Skólastarf sl. starfsárs (2018-2019)
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
4. fundur
Skólastjóri fór yfir skólastarfið síðasta starfsárs. Starfið hefur gengið vel, nemendur skólans hafa komið fram á fjölmörgum tónleikum, um 50 áfangapróf hafa verið tekin þ.a. þrjú framhaldspróf. Nemendur hafa heimsótt stofnanir, tekið þátt í verkefnum s.s. jasshátíð Garðabæjar, Stórsveitardeginum í Hörpu, Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, EPTA píanókeppninni, Nótunni, Þá tekur elsta blásarasveit skólans þátt í blásarahátíð á Spáni í júní nk. Þann 15. maí sl. bauð skólinn 5 og 6 ára nemendum í Garðabæ á tónleika í sal skólans „Maxímús trítlar í tónlistarskóla“. Á tónleikunum flutti sögumaður söguna af Maxímús ásamt því sem myndum var varpað upp og sáu nemendur og kennara um tónlistarflutning. Um 340 nemendur heimsóttu skólann af þessu tilefni.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
4. fundur
Formaður skólanefndar kynnti tillögu að skólagjöldum fyrir næsta starfsár.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
4. fundur
Formaður lagði til að fundir nefndarinnar fram að næstu áramótum yrði sem hér segir:
20. september kl. 08:00. Fundarefni m.a. skólastarfið og fjárhagsáætlun
21. nóvember kl. 08:00. Fundarefni m.a. fjárhagsáætlun og kannanir
Leiðrétting eftir fund:
Tillögurnar um fundartíma áttu að vera fimmtudagana 19. september og 14. nóvember.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
04
4. fundur
Skólastjóri lagði fram skóladagatal komandi skólaárs og fór yfir helstu atriði þess.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
05
3.. fundur
Skólastjóri fór yfir skólastarfið undanfarnar vikur. Í nóvember var „masterklass“ fyrir langt komna saxófónnemendur undir leiðsögn Sigurðs Flosasonar saxófónleikara.
Í desember voru haldnir fjölmargir jólatónleikar á vegum tónlistarskólans auk þess sem allir kennarar skólans héldu tónfundi með sínum nemendum. Þá fóru nemendur í heimsóknir á stofnanir og til félagasamtaka ásamt kennurum sínum. Nemendur komu einnig fram á aðventukvöldum og í messum í kirkjum bæjarins á aðventunni.
Í janúar tóku nemendur í framhaldsnámi á hljómsveitarhljóðfæri þátt í hljómsveitarnámskeiði á vegum Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna. Námskeiðinu lauk með glæsilegum tónleikum í Langholtskirkju 23. janúar.
Foreldraviðtöl fóru fram í lok janúar. Í byrjun febrúar var „masterklass“ fyrir langt komna píanónemendur undir leiðsögn Kristins Arnar Kristinssonar, öllum píanónemendum var boðið að koma og hlusta líkt og venja er. Samspilsvika var í skólanum vikuna 4. ? 8. febrúar og 9. febrúar var Degi tónlistarskólanna fagnað. Haldnir voru 14 stuttir tónleikar í tónleikasal og blásarasal skólans þar sem fram komu hljómsveitir, sampilshópar af ýmsum stærðum og gerðum, söngvarar og einleikarar. Mikill fjöldi nemenda komu fram á tónleikunum og voru þeir afar vel sóttir.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
06
3.. fundur
Fram kom hjá skólastjóra að stefnt er að gerð starfsmannakönnunar, líkt og gert er á þriggja ára fresti, á vormánuðum og verður það gert hjá öllum stofnunum Garðabæjar á sama tíma en það er það í fyrsta skipti sem það er gert. Skólastjóri ræðir við mannauðsstjóra um framkvæmd könnunarinnar.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
07
3.. fundur
Fyrirhugað er að gera nýtt merki (logo) fyrir sameinaðan Tónlistarskóla Garðabæjar. Haft var samband við grafískan hönnuð til að fá hugmyndir um kostnað. Áætlaður kostnaður er kr. 250.000. Nefndi leggur til að farið verði í að hanna nýtt merki fyrir skólann.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
08
3.. fundur
Rætt um húsnæðismál skólans og hvernig hægt er að bregðast við aukinni þörf á aðstöðu fyrir skólann. Lagt er til að farið verði í þarfa- og rýmisgreiningu. Rætt var um að efla samstarf við menningar- og safnanefnd.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
09
2.. fundur
Formaður og skólastjóri fór yfir helstu fjárhagsstærðir í áætluninni sem lúta að tónlistarskólanum.
Nefndin leggur áherslu á að halda áfram endurnýjun hljóðfæra sem ætluð eruð til útleigu ásamt píanókosti skólans. Þá er mikilvægt að huga að stækkun tónlistarskólans í Kirkjulundi og á Álftanesi þar sem húsnæði stendur starfsemi skólans fyrir þrifum.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
10
2.. fundur
Fram kom hjá skólastjóra að skólastarfið hafi verið blómlegt á haustönninni. Haldnir hafa verið fjölmargir tónleikar það sem af er skólaárinu auka annarra viðburða sem nemendur hafa tekið þátt í. Til að gefa dæmi um fjölbreytta starfsemi skólans þá fór C blásarasveit TG á landsmót skólahljómsveita á Akureyri 12.- 14. október, báðar strengjasveitirnar fóru á strengjamót á Akureyri 2. - 4. nóvember, nemendur rytmadeildarinnar tóku þátt í jamsession í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar 14. nóvember og stóri píanódagurinn var haldinn í þriðja skipti 3. nóvember. Á píanódeginum er þátttakendum skipt í hópa sem fara á milli píanókennara í þremur lotum. Á hverjum stað er lögð áhersla á mismunandi atriði til að vinna með allt frá framkomu á tónleikum til leikja og spuna. Um 90 nemendur tók þátt að þessu sinni.
Haldinn var „masterklass“ fyrir lengst komnu flautunemendur skólans og svo var boðið upp á flautufjör fyrir alla flautunemendur en þar fengu nemendur kynningu á ýmsum tegundum af flautum auk þess að fá að prófa að spila á þær.
Á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember sl. hélt söngdeildin tónleika að venju þar sem eingöngu voru flutt íslensk sönglög. Framundan eru jólatónleikar skólans auk þess sem nemendur koma fram við ýmis tækifæri í sveitarfélaginu á aðventunni
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
11
2.. fundur
Fram kom hjá skólastjóra að stefnt er að gerð starfsmannakönnunar, líkt og gert er á þriggja ára fresti. Vorið 2019 verður gerð starfsmannakönnun hjá öllum stofnunum Garðabæjar á sama tíma og er það í fyrsta skipti sem það er gert.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
12
1. fundur
Skólanefnd kynntar reglur Garðabæjar um starfsemi og starfshætti nefnda ásamt reglugerð fyrir TSG frá 28. ágúst 2013.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
13
1. fundur
Skólastjóri kynnti rekstur skólans. Tónlistarskólinn starfar samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985 og kennir samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla. Í skólanum starfa 50 manns og það eru um 490 nemendur þetta skólaárið. Kennt er á 7 stöðum í Garðabæ. Í skólanum er kennt á öll helstu hljóðfæri og söng. Fjölmargir samspilshópar auk þriggja lúðrasveita, stórsveitar, tveggja strengjasveita, suzukihópa og sönghópa eru starfandi í skólanum.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
14
1. fundur
Unnið er að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir 2019 og er hún byggð á áætlun sem gerð var fyrir árin 2018 til 2021.
Farið var yfir vinnuferlið við fjárhagsáætlunargerð.
Skólastjóri fór yfir helstu mál er lúta að tónlistarskólanum. Nefndin leggur áherslu á að halda áfram endurnýjun hljóðfæra sem ætluð eruð til útleigu ásamt píanókosti skólans. Þá er mikilvægt að huga að stækkun tónlistarskólans í Kirkjulundi og á Álftanesi þar sem húsnæði stendur starfsemi skólans fyrir þrifum.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
15
1. fundur
Fram kom hjá skólastjóra að á haustönn verði gerð starfsmannakönnum líkt og gert er á þriggja ára fresti. Foreldrakönnun var framkvæmd á síðasta skólaári.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
16
23. fundur
Fram kom hjá skólastjóra að svipaður fjöldi nemenda verður við skólann á komandi skólaári. Tónlistarskólinn verður settur föstudaginn 24. ágúst. Skólastarfi verður með svipuðu sniði og undarnfarin ár þó má nefna að strengjasveitir skólans taka þátt í strengjasveitamóti í Reykjanesbæ á haustdögum og B blásarasveit skólans stefnir á ferð til Spánar vorið 2019.