um breytingu á reglum Þróunarsjóðs leikskóla.
Bæjarráð samþykkir tillögu leikskólanefndar um nýjan málslið við 6. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla sem verður 4 ml. og hljóðar svo:
„Verkefni sem fá styrk úr Þróunarsjóði leikskóla geta verið tilnefnd til viðurkenningar eða verðlauna á Menntadegi Garðabæjar.“
Málsnúmer 1902122
16
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga varðandi auglýsingu eftir framboðum í stjórn á aðalfundi 2019, dags. 11.02.19.
Málsnúmer 1902141
17
Bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands varðandi mannvirki sem skylt er að vátryggja hjá NTÍ, ódags.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að upplýsa Náttúruhamfaratryggingu Íslands um verðmæti mannvirkja sem skylt er að vátryggja hjá félaginu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812265
18
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs og byggingarleyfis vegna ljósamastra.
Lagður fram úrskurður ÚUA þar sem hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á samþykkt bæjarstjórnar á breytingu á deiliskipulagi Bæjargarðs og ógildingu á byggingarleyfi vegna uppsetningu ljósamastra við gervigrasvöll í Bæjargarði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812263
19
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru á útgáfu byggingarleyfis vegna girðingar á gervigrasvelli í Bæjargarði.
Lagður fram úrskurður ÚUA þar sem fallist er á kröfu kæranda um að fella úr gildi byggingarleyfi vegna girðingar við gervigrasvöll í Bæjargarði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810375
20
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu í samráðshóp vegna fyrirhugaðrar friðlýsingar, dags. 12.02.19.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, verkfræðing, Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóra og Lindu Björk Jóhannsdóttur, verkefnastjóra sem fulltrúa Garðabæjar í samráðshóp með Umhverfisstofnum vegna undirbúnings á friðlýsingu þriggja svæða í Garðabæ, þ.e. Búrfellshrauns, Búrfellsgjár, Urriðakotshrauns og stækkun fólkvangsins að Hliði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707104
21
Húsnæðisáætlun - Garðabær
Bæjarráð vísar tillögu að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1902023
22