Beint í efni

Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu í samráðshóp vegna fyrirhugaðrar friðlýsingar, dags. 12.02.19.

Málsnúmer 1810375

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (1868). fundur

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðbjörgu Brá Gísladóttur, verkfræðing, Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóra og Lindu Björk Jóhannsdóttur, verkefnastjóra sem fulltrúa Garðabæjar í samráðshóp með Umhverfisstofnum vegna undirbúnings á friðlýsingu þriggja svæða í Garðabæ, þ.e. Búrfellshrauns, Búrfellsgjár, Urriðakotshrauns og stækkun fólkvangsins að Hliði.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (842). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu umhverfisnefndar um að leitað verði eftir því við Umhverfisstofnun að hafinn verði undirbúningur að því að friðlýsa Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár sem náttúruvætti en fyrri ákvörðun um friðlýsingu var felld niður með auglýsingu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins nr. 380 frá 25. apríl 2016.

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (1865). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu umhverfisnefndar um að leitað verði eftir því við Umhverfisstofnun að hafinn verði undirbúningur að því að friðlýsa Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár sem náttúrvætti en fyrri ákvörðun um friðlýsingu var felld niður með auglýsingu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins nr. 380 frá 25. apríl 2016.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

8. fundur

Umhverfisnefnd leggur til við Bæjarráð að hafin verði vinna við að endurheimta friðlýsingu á náttúruvættinu Búrfelli, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár sem var auglýst í B-deild stjórnartíðinda 2. júní 2014 og auglýsing um niðurfellingar þeirra auglýsingar var birt í B-deild stjórnartíðinda þann 25. apríl 2016.