4. (1865). fundur
4. (1865). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
29.01.2019
Kl. 08:00 - 09:10
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Íbúakönnun - þjónusta sveitarfélaga 2018 - kynning.
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2018 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
02
Kinnargata 14 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Emil Hallfreðssyni, kt. 290684-2189 leyfi til að stækka núverandi einbýlishús að Kinnargötu 14.
03
Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byco Assert Ltd, kt. 560810-9700 leyfi til að stækka núverandi einbýlishús að Mávanesi 21.
04
Bréf Skátafélagsins Vífils og Hjálparsveitar skáta varðandi lækkun fasteignagjalda árið 2019, dags. 18.01.19.
Bæjarráð samþykkir að veita skátafélögunum styrk að fjárhæð kr. 3.638.150 til greiðslu fasteignagjalda 2019.
Fylgiskjöl
05
Bréf Sorpu bs varðandi hugsanlega sameiningu Sorpu og Kölku, dags. 18.01.19.
Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar Sorpu bs. og fulltrúar Capacent komi á fund bæjarráðs og kynni málið nánar.
Fylgiskjöl
06
Bréf frá ungu fólki úr Garðabæ um úthlutun lóða, dags. 16.01.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
07
Bréf Þjóðskjalasafns Íslands varðandi skýrslu um skjalavörslu og skjalastjórn sveitarfélaga, dags. 15.01.19.
Lagt fram.
Bæjarráð áréttar að í starfsemi Garðabæjar er unnið samkvæmt skjalastefnu þar sem fram kemur að meðferð og varsla skjala skuli ávallt vera í samræmi við lög og reglugerðir.
Fylgiskjöl
08
Bréf UMF Álftaness varðandi ósk um aukið fjárframlag til uppbyggingar aðstöðu og íþróttastarfs, dsgs. 20.01.19.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn UMFÁ þar sem meðal annars var rætt um uppbyggingu og endurbætur á íþróttaaðstöðu á Álftanesi.
Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- menningarsviðs og til meðferðar við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.
Fylgiskjöl
09
Afgreiðsla umhverfisnefndar varðandi friðlýsingu á náttúruvættinu Búrfelli, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu umhverfisnefndar um að leitað verði eftir því við Umhverfisstofnun að hafinn verði undirbúningur að því að friðlýsa Búrfell, Búrfellsgjá og eystri hluta Selgjár sem náttúrvætti en fyrri ákvörðun um friðlýsingu var felld niður með auglýsingu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins nr. 380 frá 25. apríl 2016.
10
Tölvupóstur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis varðandi frumvarp til laga um ráðstafanir til uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, dags. 23.01.19.
Lagður fram.
11
Afgreiðsla skólanefndar varðandi tillögu að breytingu á Þróunarsjóði grunnskóla.
Bæjarráð samþykkir tillögu skólanefndar nýjan málslið við 6. gr. sem verður 4 ml. og hljóðar svo:
„Verkefni sem fá styrk úr þróunarsjóði geta verið tilnefnd til viðurkenningar eða verðlauna á Menntadegi Garðabæjar.“