Beint í efni

3.. fundur

15.02.2019
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

3.. fundur

Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar

í Tónlistarskóla Garðabæjar, Kirkjulundi

15.02.2019

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
  • Einar Örn Magnússon - aðalmaður
  • Sigrún Gísladóttir - aðalmaður
  • Sólveig Guðrún Geirsdóttir - aðalmaður
  • Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Laufey Ólafsdóttir

Á fundinn mætti Eiríkur B. Björgvinsson, nýráðinn sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.

Formaður bauð skólanefnd velkomna til 3. fundar kjörtímabilsins og bauð einnig Eirík B. Björgvinsson velkominn á fundinn.

Dagskrá

Málsnúmer 1805154

01

Skólastarfið 2019

Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur. Í nóvember var „masterklass“ fyrir langt komna saxófónnemendur undir leiðsögn Sigurðs Flosasonar saxófónleikara.

Í desember voru haldnir fjölmargir jólatónleikar á vegum tónlistarskólans auk þess sem allir kennarar skólans héldu tónfundi með sínum nemendum. Þá fóru nemendur í heimsóknir á stofnanir og til félagasamtaka ásamt kennurum sínum. Nemendur komu einnig fram á aðventukvöldum og í messum í kirkjum bæjarins á aðventunni.

Í janúar tóku nemendur í framhaldsnámi á hljómsveitarhljóðfæri þátt í hljómsveitarnámskeiði á vegum Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna. Námskeiðinu lauk með glæsilegum tónleikum í Langholtskirkju 23. janúar.

Foreldraviðtöl fóru fram í lok janúar. Í byrjun febrúar var „masterklass“ fyrir langt komna píanónemendur undir leiðsögn Kristins Arnar Kristinssonar, öllum píanónemendum var boðið að koma og hlusta líkt og venja er. Samspilsvika var í skólanum vikuna 4. ? 8. febrúar og 9. febrúar var Degi tónlistarskólanna fagnað. Haldnir voru 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans þar sem fram komu hljómsveitir, sampilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. Mikill fjöldi nemenda komu fram á tónleikunum og voru þeir afar vel sóttir.

Málsnúmer 1805154

02

Starfskönnun vorið 2019

Fram kom hjá skólastjóra að stefnt er að gerð starfsmannakönnunar, líkt og gert er á þriggja ára fresti, á vormánuðum og verður það gert hjá öllum stofnunum Garðabæjar á sama tíma en það er það í fyrsta skipti sem það er gert. Skólastjóri ræðir við mannauðsstjóra um framkvæmd könnunarinnar.

Málsnúmer 1805154

03

Nýtt merki (logo) fyrir tónlistarskóla Garðabæjar og Álftaness.

Fyrirhugað er að gera nýtt merki (logo) fyrir sameinaðan Tónlistarskóla Garðabæjar. Haft var samband við grafískan hönnuð til að fá hugmyndir um kostnað. Áætlaður kostnaður er kr. 250.000. Nefndi leggur til að farið verði í að hanna nýtt merki fyrir skólann.

Málsnúmer 1805154

04

Húsnæðisþarfir skólans

Rætt um húsnæðismál skólans og hvernig hægt er að bregðast við aukinni þörf á aðstöðu fyrir skólann. Lagt er til að farið verði í þarfa- og rýmisgreiningu. Rætt var um að efla samstarf við menningar- og safnanefnd.

Málsnúmer 1901326

05

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2018

Lagt fram til kynningar.