Íbúakönnun - þjónustukönnun 2018
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
2. fundur
Íbúakönnun lögð fram til kynningar í Fjölskylduráði.
Lögð er fram til kynningar í Fjölskylduráði þjónustukönnun fyrir árið 2018. Fjölskylduráð fjallar um niðurstöðurnar og tækifæri til úrbóta á sviði félagsþjónustu, öldrunarmála og málefna fatlaðs fólks.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Niðurstöður fyrir Garðabæ úr árlegri þjónustu/íbúakönnun Gallup kynntar.
Niðurstöður úr árlegri þjónustukönnun Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu er mælt voru kynntar. Farið var yfir helstu niðurstöður fyrir Garðabæ og þá sérstaklega niðurstöðu spurningar þar sem spurt er um ánægju með menningarmál. Könnunin er aðgengileg á vef Garðabæjar ásamt eldri könnunum.
Fylgiskjöl
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
04
7. fundur
Íbúakönnun lögð fram til kynningar. Garðabær er í fyrsta sæti hvað varðar ánægju foreldra með leik- og grunnskóla. Slík niðurstaða ber vott um framúrskarandi störf í skólum Garðabæjar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Kynntar voru niðurstöður íbúakönnunar sem vörðuðu þjónustu leikskóla. Leikskólanefnd lýsir ánægju með niðurstöðurnar og vel unnin störf leikskólanna.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
08
7. fundur
Málið rætt í ljósi niðurstöðu málaflokka er varða ÍTG, en einnig útfrá þjónustu við íbúa almennt.
Bæjarráð Garðabæjar
09
4. (1865). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2018 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.