23. fundur
23. fundur
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.05.2018
Kl. 17:00 - 17:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristinn Guðlaugsson - formaður
- Þorgerður Anna Arnardóttir - aðalmaður
- Eiríkur Þorbjörnsson - aðalmaður
- Kristín Harðardóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Ólafsdóttir - skólastjóri
Ritari
- Laufey Ólafsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1709172
01
Skólastarf tónlistarskóla 2017 - 2018
Skólastjóri fór yfir þá tónleika sem farið hafa fram undanfarið, fram kom að síðustu tónleikar skólaársins verða á Álftanesi á morgun fimmtudag kl. 18:00 og 19:00.
22. maí fara nemendur í heimsókn á Hrafnistu og halda þar árlega tónleika. Hljóðfærakynningar fara fram í grunnskólum Garðabæjar 22. og 23. maí nk. Þá verða haldnir 29 tónfundir áður en skólastarfi lýkur.
Skólaslit tónlistarskólans verða þriðjudaginn 29. maí kl. 17:30 í Vídalínskirkju.
Málsnúmer 1802204
02
Greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ
Fyrir fundinum lá vegvísir að Menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ. Starfshópur sem skipaður var af bæjarstjórn skilaði af sér skýrslu í lok apríl. Nefndin tekur undir með skólastjóra að helsti möguleiki skólans væri að nýta húsnæðið ef þar væri tónleikasalur fyrir um 350-400 áheyrendur.
Málsnúmer 1805155
03
Nýir kjarasamningar Sambands ísl. sveitarfélaga og félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi FT 9. maí síðastliðinn. Skólanefnd TG fagnar því að aðilar hafa náð samkomulagi og vonast til að hann verði samþykktur í atkvæðagreiðslu í lok maí.
Málsnúmer 1805154
04
Skólastarf tónlistarskóla 2018-2019
Fram kom hjá skólastjóra að svipaður fjöldi nemenda verður við skólann á komandi skólaári. Tónlistarskólinn verður settur föstudaginn 24. ágúst. Skólastarfi verður með svipuðu sniði og undarnfarin ár þó má nefna að strengjasveitir skólans taka þátt í strengjasveitamóti í Reykjanesbæ á haustdögum og B blásarasveit skólans stefnir á ferð til Spánar vorið 2019.